Þjóðmál - 01.09.2015, Qupperneq 23

Þjóðmál - 01.09.2015, Qupperneq 23
ÞJÓÐMÁL hausthefti 2015 21 Ragnhildur Kolka Á toppnum en skrapa þó botninn Þeir eru á mikilli siglingu í skoðanakönnunum þessa dagana flokkurinn sem kennir sig við sjóræningja. Minnir um margt á hjarðbylgjuna sem gekk yfir íslenska þjóð þegar Sylvía Nótt söng sig uppá og útaf Eurovisionpallinum. Sama þörfin og þá fyrir „eitthvað annað“. Fólk af öllum gerðum segist ætla að kjósa Píratana þótt þeir bjóði lítið annað en afgreiðslustörf við þjóðaratkvæðakassann - og auðvitað fría nettengingu. Þrátt fyrir þetta lítilræði segjast kjósendur tilbúnir að leggja traust sitt á þessa talsmenn tölvuleikja, því Píratar þreyta þá ekki með lausnamiðuðu stagli. Þeir bjóða engar lausnir og það þykir í dag bæði heiðarlegt og kúl. Sama þjóðin og hvatti galvaska bankstera, eins og Eva Joli kallaði útrásarhetjurnar okkar, til að velta um sparibaukum landsmanna, í rússneskri rúllettu fjármálamarkaða heimsins, er nú komin til vits og vill ekki lengur láta „staðnaða flokksjálka“ véla um sín mál. „Nú get ég“ segir þjóðarsálin og tekur örlög sín í eigin hendur. Það er svo sem ástæðulaust að gera því skóna að þessir geðþekku sjóræningjar hafi í hyggju að ræna þjóðarskútunni og sigla með hana í Karíbahafið, en traust upp á 35% er ekkert smá. Sérstaklega þegar ekkert liggur fyrir um hvað þeir geta annað en eigin orð um að standa fyrir lýðræði, gagnsæi og heiðarleika. Minnist einhver þess að stjórnmálamaður hafi gefið sig út fyrir að standa fyrir nokkuð annað? Og þótt ég vilji kannski ekki kasta köldu vatni á þetta nýjabrum í stjórnamálaflóru landsins finnst mér ástæða til að staldra við og skoða verk og stefnu Pírata, ef þau er einhvers staðar að finna. Þegar stefnumál Pírata (sem þeir kalla reyndar grunnstef ) eru skoðuð má segja að þau hljómi að ýmsu leyti sem músík í mínum eyrum. Réttindi borgaranna eru kjarninn sem þeir vinna útfrá; kosningarétturinn, trúfrelsið, tjáningarfrelsið, fjölmiðlafrelsið og rétturinn til að mótmæla á friðsaman hátt. Allt þetta höfum við nú þegar, það eina sem vantar í stefnuskrána er frelsið til athafna, þ.e.a.s. fyrir utan frelsi Pírata til að gramsa í eigum annarra. En trúir nafngift sinni þá er Pírötum eignaréttur- inn ekkert sérlega heilagur samanber nálgun þeirra við höfundarréttarvarið efni á netinu og sjávarútvegsstefnuna sem byggir á tillögu um eignarnám aflaheimilda. Lítið fer fyrir skyldum borgaranna. Auðvitað eiga borgaraleg réttindi alltaf að vera til skoðunar, en þegar nánar er að gáð fellur ósjaldan ryð á þennan anarkíska sjarma sem glitrar á yfirborði grunnstefsins, en það vill helst gerast þegar upp dúkka gamal- kunnar klisjur úr hugmyndafræði sem margir trúðu hafa lognast útaf í Evrópu um 1990. Flokkur Pírata er nefnilega einhvers konar bræðingur af anarkisma, frjálshyggju, kommúnisma og rómantísku hipparússi síðustu aldar klætt í búning hátækninnar. Póstmódernísk fylking sem vill brjóta gamalt fyrirkomulag niður til að setja það saman á nýjan leik samkvæmt formúlum tölvuleikjanna án þess þó að vita hvað í því felst fyrir raunheim- inn. Aðalatriðið virðist vera að gera það með hjálp átrúnaðargoðsins, tölvutækninnar. Þau vilja vel, elska næstum alla, en draumsýn sína mest. Pírötum er tíðrætt um gagnrýna hugsun og sannarlega leggjast þeir af alefli í hana. Með misjöfnum árangri þó. Hún birtist okkur úr þingsölum aðallega í tilraunum til að tala sig að niðurstöðu í ræðustól með ótæpilegum áherslum á aukaatriði og flækjustigi sem fylgir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Þjóðmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.