Þjóðmál - 01.09.2015, Blaðsíða 21
ÞJÓÐMÁL hausthefti 2015 19
Orðfæri og lokuð eyru
Þjóðarframleiðsla, afnám gjaldeyrishafta,
kaupmáttur launa, þjóðartekjur á mann,
greiðslujöfnuður, framlegð, auðlegðarskattur,
auðlindaskattur, ríkisreikningur, frumjöfnuður,
greiðsluafkoma ríkissjóðs, vaxtamunur, skulda-
hlutfall, þorskígildisstuðlar, rammaáætlun,
nýtingaráætlun, biðflokkur, náttúrupassi,
vöruskiptajöfnuður, greiðslujöfnuður, fram-
leiðni, kerfisáhætta, A-hluti, B-hluti, C-hluti,
samgönguáætlun, heilbrigðisáætlun, bótaréttur,
greiðslumark og greiðsluþátttökukerfi .
Allt eru þetta dæmi um orð sem kjörum
fulltrúum sjálfstæðismanna eru töm í munni og
auðvitað er mikilvægt að þeir skilji hugtökin,
kunni að meta mikilvægi þeirra og geti þar með
tekið mikilvægar ákvarðanir. En um leið eru
orðin lýsandi dæmi um orðfæri sem nær aldrei
að fagna athygli kjósenda og ber fremur með
sér teknókratíska hugsun, en leiftrandi hug-
sjónir um frelsi einstaklingsins, þar sem valfrelsi
er grunnstefið.
Nokkrar tillögur
Fyrr á þessu ári átti ég þess kost að hitta
forystufólk Sjálfstæðisflokksins í nokkrum
sveitarfélögum. Í samtölum mínum við öfluga
samherja reyndi ég að draga upp raunsanna
mynd af stöðu flokksins í einstökum kjör-
dæmum og á landinu í heild. En um leið setti ég
fram lista yfir þau mál sem Sjálfstæðisflokkur-
inn á að setja á oddinn á komandi misserum
og árum. Í raun eru þetta einfaldar tillögur um
hvernig við sjálfstæðismenn eigum að nálgast
kjósendur, jafnt ungt fólk og þá sem eldri eru:
• Við þurfum að leggja grunn að því að ungt
fólk eigi a.m.k. ekki síðri tækifæri til að
eignast eigið húsnæði en foreldrar þeirra,
afar og ömmur. Við eigum að reisa raunveru-
lega skjaldborg um séreignastefnuna þannig
að fólk eigi raunverulegt val um hvort það
vill eiga eða leigja þak yfir höfuðið.
• Við verðum að skera upp lánakerfi náms-
manna og tryggja að námslán verði ungu
fólki ekki fjötur um fót að námi loknu og
komi í veg fyrir að það eigi möguleika á að
eignast eigið húsnæði og öðlast fjárhagslegt
sjálfstæði.
• Við eigum að gera það aftur eftirsóknarvert
að stofna og eiga fyrirtæki – setja sjálfstæða
atvinnurekandann aftur á sinn stall. Þannig
á að hætta að refsa framtaksmönnum fyrir
að ná árangri í rekstri, einfalda regluverk og
standa að nýju vörð um samkeppni.
• Við verðum að opna alla stjórnsýslu hins
opinbera þannig að almenningur geti fylgst
með gerðum og ákvörðunum stjórnmála-
manna og embættismanna.
• Við eigum að opna allt bókhald ríkisins,
ríkisfyrirtækja- og stofnana, sveitarfélaga og
fyrirtækja þeirra. Kjörorðið á að vera: Allt upp
á borðum!
Mynd: Maxime De Ruyck