Þjóðmál - 01.09.2015, Page 59

Þjóðmál - 01.09.2015, Page 59
ÞJÓÐMÁL hausthefti 2015 57 flokkanna. Þess í stað var samin samstarfs- yfirlýsing, en hún var ekki kynnt þingmönnum Vinstri grænna fyrr en á flokksráðsfundi þeirra 10. maí, en síðar sama dag skyldi ríkisstjórnin taka við völdum. Samstaða Vinstri grænna brestur Sjaldgæft er að Alþingi starfi mikið um sumar- tímann, en sumarþingið 2009 varð hið lengsta í manna minnum og meira eða minna lagt undir Icesave-málið. Mikill titringur varð innan Vinstri grænna vegna málsins og urðu samskipti þeirra Steingríms J. og Ögmundar stirð. Samningur Svavars tók miklum breytingum og inn í hann var bætt efnahagslegum og lagalegum fyrir- vörum. Lögin voru loks samþykkt á Alþingi hinn 28. ágúst með atkvæðum allra stjórnarþing- manna. Fyrirvararnir féllu í grýttan jarðveg hjá Bretum og Hollendingum og duldist engum lengur hvernig stjórnvöld beggja ríkja höfðu notað Alþjóðagjaldeyrissjóðinn til að kúga Íslendinga. Því var haldið fram á þessum tíma að réttast hefði verið fyrir íslensk stjórnvöld að slíta viðræðum um Icesave þar til þessari misnotkun á Alþjóðagjaldeyrissjóðnum lyki. Forystumenn ríkisstjórnarinnar voru þó ekki til í að ganga svo langt, þvert á móti. Á opnum fundi Samfylkingarinnar hinn 30. september 2009 lét Jóhanna Sigurðardóttir svo um mælt að ríkisstjórnin væri í viðræðum við Breta og Hollendinga um breytingar á fyrirvörum Alþingis, svo þær þjóðir myndu láta af þrýstingi sínum á Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Jóhannes Þór Skúlason, einn forsprakka InDefence-hópsins, kallaði þetta „óskiljanlega þrælslund“ og bætti við: „Ríkisstjórnin er að uppfylla kröfur kúgarans til að biðja hann um að hætta að kúga sig. Í slíkri stöðu gerist alltaf það sama: Kúgarinn nær markmiðum sínum, kúgunin virkar.“ Ögmundi Jónassyni féll verulega illa að breyta ætti samþykkt málsins á þingi og segir Steingrímur í bók sinni Frá hruni og heim að Ögmundur hafi verið „órólegur og vanstilltur á þessum tíma“. Jóhanna var orðinn þreytt á ástandinu hjá samstarfsflokknum og hótaði opinberlega stjórnarslitum næðist ekki sam- staða um Icesave-málið. Sama dag og þau ummæli birtust hringdi Steingrímur í Ögmund sem svaraði ekki, en kom skömmu síðar upp í fjármálaráðuneyti til Steingríms mjög æstur og tilkynnti Steingrími að hann væri á leið niður í stjórnarráð til Jóhönnu að segja af sér. Stein- grímur kom engu tauti við hann og Jóhanna ekki heldur. Hann sagði því af sér og Álfheiður Ingadóttir, flokkshollur þingmaður Vinstri grænna, varð heilbrigðisráðherra. Ýmis fleiri mál ollu deilum innan Vinstri grænna. Ríkisstjórnin skar mjög niður fjárfram- lög til heilbrigðismála og fyrsta verk stjórnar- innar var að lækka örorkubætur. Þetta gramdist mörgu flokksfólki. Evrópumálin Evrópusambandsumsóknin var helsta ágrein- ingsefni flokkanna. Á flokksþingi Vinstri grænna í marsmánuði 2009 hafði verið samþykkt ályktun þar sem sagði að brýnt væri að fram færi opin og lýðræðisleg umræða um samskipti Íslands og Evrópusambandsins og að aðild yrði leidd til lykta í þjóðaratkvæðagreiðslu. Hér kvað við nýjan tón í stefnu Vinstri grænna, en Ögmundur Jónasson átti nokkurn þátt í að semja þessa ályktun. Vart dylst nokkrum að hér var búið í haginn fyrir áframhaldandi sam- starf Vinstri grænna og Samfylkingarinnar, en síðarnefndi flokkurinn hafði haft aðild Íslands að Evrópusambandinu á dagskrá frá árinu 2003. Ögmundur hafði verið fulltrúi Vinstri grænna við fyrstu formlegu þreifingar milli stjórnarflokk- anna um miðjan janúar 2009. Steingrímur var kunnur af andstöðu við aðild Íslands að sambandinu og hafði í blaðagrein árið 2002 farið hörðum orðum um þær búsifjar sem finnskur landbúnaður hefði orðið fyrir vegna inngöngu í sambandið. Afstaða Stein- gríms hafði ekkert breyst þegar komið var fram á árið 2009 og aðeins fjórum dögum áður en minnihlutastjórnin tók við völdum sagði hann Evrópusambandsaðild ekki á dagskrá. Jón Bjarnason, fyrrverandi þingmaður Vinstri grænna, hefur látið þess getið í samtali við höfund að hreina vinstristjórnin hafi í reynd verið framhald af minnihlutastjórninni og marg- vísleg málefni ekki afgreidd gagnvart þingflokki Vinstri grænna. Að mati forystumanna flokksins var talið óþarft að ræða málin upp á nýtt – áfram skyldi haldið þar sem frá var horfið. Vinstri grænir hafi gengið til ríkisstjórnarsamstarfs á for- sendum Samfylkingarinnar og þar hafi Evrópu- sambandsumsóknina borið langhæst. Í huga Jóns Bjarnasonar og fleiri þingmanna Vinstri grænna kom aldrei til greina að Evrópu-

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.