Þjóðmál - 01.09.2015, Side 58
56 ÞJÓÐMÁL hausthefti 2015
andliti sem fortíð hans sýndi“, eins og hún
orðaði það. Hún taldi einnig að staða Svandísar,
dóttur Svavars, í þingflokknum gæti torveldað
hreinskiptnar umræður um málið.
Guðfríður Lilja gekk því á fund Steingríms,
reifaði áhyggjur sínar og velti því upp hvort
ekki væri hentugra að fá til verksins mann með
alþjóðlega reynslu og fjarlægan flokkakerfinu.
Henni varð ekki að ósk sinni og það átti eftir
að þyrma yfir hana þegar hún komst að því að
pólitískur aðstoðarmaður Steingríms, Huginn
Freyr Þorsteinsson, var starfsmaður Icesave-
nefndarinnar og því sameiginlegur aðstoðar-
maður þeirra Svavars og Steingríms, líkt og
fram kemur í bók Sigurðar Más Jónssonar um
Icesave-málið.
Svavar hafði heldur ekki sinnt starfinu lengi
þegar Steingrímur J. lét svo um mælt að hann
þættist fullviss um að hann væri „að gera góða
hluti“ og bætti við: „og ég skal lofa þér því að
það er í sjónmáli að hann landi, og hans fólk,
glæsilegri niðurstöðu fyrir okkur“. Steingrímur
dró þessi ummæli til baka nokkrum dögum
síðar og sagði þau hafa verið óheppileg.
Kosningasigur
Alþingiskosningarnar í aprílmánuði 2009
gerbreyttu pólitísku landslagi, enda tímarnir
óvenjulegir í meira lagi og kjörtímabil hafði
ekki verið rofið síðan 1979. Aldrei fyrr höfðu
jafnmargir nýir þingmenn sest á Alþingi að
loknum kosningunum, eða alls 27 talsins. Í
fyrsta skiptið frá stofnun lýðveldis var Sjálf-
stæðisflokkur ekki stærstur á þingi, hann galt
afhroð og þingflokkurinn skrapp saman í
aðeins 16 menn. Í kosningum tæpum tveimur
árum fyrr náði flokkurinn inn 25 mönnum.
Sjálfstæðisflokkurinn hafði þó gengið í gegnum
mikla endurnýjun með nýjum formanni, Bjarna
Benediktssyni. Kosningabarátta flokksins var
sú máttlausasta sem um gat, enda flokkurinn
í sárum eftir miklar ófarir. Samfylkingin varð
nú stærst þingflokka, fékk alls 20 menn kjörna.
Þetta var langmesti kosningasigur flokksins frá
stofnun og mesta fylgi sem vinstriflokkur hafði
nokkru sinni hlotið í þingkosningum hérlendis.
Steingrímur J. þakkar sér þennan kosningasigur
Samfylkingar og segir Vinstri græna hafa leyst
Samfylkinguna úr gíslingu, eins og hann orðar
það í bókinni Frá hruni og heim og bætir við:
„Þau eiga okkur mikið að þakka í þeim
efnum. Það er enginn vafi á að útkoma þeirra
í kosningunum 2009 er algjörlega því að
þakka að við björguðum þeim út úr samstarf-
inu við Sjálfstæðisflokkinn. Þau fengu á sig
nýjan svip með því að vera komin í samstarf
við okkur með Jóhönnu í forystu og sluppu
ótrúlega vel frá því að hafa verið í stjórn með
Sjálfstæðisflokknum þegar allt hrundi. Aftur
á móti var misjöfn hamingja með samstarfið
við okkur í Samfylkingunni. Í baklandi flokks-
ins var fólk sem ekki vildi vinna til vinstri.“
Fjórtán þingmenn komu í hlut Vinstri
grænna. Þar með hafði myndast naumur þing-
meirihluti þessarra tveggja flokka og engin þörf
lengur á stuðningi Framsóknarflokks, sem fékk
níu menn kjörna.
Nýr flokkur sem spratt upp úr mótmælunum,
Borgarahreyfingin, hlaut fjóra þingmenn.
Einsýnt var að þeir flokkar sem myndað höfðu
minnihlutastjórnina héldu áfram samstarfi en
nýja stjórnin gerði ekki með sér eiginlegan
stjórnarsáttmála, slíkur var ágreiningur
Kosningaauglýsing Vinstri grænna vorið 2009. Flokkurinn
var með byr í seglum og fékk 14 þingmenn kjörna.