Þjóðmál - 01.09.2015, Qupperneq 26
24 ÞJÓÐMÁL hausthefti 2015
sem á að tryggja allt milli himins og jarðar. Lág-
marks framfærslu, afþreyingu og menntun fyrir
alla, viðeigandi húsnæði sem ríkið á að taka,
að því er virðist, til afnota fyrir „þurfandi“ með
góðu eða illu. Og til að tryggja frið um aðgerð-
irnar leggja Píratar til að „[a]fnema [...] hugtakið
„bótakerfi’”.” Það vill segja, að þegar ekki er
lengur um að ræða að tilfærslan sé form bóta,
svo óskiljanleg sem það hugtak er þegar stærsti
hluti þjóðarinnar er á einhvers kona bótum,
þá er tilfærslan bara réttmæt dreifing auðsins.
Þetta orwellska newspeak tröllríður umræðunni
nú um stundir. Til að toppa gömlu kommana
sem nú kalla sig Vinstri-græn, sem fyrir aðeins
liðlega ári síðan lögðu fram frumvarp til laga
um lágmarkslaun (Lilja Rafney Magnúsdóttir,
Steingrímur Sigfússon og með þeim í slagtogi
Birgitta Jónsdóttir nú kapteinn Pírati), gera
Píratar nú kröfu um að allir njóti lágmarksfram-
færslu. Þessi krafa er af sama meiði og lág-
markslaunin enda aðkallandi eftirfylgni þegar
atvinnuleysi lágmarkslaunanna fer að bíta.
En svo undarlegt sem það má virðast þá gera
Píratar sér ekki grein fyrir að nú þegar njóta allir
landsmenn lágmarksframfærslu, þ.e. lágmarks-
launa eða lágmarksbóta. Það er hinsvegar
ekkert að því að Píratar hafi það að markmiði að
hækka framfærsluviðmiðin. Þeir hafa t.d. núna
gullið tækifæri til að láta að sér kveða í þeim
málum með sinn mann í borgarstjórn. Mættu
þeir t.d. stinga því að borgarfulltrúanum að
lækkun útsvars myndi svo sannarlega koma
þeim tekjulægstu vel. Eins mætti inna borgar-
stjórann eftir kosningaloforði hans um gífur-
legar framkvæmdir í félagslega íbúðakerfinu.
En síðustu fregnir af þeim vettvangi eru að
félagslegum leiguíbúðum hefur fækkað um
27 frá árinu 2010 þrátt fyrir kosningaloforð
borgarstjórans um fjölgun sem svarar 100
félagslegum íbúðum á ári frá 2010-2014. Loforð
sem enn er falið upp í jakkaermi borgarstjórans.
Það gleymdist nefnilega að taka fram að hann
ætlaði öðrum að standa undir kostnaði við
ofrausn sína. Má þakka skeleggum fulltrúum
Framsóknarflokksins fyrir hversu iðnir þeir eru
við að upplýsa almenning um snákaolíuna sem
núverandi meirihluti smurði á kosningaloforð
sín við síðustu og þar síðustu borgarstjórnar-
kosningar.
Barnslega falleg atvinnustefna
Atvinnustef Pírata er einfalt. Það felst í því að
koma umheiminum í skilning um hverslags
snillingar búa á Íslandi og hve vel þeir séu
netvæddir. Í krafti þess eiga atvinnutilboðin að
streyma inn svo að öll þjóðin geti setið sveitt
við tölvur sínar. En þar sem þeir sjá framá að
þessi ofuruppgötvun geti tekið tíma þykir þeim
réttast að bregðast strax við og stytta vinnu-
vikuna um 12.5% í einum rykk. Val um að stytta
hana enn frekar ef ekki rætist úr verkefnum
er í option pakkanum. Enginn skal þó lækka í
launum og mun Stóri Bróðir eiga að fylgjast vel
með því. Aðrir atvinnuvegir eru ekki tilnefndir
og varð maður hugsi yfir hver ætti að sjá um
allt hitt. En Píratar leyna á sér. Með því að lýsa
sig fjölmenningarsinna og kalla eftir óheftum
innflutningi flóttafólks megi auka fjölbreytni
starfa í samfélaginu. Fjölmenning er fínt orð
yfir aðflutt vinnuafl í störf sem innfæddir nenna
ekki lengur að sinna; fólk í fiskvinnslu og öðrum
þjónustustörfum. Það er eitthvað óendanlega
krúttlegt við þessa einfeldni himinblámans
sem umlykur Píratana. Trú þeirra á að öll þjóðin
geti leikið á lyklaborð sér til framfærslu er svo
barnslega falleg. Einhvers konar aldingarðurinn
Eden, hér og nú.
En svo gerðist það einn dag að Píratar
vöknuðu upp við veruleikann; hrjúfan og
kaldann. Það gerðist þegar fögru orðin og
hugmyndirnar á spjallborðinu keyrðu á
steinsteyptan vegg raunheimsins. Áreksturinn
olli stórfelldu tjóni á ímynd hreinleikans.
Þannig fauk gagnsæið í maí síðastliðnum,
þegar Píratinn í borgarstjórn greiddi atkvæði
gegn auknu gagnsæi í skólamálum foreldrum
til handa. Hið háleita gagnsæi, sem átti að
En svo gerðist það einn dag að Píratar
vöknuðu upp við veruleikann; hrjúfan og
kaldann. Það gerðist þegar fögru orðin
og hugmyndirnar á spjallborðinu
keyrðu á steinsteyptan vegg raun-
heimsins. Áreksturinn olli stórfelldu
tjóni á ímynd hreinleikans. Þannig fauk
gagnsæið í maí síðastliðnum, þegar
Píratinn í borgarstjórn greiddi atkvæði
gegn auknu gagnsæi í skólamálum
foreldrum til handa. Hið háleita gagnsæi,
sem átti að vera þríheilagt með
gagnrýninni hugsun og lýðræðiskröfunni
keyrði þarna beinustu leið útaf.