Þjóðmál - 01.09.2015, Blaðsíða 32
30 ÞJÓÐMÁL hausthefti 2015
fólk er ekki á sama máli. Allt eru þetta málefni
sem Heimdallur hefur talað um svo árum skiptir,
en boðskapurinn fallið í grýttan jarðveg meðal
þingmanna Sjálfstæðisflokksins með örfáum
undantekningum.
Það er kominn tími til að Sjálfstæðisflokkurinn
endurheimti fyrri ímynd sína sem frjálslyndur,
borgaralegur og framsækinn flokkur. En til þess
að það sé mögulegt, verður hann að hafa þing-
menn sem trúa á grunngildi Sjálfstæðisflokksins,
gildin um einstaklings- og verslunarfrelsi, og
eru í stjórnmálum vegna hugsjóna og láta ekki
stjórnast af hversdagslegum pragmatisma og
embættismennsku.
Frjálshyggjumenn hafa
líka blæðandi hjörtu
Frumvarp sem heimilar fólki að leigja út bílinn
sinn á ekki einungis að vera rökstutt í sjónvarps-
fréttum með því að „eigið fé“ fólks sé betur nýtt
verði lagafrumvarpið samþykkt. Frekar ætti
þingmaðurinn að útskýra að honum finnist
sjálfsagt að fólk geti leigt út bifreiðina sína án
þess að þurfa að príla í gegnum reglugerðar-
frumskóg, sem þjónar fyrst og fremst stórum
fyrirtækjum sem eiga auðvelt með að hoppa
yfir þær hindranir sem ríkið setur. Eigi frelsis-
stefnan að eiga sér einhverja von, þá verður
hún að vera rökstutt þannig að venjulegt fólk
geti samsamað sig við hana. Því má nefnilega
ekki gleyma að frelsi er mannúðarstefna. Engin
önnur stefna er betur til þess fallin að bæta kjör
almennings, og á þeirri forsendu þarf að sækja
fram á við og sannfæra fólk að í frelsinu felist
tækifæri og lausnir við þeim vandamálum sem
ríkið hefur skapað með afskiptum af markaðnum.
Skýrt dæmi um þetta er húsnæðis-
markaðurinn í Reykjavík, þar sem velmeinandi
en íþyngjandi byggingareglugerðir ýta hús-
næðisverði upp samhliða tilbúnum lóðaskorti í
boði borgarinnar.
Um leið og fólk finnur að kjörnir fulltrúar tala
af sannfæringu og frá hjartanu, sannfærist það
um að þeir séu í pólitískum störfum á eigin
forsendum. Þannig stjórnmálamenn er hægt að
treysta – og kjósa á Alþingi og í sveitarstjórnir.
Við megum ekki eftirláta jafnaðarmönnunum
manngæskuna. Það er of hættulegt.
Er það hlutverk Heimdallar
að sannfæra unga kjósendur?
Sumir af þeim kjörnu fulltrúum, sem síst ná til
ungs fólks, telja það vera verk ungliðahreyfing-
arinnar að ná til ungra kjósenda. Þeir fría sig
allri ábyrgð og kenna ungliðahreyfingunni um
fylgistapið. Ef meiri bjór væri á boðstólum og
skemmtilegra fólk í stjórn Heimdallar, þá væri
flokkurinn á grænni grein, segja þeir sumir. Ég
hef vissra hagsmuna að gæta gagnvart þessari
gagnrýni, sem fyrrverandi formaður Heimdallar,
enda finnst mér hún missa marks. Vissulega
geta skemmtilegir og fjölbreyttir viðburðir
laðað fleira ungt fólk að starfi Sjálfstæðisflokks-
ins. En þegar öllu er á botninn hvolft, þá eru
stjórnmálamenn sem geta ekki náð til kjósenda
á aldrinum 18-39 ára, ef til vill ekki mjög góðir
stjórnmálamenn. Væri það boðlegt ef ég, 22
ára, segðist ekki geta náð til aldurshópsins
35-60 ára? Ron Paul og Bernie Sanders, báðir
jaðarþingmenn í Bandaríkjunum, njóta
gífurlegs fylgis hjá ungu fólki þrátt fyrir að vera
á áttræðisaldri. Einu pólitísku vopnin sem þeir
hafa þurft til að ná til ungs fólks er pólitísk sann-
færing. Sömu lögmál gilda á Íslandi.
Kapphlaup vinnast ekki með því að elta and-
stæðingana og draga þá niður í forarpyttinn,
heldur með því spyrna fótunum í jörðina og
horfa fram á við. Það á líka við um hið pólitíska
kapphlaup, sem Sjálfstæðisflokkurinn er ekki að
vinna í dag.
Eigi frelsisstefnan að eiga sér einhverja
von, þá verður hún að vera rökstutt þannig
að venjulegt fólk geti samsamað sig við
hana. Því má nefnilega ekki gleyma að
frelsi er mannúðarstefna. Engin önnur
stefna er betur til þess fallin að bæta kjör
almennings, og á þeirri forsendu þarf að
sækja fram á við og sannfæra fólk að í
frelsinu felist tækifæri og lausnir við þeim
vandamálum sem ríkið hefur skapað
með afskiptum af markaðnum.
Ron Paul og Bernie Sanders, báðir
jaðarþingmenn í Bandaríkjunum, njóta
gífurlegs fylgis hjá ungu fólki þrátt fyrir
að vera á áttræðisaldri. Einu pólitísku
vopnin sem þeir hafa þurft til að ná til
ungs fólks er pólitísk sannfæring. Sömu
lögmál gilda á Íslandi.