Þjóðmál - 01.09.2015, Síða 22

Þjóðmál - 01.09.2015, Síða 22
20 ÞJÓÐMÁL hausthefti 2015 • Við eigum að innleiða og standa vörð um netfrelsi og upplýsingafrelsi borgaranna. • Við skulum leiða umfangsmikla fjárfestingu í heilbrigðiskerfinu – fjárfestingu sem er ekki aðeins ein sú arðbærasta sem þjóðinni býðst, heldur mun hún auka lífsgæði allra landsmanna ef rétt er að verki staðið. Við eigum að gera skýr skil á milli þess hver greiðir (ríkið) og hver veitir þjónustuna (ríki, einstaklingar, félagasamtök). • Við verðum að huga að grunnþáttum menntunar – innleiða samkeppni og auka þar með valmöguleikana ungs fólks í menntun. (Við eigum ekki að ræða um framhaldsskólann á þeim nótum að gefið sé í skyn að ungt fólk á Íslandi sé dugminna en jafnaldrar þeirra í nágrannalöndunum). • Við verðum að gera iðn- og tækninám að raunhæfu vali. • Við eigum að leiðrétta eitt mesta óréttlætið sem hefur fengið að grafa um sig á Íslandi. Þjóðinni hefur verið skiptist í tvo hópa. Annar hópurinn nýtur ríkisábyrgðar á lífeyrisréttindum. Hinn hópurinn þarf að sætta sig við skert lífeyrisréttindi ef illa gengur. • Við þurfum að tryggja að launafólk hafi valfrelsi um lífeyrissjóði og tryggja rétt þeirra til að hafa áhrif á stjórnir sjóðanna. • Við eigum að skera upp almannatrygginga- kerfið og innleiða nýja hugsun við að aðstoða þá sem þurfa á því að halda og tryggja þeim mannsæmandi lífskjör. • Við verðum að gefa fólki á eftirlaunum val- frelsi til að afla sér atvinnutekna. • Við eigum að veita fötluðum raunverulegt valfrelsi í þjónustu. • Við þurfum að losa landbúnaðinn úr viðjum ofstýringar og afskipta og nýta þau ótrúlegu tækifæri sem eru til lands og sjávar þannig að Ísland verði fyrirmynd í matvælafram- leiðslu. • Við eigum að leggja áherslu á hag millistétt- arinnar – á hagsmuni launafólks og tryggja að fulltrúum launþegahreyfingarinnar sé teflt fram á vegum flokksins á Alþingi og í sveitarstjórnum. Við eigum að koma aftur á einu þrepi í tekjuskatti en margþrepa tekjuskattskerfi hefur komið þyngst niður á millistéttinni. • Við þurfum að tryggja réttindi borgaranna gagnvart hinu opinbera, standa vörð um friðhelgi einkalífsins, eignaréttinn, trúfrelsið og réttinn til tjáningar og félagafrelsið. • Við eigum að leggja áherslu á að grund- völlur jafnréttis er fjárhagslegt sjálfstæði einstaklingsins. • Við eigum að draga fram samhengið á milli fjárhagslegs sjálfstæðis, lágra skatta og atvinnufrelsis. Mér dettur ekki í huga að listinn hér að ofan sé tæmandi – verkefnin eru fleiri og sum flóknari en ég set þau fram. En ég er sann- færður um að hann sé góð byrjun enda byggja allar hugmyndirnar á grunnstefi Sjálfstæðis- flokksins allt frá 1929 um frelsi einstaklingsins. Auðvitað dugar ekki að breyta aðeins orðræðunni. Orð og athafnir verða að fara saman. Kjósendur verða að geta gengið að því sem vísu að sjálfstæðismenn hryndi hugmynd- um sínum og stefnu í framkvæmd þegar þeir fá til þess tækifæri. Hægt og bítandi munu sjálfstæðismenn sjá árangur og ímynd flokksins – sem kerfislægur og teknókratískur hagsmunaflokkur – breyt- ist. Í þessu felst engin stefnubreyting heldur aðeins annað orðfæri með áherslu á grunnstef sjálfstæðisstefnunnar sem hefur alla tíð átt góðan hljómgrunn meðal allra Íslendinga, ekki síst þeirra sem yngri eru. Eitt er að minnsta víst: Tækifærin eru til staðar og sjálfstæðismenn geta annað hvort nýtt þau eða hent þeim frá sér. Auðvitað dugar ekki að breyta aðeins orðræðunni. Orð og athafnir verða að fara saman. Kjósendur verða að geta gengið að því sem vísu að sjálfstæðismenn hryndi hugmyndum sínum og stefnu í fram- kvæmd þegar þeir fá tækifæri. Hægt og bítandi munu sjálfstæðismenn sjá árangur og ímynd flokksins – sem kerfislægur og teknókratískur hagsmunaflokkur – breytist.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.