Saga - 2015, Síða 107
ur greinilega notað lýsingar í The Prodigal Son sem leiðarvísi þegar
hann heimsótti sögusviðið.93
Rómantíkin og fortíðarþráin í skáldsögum Caines féll vel að
smekk fólks á þessum tíma. Í þeim efnum var Caine ekki aðeins
undir áhrifum frá Íslandsvininum Morris heldur einnig rithöfund-
inum og fræðimanninum John Ruskin (1819–1900), sem með
skrifum sínum hafði umtalsverð áhrif á menningarlega skynjun,
náttúrusýn og ferðamynstur Breta í öllum stéttum á ofanverðri nítj-
ándu öld og í byrjun tuttugustu aldar.94 Þær tvær skáldsögur Caines
sem gerðust að hluta til á Íslandi hafa vafalaust vakið áhuga margra
lesenda hans á landinu og ýtt undir ferðalög þangað. Nú eru Hall
Caine, skáldsögur hans og leikrit gleymd og grafin og ferðamenn
feta sig ekki lengur eftir sögusviði verka hans.
Niðurlag
Með tilkomu gufuskipa í Íslandssiglingum urðu straumhvörf í kom-
um erlendra ferðamanna til Íslands. Þá urðu skemmtiferðamenn
árvissir gestir yfir sumartímann. vegna takmarkaðra upplýsinga er
erfiðara að draga upp glögga mynd af ferðamannastraumnum eftir
1875 en á tímabilinu 1858–1875. Árin 1861 og 1862 hafa að öllum lík-
indum komið fleiri erlendir ferðamenn til Íslands en nokkru sinni
ferðamannalandið ísland 105
93 „A Short Trip to Iceland. I“, The Scotsman 10. júlí 1905, bls. 7; „A Short Trip to
Iceland. II“, The Scotsman 11. júlí 1905, bls. 5; „Stutt skemtiför til Íslands“,
Gjallarhorn 11. ágúst 1905, bls. 109–110, og einnig 18. ágúst 1905, bls. 113–114,
og 28. ágúst 1905, bls. 117–118. Greinarhöfundur getur þess að þegar hann var
staddur í Reykjavík var verið að sýna þar eitt af leikritum Hall Caines, John
Strong. Það var byggt á skáldsögunni The Christian, sem út kom 1897 og varð
geysilega vinsæl.
94 vivien Allen, Hall Caine, bls. 26, 58, 62, 68, 79 og 238; keith Hanley og John k.
Walton, Constructing Cultural Tourism. John Ruskin and the Tourist Gaze. Tourism
and Cultural Change. Ritstj. Mike Robinson og Alison Phipps (Bristol: Channel
view Publications 2010); Jan Palmowski, „Travels with Baedeker“, bls. 113–114.
Ruskin hafði einnig mikil áhrif á enska lista- og fræðimanninn W.G. Colling -
wood (1854–1932) sem kom til Íslands 1897 og málaði og teiknaði fjölmargar
myndir af íslenskum sögustöðum og landslagi. Árið 1899 skrifaði Colling -
wood, ásamt Jóni Stefánssyni fylgdarmanni sínum, myndskreytta bók um
Íslandsför sína, A Pilgrimage to the Saga-Steads of Iceland (Ulverston: W. Holmes
1899). Collingwood var lengi aðstoðarmaður Ruskins auk þess að rita ævisögu
hans. Sjá einnig um Collingwood: einar Falur Ingólfsson, Sögustaðir. Í fótspor
W.G. Collingwood ([Reykjavík]: Crymogea og Þjóðminjasafn Íslands 2010).
Saga haust 2015 umbrot.qxp_Saga haust 2004 - NOTA 26.11.2015 11:00 Page 105