Þjóðmál - 01.09.2015, Qupperneq 36
34 ÞJÓÐMÁL hausthefti 2015
Fyrir skömmu hlakkaði í dömu sem sagði við
mig að nú væri bara komið að skuldadögunum
fyrir nýlendustefnu okkar. Þetta er vitleysa
reist á vanþekkingu á sögunni og ber auk þess
vott um sektarkennd í bland við sjálfspyntingu
sem alið er á í menntakerfinu. Jafnvel þó þetta
væri rétt kemur það ekki að neinu gagni við
úrlausn hinna óviðráðanlegu vandamála sem
fólksstraumurinn og aðgerðarlausir stjórn-
málamenn skapa. Það má ef til vill segja okkur
„ábyrg“ fyrir offjölgun fólks í Mið-Austurlöndum
og Norður-Afríku í þeim skilningi að hinar
stórstígu framfarir í heilbrigðismálum megi
rekja til evrópsku nýlenduveldanna. Áhrifin
má meðal annars greina í hinum heilbrigðu og
sterkbyggðu ungu körlum sem eru í fylkingar-
brjósti þeirra sem við sjáum nú koma.
Með öðrum orðum, hér er ekki um að ræða
þjóðflutninga eða flóttamenn í hefðbundnum
skilningi. Hér er um það að ræða að andstöðu-
laust sýna Evrópumenn undirgefni gagnvart
fólki með framandi menningu sem á ekki heima
í Evrópu en vill gjarnan njóta ávaxtanna af dugn-
aði og sköpunarmætti Evrópumanna.
Sé málum í raun þannig háttað að Evrópu-
menn séu um það bil að fremja sameiginlegt
sjálfsmorð liggur beint við að spyrja hvers
vegna þeir hristi ekki bara af sér slenið og geri
ráðstafanir til hindra þær hörmungar sem skella
á þjóðum Evrópu áður en langt um líður.
Fölsk sektarkennd elítunnar, gildahöfnunin,
barnaskapurinn og söguvanþekkingin hafa
þegar verið nefnd. Rannsókn á hinni óttalegu
þróun í Svíþjóð bætir vænum efnivið í svarið.
Svíþjóð hefur sérstöðu en sænsku veikinnar
verður vart í öllum (vestur-) evrópskum lönd-
um. Í Svíþjóð hefur vanhelgu bandalagi frómra
stjórnmálamanna og vægðarlausra fjölmiða
(gagnvart Svíum) tekist að spenna íbúana í
heljargreipar sínar, þeir horfa nú möglunarlaust
á fyrrum vel skipulagt þjóðfélag sitt breytast í
samfélag þar sem enginn getur lengur talið sig
öruggan.
Nýleg aftaka fyrir opnum tjöldum án dóms
og laga [í IKEA-verslun 10. ágúst 2015] á konu
og syni hennar er ekki annað en síðasta drama-
tíska dæmið um sænska ástandið.
Svipaðir hlutir gerast í Danmörku, Hollandi,
Frakklandi og Englandi. Í Frakklandi tryggja
mörg þúsund sérþjálfaðir lögreglumenn röð og
reglu á strætum og torgum, þeir sporna gegn
ofbeldi og hryðjuverkum. Á Englandi undirbúa
yfirvöld sambærilegar aðgerðir. Borgarastríðið
í Evrópu er sem sagt fyrir löngu hafið, það er
hluti þriðju heimsstyrjaldarinnar milli Evrópu/
Vesturlanda og árásargjarnra hryðjuverkasam-
taka múslíma.
Í raun ætti engan að undra þótt mið-austur-
lenskt ástand skapist í evrópskum borgum eftir
innflutning á milljónum múslíma frá Mið-Aust-
urlöndum og Norður-Afríku.
Evrópska elítan og herskari hennar af
„sérfræðingum“ og fulltrúar góðmennsku-
iðnaðarins trúa þó enn að þeir geti talað eða
keypt (að sjálfsögðu á kostnað skattgreiðenda)
sig frá vandanum með enn fleiri sjóðum, enn
fleiri uppeldisfræðingum, enn meiri „samruna“.
Við erum vitni að því sem aldrei fyrr hefur gerst
í sögunni: sjálfviljugri uppgjöf siðmenningar.
Greinin birtist upphaflega
í Jyllands-Posten 22. ágúst 2015.
Mynd: Freedom House