Þjóðmál - 01.09.2015, Qupperneq 95
ÞJÓÐMÁL hausthefti 2015 93
Breyttur heimur er í
raun óbreyttur
Jón Ormur Halldórsson: Breyttur heimur. Mál og
menning, Reykjavík 2015, bls. 445.
Björn Bjarnason
Heimsmyndin breytist svo að segja dag frá
degi líti menn til þróunar stjórnmála, hermála
og efnahagsmála. Stóru drættirnir sem urðu
til eftir lok síðari heimsstyrjaldarinnar með
tilkomu Sameinuðu þjóðanna (SÞ), Atlants-
hafsbandalagsins (NATO), Evrópuráðsins,
Evrópusambandsins (ESB), Alþjóðabankans
og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins svo að nokkur
alþjóðasamtök séu nefnd móta þó enn megin-
umgjörð alþjóðamála. Innan
hennar eru hins vegar sífelldar
breytingar og jafnvel kollsteypur
eins og með hruni Sovétríkjanna
fyrir aldarfjórðungi, upplausninni
í arabaheiminum, viðskiptasókn
Kína og tilkomu nýmarkaðsríkj-
anna svo að fátt sé nefnt.
Jón Ormur Halldórsson
alþjóðastjórnmálafræðingur fjall-
ar um þessa alþjóðlegu þróun í
bók sinni Breyttur heimur sem
kom út í sumarbyrjun. Á kápu
hennar segir að bókin varpi „ljósi
á ýmsar óraflóknar og hnattrænar
átakalínur okkar tíma“ og sýni
„þær sem samhangandi og skiljanlega heild“.
Þetta er ekki lítið ætlunarverk.
Jón Ormur er stundum orðmargur í lýsingum
sínum á hinum „óraflóknu“ málum þegar hann
bregður upp mynd af álitaefnum hvort sem
hann sest í dómarasæti eða ekki. Hann nefnir
oft dæmi eða sviðsmyndir í nokkrum töluliðum
til að skýra það sem ekki verður skilgreint á
einfaldan hátt eða þegar hann getur sér til um
það sem gerast kann. Honum verður tíðrætt um
Kína án þess að geta svarað spurningunni um
hvert ráðamenn þess stefni á alþjóðavettvangi.
Nokkur vandi er að skrifa bók sem þessa án
þess að lesandanum finnist hún úrelt vegna
breytinga sem hafa orðið frá því að textinn var
festur á blað. Jón Ormur siglir fram hjá þessum
vanda með efnistökum sínum. Stundum jaðrar
afdráttarleysi hans við yfirlæti. Þá hefur margt
af því sem hann leggur mat á svo nýlega gerst
að lyktir mála eru enn óráðnar. Hefur hann haft
auga með þróun þeirra þátta alþjóðastjórnmála
sem hann lýsir eins lengi og honum var fært þar
til bókin fór í prentun.
Bókin skiptist í tíu meginkafla: Tími byltinga;
Horft á heiminn; Skipting heimsins; Heimurinn
sem einn staður; Vald í heimi átaka; Heimur
stórvelda; Vegið að skipan valdsins; Heimurinn
og Kína; Risarnir í kringum Kína; Í heimi upp-
reisnar. Þá eru heimilda- og nafnaskrár. Heims-
kort er á opnu aftast í bókinni. Það hefði orðið
lesandanum til glöggvunar að birta svæðis-
bundin landakort í meginmáli bókarinnar til
að hann áttaði sig betur á landfræðilegum
staðreyndum sem ráða miklu um
afstöðu ríkja og samskipti þeirra.
Bókin snýst að verulegu leyti
um geópólitík – landafræði og
stjórnmál.
Hverjum meginkafla bókarinnar er
skipt í fjölda undirþátta sem hver
ber eigin fyrirsögn. Auðveldar það
almennt lesturinn. Við frágang
bókarinnar hljóta að hafa vaknað
spurningar um röðun þessara
kafla. Til dæmis má velta fyrir sér
hvort kafli sem felur í sér skýringu
á hugtakinu heimsvæðing
(alþjóðavæðing eða hnattvæðing)
hefði ekki átt heima fyrr í bókinni
en á bls. 163 það hefði auðveldað
lesandanum að skilja það sem á eftir fer.
Jón Ormur setur Ísland stundum í samhengi
við það sem hann ræðir. Hann segir í framhaldi
á skýringu á heimsvæðingunni (bls. 165):
„Lítil hefð er hins vegar fyrir því í íslenskri
umræðu að setja það staðbundna í almennt
og alþjóðlegt samhengi. Í anda þeirrar
hefðar hefur umræða um heimsvæðingu
verið frekar lítil og sennilega minni en í flest-
um sambærilegum samfélögum. […]
Þegar vel er að gáð sést glöggt að jafnvel
hin sérviskulegustu og staðbundnustu mál
í íslenskri þjóðfélagsumræðu eiga sér ekki
bókadómur