Þjóðmál - 01.09.2015, Page 24
22 ÞJÓÐMÁL hausthefti 2015
upplýsingaflóðinu. Fyrir bragðið ná þeir ekki að
fylgjast með málum eða taka afstöðu til þeirra,
því óendanleikinn sem besti vinur barnanna,
internetið, býður uppá er allur á fótinn. Hvernig
er líka hægt að komast yfir að lesa allt það
sem upp kemur þegar slegin eru inn orð eins
og gagnrýnin hugsun (critical thinking) eða
borgaraleg réttindi (civil rights)? Og hve mikinn
tíma má taka til að vinna úr niðurstöðunum og
komast að endanlegri niðurstöðu? Svo ekki sé
minnst á að móta stefnu að loknu samráði við
allt baklandið í netheimum.
En þannig munu vinnubrögðin vera við
ákvarðanatökur hjá Pírötum.
Á meðan Píratar strita við að sía hismið frá
kjarnanum hringir bjallan í þingsal og málið
ýmist tekið af dagskrá eða fest í lög. Kollegi
þeirra Kapteinn Krókur hefði illa fótað sig í
þessum sveimhuga félagsskap. Höfundur
Reykjavíkurbréfs
Morgunblaðsins 7.
ágúst bendir á hve
galið það er þegar
stjórnmálaafl hefur
enga sjálfstæða
stefnu og hagsmunir
íslensku þjóðarinnar
liggja við. Grunnstef í
efnahagsmálum eða
utanríkismálum hefði komið að notum þegar
Píratinn í utanríkismálanefnd var inntur eftir
afstöðu síns flokks til viðskiptaþvingananna
gegn Rússum og hann lýsti svo:
„Við stöndum áfram með þeim ríkjum sem
við höfum alltaf staðið með þegar kemur að
viðskiptaþvingunum.“
Eins og slíkar þvinganir séu daglegt brauð og
við alltaf trygg í slagtoginu. Að aðrir fulltrúar í
nefndinni hafi tekið sömu afstöðu til bannsins
réttlætir ekki þetta einfeldningslega svar
Píratans, því aðrir flokkar eru ekki að skreyta sig
með slíkum glinguryrðum. Eflaust hefði það þó
gagnast nefndinni að viðhafa gagnrýna hugsun
og öguð vinnubrögð við lausn verkefnisins.
Einfaldari leið til
Annað málefni Pírötum hjartkært er svokallað
beint lýðræði, þ.e. Píratar vilja að ákvarðanataka
í sem flestum málum verði í höndum einstakl-
inganna sjálfra. Þetta segja þeir lið í baráttunni
við útblásið ríkisvald, því Pírötum geðjast ekki
fulltrúalýðræðið. Ég er innilega sammála Píröt-
um um að við búum við útblásið ríkisvald og
vissulega mætti almenningur leggja það á sig
að kynna sér og kjósa um ýmiss konar málefni.
Þó er til einfaldari leið og kostnaðarminni sem
líklegri er til að draga úr umsvifum ríkisins.
Hún felst í að fækka verkefnum þess og draga
úr útgjöldum. Ekkert í grunnstefjum Pírata
bendir til að það sé á planinu. Beina lýðræðið
þeirra á því bara að leggjast ofan á allt hitt.
Sjálfsagt er að gefa almenningi kost á þátttöku
í ákvarðanatöku þar sem það á við, en til að
þjóðaratkvæðagreiðsla spegli vilja almenn-
ings verður að tryggja að spurningarnar sem
lagðar eru í dóm kjósenda leiði til afdráttar-
lausrar niðurstöðu og að þátttaka sé almenn.
Þjóðaratkvæðagreiðslur eiga ekki að vera leið
sérhagsmunahópa til að ná vilja sínum fram á
kostnað annarra. Við höfum vítin til að varast
frá síðasta kjörtímabili.
Gott dæmi um klúðurs-
lega atkvæðagreiðslu
og afdrif hennar er svo-
kölluð þjóðaratkvæða-
greiðsla um „nýja
stjórnarskrá“. Þarf varla
að fara fleiri orðum
um hana svo vel situr
allur sá sirkus í minni
manna. Gallagripurinn sá virðist þó hafa fallið
Pírötum í geð og barátta þeirra nú snýst um
fleiri slíkar og þá rafrænar til að auka þátttökuna.
Þar mun á brattann að sækja, því áhuginn er
lítill. Reykjavíkurborg hefur tvisvar boðið upp á
rafrænar kosningar, nú síðasta í upphafi árs og
tóku heil 6.7% kjósenda þátt. Mest var þátttakan
í þeim hverfum þar sem þjónusta borgar-
innar hefur gersamlega verið í molum og náði
hún þar þó aðeins til innan við 10% kjósenda.
Þurftu kjósendur þó ekki að ómaka sig upp úr
sófanum. Þessi lélega þátttaka segir manni að
kjósendur vilji láta nálgast sig sem vitibornar
Píratar á siglingu: Póstmódernísk fylking sem vill brjóta
gamalt fyrirkomulag niður til að setja það saman á nýjan
leik samkvæmt formúlum tölvuleikjanna án þess þó að vita
hvað í því felst fyrir raunheiminn.
Þó er til einfaldari leið og kostnaðar-
minni sem líklegri er til að draga úr
umsvifum ríkisins. Hún felst í að fækka
verkefnum þess og draga úr útgjöldum.
Ekkert í grunnstefjum Pírata bendir
til að það sé á planinu.