Þjóðmál - 01.09.2015, Blaðsíða 30
28 ÞJÓÐMÁL hausthefti 2015
Flokkur án æsku er flokkur án framtíðar. Þetta
eru orð sem útskýra sig sjálf, orð sem bergmála
aftast í hausnum á sjálfstæðismönnum þegar
þeir sjá dreifingu fylgis í Capacent könnunum.
Flokkurinn sem eitt sinn hafði þá sérstöðu
að vera eini flokkurinn sem gat gert tilkall
til fylgis ungs fólks er nú jaðarflokkur meðal
ungra kjósenda, sem flestir vilja kjósa Pírata, en
samkvæmt könnunum njóta þeir 55% fylgis hjá
kjósendum yngri en þrjátíu ára.
Forystumenn Sjálfstæðisflokksins á þingi og
í borgarstjórn hafa fá svör á hraðbergi þegar
þeir eru spurðir um ástæður fylgishrunsins. Þeir
benda á Valhöll. Svo á Heimdall. Síðan á gras-
rótina. Að lokum verða þeir svo ringlaðir af því
að hafa bent í allar áttir, að þeir þagna og vona
að næsta skoðanakönnun verði betri. Þegar það
rætist ekki halda þeir í vonina um að eiga 2-3%
fylgi „inni“ á kjördegi, enda mætir ungt fólk verr
á kjörstað en gamla góða kjarnafylgið, sem þó
fer þverrandi með hverju árinu.
Sjálfstæðisflokkurinn mælist með tæplega
15% fylgi á höfuðborgarsvæðinu hjá kjósendum
á aldrinum 18-39 ára. Fylgishrunið er því ekki
einungis bundið við fartölvukynslóðina sem er
í háskóla.
Hrunið er einnig meðal fólks sem hefur komið
upp fjölskyldu og mætir í vinnuna frá níu til
fimm. Þessi hópur, kjósendur á aldrinum 18-39
ára, er stór meirihluti þjóðarinnar. Þetta fólk
hefur ekki trú á því að Sjálfstæðisflokkurinn sé
sá flokkur sem er best til þess fallinn að
tryggja þeim góða framtíð.
Fylgishrunið meðal ungs fólks jókst verulega
á árunum eftir hrun. Það verður hins vegar ekki
útskýrt með því að benda á eitt vandamál eða
einn sökudólg. Ef vandamálið væri svo einfalt
þá væri ekki um vandamál að ræða, heldur
frekar misfellu sem aðeins þyrfti að slétta. Þrátt
fyrir að vandinn sé margslunginn og djúp-
stæður, þá er ég sannfærður um að Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur mörg tækifæri ef hann snýr
aftur til uppruna síns, sem borgaralegur og
frjálslyndur stjórnmálaflokkur.
Ingvar Smári Birgisson
Flokkur án æsku