Þjóðmál - 01.09.2015, Side 28

Þjóðmál - 01.09.2015, Side 28
26 ÞJÓÐMÁL hausthefti 2015 laganna haldi þeir enn fast við stefnu sína að „[standa] áfram með þeim ríkjum sem við höfum alltaf staðið með.“ Kveikjan að frumvarpi Pírata var viðurstyggi- leg árás á starfsfólk skrifstofu franska viku- blaðsins Charlie Hebdoe í París sl. janúarmánuð, þar sem morðóðir íslamistar myrtu fjölda manns vegna meints guðlasts. Í grunninn beindist árásin þó að tjáningarfrelsinu í öllum sínum myndum. Það má segja Pírötum til hróss að þeir höfðu áður gert tilraun til að aflétta refsiákvæði um fangelsisdóm af fleiri greinum almennra hegningarlaga svipaðs eðlis, en orðið frá að hverfa. En gott og vel, samþykkt frumvarps Pírata felur í sér að nú skal enginn lengur sæta sektum eða fangelsi samkvæmt 125. gr. hafi sá hinn sami leyft sér að draga dár að eða smána trúarkenningar [.. ] löglegs trúarbragðafélags. En er það svo? Í yfirferð sinni komst allsherjar- og menntamálanefnd að þeirri einróma niðurstöðu að grein 233 í almennum hegningarlögum komi fyllilega í stað 125. greinar og því enginn skaði skeður að fella hana úr gildi. Þessi mikli sigur Pírata fyrir hönd frjálsrar tjáningar var því varla sigurvímunnar virði. Sigríður Á Andersen, þingmaður Sjálfstæðis- flokksins hreyfði nýlega við þessu máli í pistli í Morgunblaðinu, þ.s. hún spurði hvers vegna ekki hafi komið til skoðunar að afnema líka 233. gr. a. en þar segir: „Hver sem opinberlega hæðist að, rógber, smánar eða ógnar manni eða hópi manna með ummælum eða annars konar tjáningu, svo sem með myndum eða táknum, vegna þjóðernis, litarháttar, kynþáttar, trúarbragða, kynhneigðar eða kynvitundar, eða breiðir slíkt út, skal sæta sektum eða fangelsi allt að 2 árum.“ Fyrsta grein þessara laga þar sem segir að hver, „sem hefur í frammi hótun um að fremja refsi- verðan verknað, og hótunin er til þess fallin að vekja hjá öðrum manni ótta um líf, heilbrigði eða velferð sína eða annarra, þá varðar það sektum …1) eða fangelsi allt að 2 árum“ ætti að duga ágætlega til að verja hvern sem er fyrir slíkum hótunum. Að móðgast eða finnast einhver lítillækka sig hlýtur alltaf að vera huglægt mat hvers einstaklings og ætti því ekki teljast til refsiverðra glæpa. Í samfélagi sem vill kenna sig við jafnrétti ætti grein 233. a. að vera að mestu óþörf. Það mætti hins vegar skoða hvort róg- burður, þ.e. álognar sakir ætti ekki að geta staðið sem sjálfstæð grein innan 233. greinarinnar. Lög um ófrægingar- eða haturs orðræðu gagnvart einstökum hópum fólks hafa verið að tínast inn í lagabálka í flestum löndum hins Vestræna heims síðan stuttu eftir síðari heimsstyrjöldina þegar þörfin fyrir vinnuafl til uppbyggingar var hvað mest. Tilurð þeirra má má rekja til nokkurra alþjóðlegra sáttmála um mannréttindi auk borgaralegra- og pólitískra réttinda (s.s. ECHR, CERD og ICCPR)1. Miða allir þessir sáttmálar að því að setja tjáningarfrelsinu skorður. Reyndin hefur þó verið sú að aðeins sum þessara réttinda eru virk og þá aðeins fyrir afmarkaða hópa. Enn er í flestum Evrópu- löndum refsilaust að hæða og hóta kristnu fólki og gyðingum útrýmingu þótt finna megi undantekningar frá þeirri reglu. Og regluverkið er furðu flókið. Franski fatahönnuðurinn John Galliano var t.d. dæmdur fyrir andgyðingleg ummæli um nafngreint fólk árið 2011 og danski leikstjórinn Lars von Trier var stimplaður persona non grata í Cannes fyrir andgyðingleg ummæli sama ár. Víðast hvar í Evrópu mega múslímar þó hóta gyðingum tortímingu. Í Bretlandi er það lögbrot að bera kristin trúar- tákn á sumum opinberum stofnunum, en ekki að klæðast al-khimār eða shaylah slæðum af trúarástæðum. Víða í Evrópu eru gyðingar hættir að ganga með kippah (kollhúfur) sínar af ótta við árásir. Þrátt fyrir skýr ákvæði um trúfrelsi 1 European Convention on Human Rights (ECHR), Inter- national Convention on the Elimination of All Forms of Racial Discrimination (CERD), International Covenant on Civil and Political Rights (ICCPR) Lög um ófrægingar- eða haturs orðræðu gagnvart einstökum hópum fólks hafa verið að tínast inn í lagabálka í flestum löndum hins Vestræna heims síðan stuttu eftir síðari heimsstyrjöldina þegar þörfin fyrir vinnuafl til uppbyggingar var hvað mest . Tilurð þeirra má má rekja til nokkurra alþjóðlegra sáttmála um mann- réttindi auk borgaralegra- og pólitískra réttinda (s.s. ECHR, CERD og ICCPR). Miða allir þessir sáttmálar að því að setja tjáningarfrelsinu skorður. Reyndin hefur þó verið sú að aðeins sum þessara réttinda eru virk og þá aðeins fyrir afmarkaða hópa.

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.