Þjóðmál - 01.12.2015, Side 17

Þjóðmál - 01.12.2015, Side 17
16 ÞJÓÐMÁL vetrarhefti 2015 skýrasta dæmið um vegaframkvæmd sem hentar mjög vel í einkafjármögnun og einka- framkvæmd og má búast við að hægt væri að hefjast handa nú þegar við framkvæmd þess verkefnis. Áætlað þjóðhagslegt tap af því að hafa ekki hafist handa við Sundabraut fyrir tíu árum, þegar það stóð til, er á bilinu 12-15 milljarðar króna, samkvæmt mati GAMMA. Nefna má ýmis önnur smærri samgöngu- verkefni sem henta vel í einkafjármögnun. Þá eru fjölmörg tækifæri til staðar í tengsl- um við aðkomu einkaaðila að félagslegum innviðum. Ísland er eftirbátur landa í Vestur- Evrópu þegar kemur að fjárfestingum einkaaðila í heilbrigðisþjónustu, hjúkrunar- heimilum, og íþróttamannvirkjum. Til íhugunar fyrir opinbera aðila Möguleg aðkoma einkaaðila að samgöngu- verkefnum má hins vegar ekki verða til þess að stjórnmálamenn sjái sér leik á borði og komi verkefnum á koppinn á pólitískum forsendum. Ítrekað hefur verið bent á að forgangs- röðun samgönguframkvæmda hér á landi þurfi að taka í meira mæli mið af kostnaðar- og ábatagreiningu. Við getum til dæmis lært af Dönum í þeim efnum en danska samgöngu- ráðuneytið notast við aðferðafræði sem nefnd er TERESA til að meta forgangsröðun samgöngufjárfestinga. Í meistararitgerð Vilhjálms Hilmarssonar í hagfræði sem GAMMA verðlaunaði árið 2012 var þjóðhagslegt tap Vaðlaheiðarganga metið á að minnsta kosti 4,3 milljarða. Með kostnaðaraukum og töfum er þjóðhagslega tapið nú komið vel á sjöunda milljarð króna. Samtals má því segja að þjóðhagslegt tap af því að hafa ekki ráðist í Sundabraut en að hafa ráðist í gerð Vaðlaheiðaganga sé komið yfir 20 milljarða króna. Almennt er nauðsynlegt að löggjafinn sé hliðhollur aðkomu einkaaðila að innviðafjár- festingum og löggjöfin eða ramminn utan um slíkar framkvæmdir sé skýr og taki ekki breytingum. Nauðsynlegt er að huga almennt að innviðaumhverfinu, jafnt lagalega sem pólitískt. Reglugerðarumhverfi og stofnana- umhverfi innviðafjárfestinga þarf að vera skýrt og skattaumhverfi fyrirsjáanlegt og stöðugt, og nauðsynlegt er að móta langtíma áætlanir á vegum stjórnvalda um ný verkefni og einkavæðingu og sem og Þjóðhagslegt tap vegna Vaðla- heiðarganga er að minnsta kosti 4,3 milljarðar. Með kostnaðaraukum og töfum þá er tapið komið vel á sjöunda milljarð króna. Þjóðhagslegt tap af því að hafa fremur ráðist í gerð Vaðlaheiðaganga og látið Sundabraut sitja á hakanum er komið vel yfir 20 milljarða króna. Ítrekað hefur verið bent á að forgangsröðun samgöngu- framkvæmda hér á landi þurfi að taka í meira mæli mið af kostnaðar- og ábatagreiningu.

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.