Þjóðmál - 01.09.2015, Síða 77
ÞJÓÐMÁL hausthefti 2015 75
Norður-Kóreu og Íran. Mark Sismey-Durrant
(2014) telur, að hinum óvæntu og harkalegu
aðgerðum gegn Íslendingum hafi verið ætlað
að leiða athyglina frá því, að breska ríkið var
þessa sömu daga að moka stórfé í gjaldþrota
banka til að halda þeim í rekstri.
Endurskoðunarfyrirtækið Ernst & Young var
fengið til að annast skiptameðferð Heritable
Bank. Starfsmenn þess og breska fjármálaeftir-
litsins komu á vettvang fullir grunsemda um, að
í bankanum hefði ýmislegt misjafnt farið fram,
en eftir að þeir höfðu kynnt sér bókhald hans,
breyttist viðhorf þeirra og þeir urðu miklu vin-
samlegri (Sismey-Durran, 2014). Skiptaráðendur
ákváðu að selja ekki eignir strax, þar sem verðið
væri mjög lágt. Þeir fengu £20 milljóna lán hjá
austurríska bankanum BAWAG (Bank für Arbeit
und Wirtschaft) til að bæta úr lausafjárskorti
og urðu vegna árferðisins að greiða háa vexti
og ríflega þóknun fyrir. Það lán var greitt aftur
eftir nokkra mánuði. Flestum starfsmönnum var
sagt upp (Ernst & Young, 2009a). Skiptin gengu
vel. Í júlí 2009 höfðu allar forgangskröfur verið
greiddar. Allar aðrar kröfur höfðu verið greiddar
í ágúst 2013, og fengust 94 pence upp í hvert
pund. Skiptaráðendur reiknuðu sjálfum sér
þóknun að upphæð £28,9 milljónir og geymdu
£39,3 milljónir í varasjóði vegna málaferla og
lokauppgjörs (Ernst & Young, 2014a). Þessar
tölur eru mjög merkilegar. Þær sýna, að Herit-
able Bank var síður en svo gjaldþrota, þegar
honum var lokað. Kröfuhafar töpuðu nær engu
á skiptameðferð hans, þótt skiptakostnaður
væri feikilegur, sex milljarðar íslenskra króna.
Í skýrslu, sem fyrrverandi bankastjórar Lands-
bankans tóku saman eftir bankahrunið, segir,
að bresk stjórnvöld hafi með aðgerðum sínum
gert banka, sem hafi verið £200–250 milljóna
virði, verðlausan (Halldór J. Kristjánsson o. fl.,
2009). Þetta mat bankastjóranna virðist ekki
vera út í bláinn, þegar litið er til þess, hversu
hátt hlutfall skulda endurheimtist við erfiðar
aðstæður, jafnframt því sem nær £30 milljónir
runnu í skiptakostnað og £40 milljónir eru
geymdar í varasjóði, samtals £70 milljónir. Víst
er, að þetta hugsanlega tap er ekkert smáfé á
íslenskan mælikvarða, 40–50 milljarðar króna.
Kaupthing Singer & Friedlander
Julius Singer stofnaði verðbréfafyrirtæki í
Lundúnum 1907. Nokkrum árum síðar gekk
Ernst Friedlander, sem var af rótgróinni
bankamannafjölskyldu í Berlín, til liðs við
hann. Í stríðinu var þeim félögum meinað að
eiga verðbréfaviðskipti vegna þýsks uppruna
þeirra, og sneru þeir þá að bankastarfsemi.
Singer & Friedlander var skráður banki árið
1920. Einn starfsmaður bankans á sjötta áratug
varð frægur, George Soros fjárfestir (Litterick,
2002). Bankinn var einn af örfáum litlum einka-
8. október beitti breska ríkisstjórnin hryðjuverkalögum gegn Íslandi. Beindist tilskipunin að Landsbankanum, Seðla-
bankanum, íslenska fjármálaeftirlitinu og ríkisstjórn Íslands. Á vefsíðu breska fjármálaráðuneytisins voru þessir íslensku
aðilar um hríð á lista um ríki og samtök, sem ákvæði hryðjuverkalaganna giltu um, ásamt Al-Kaída, Talibönum, Norður-
Kóreu og Íran.