Saga - 2015, Blaðsíða 155
og Gísli Pálsson rekur prýðilega í bók sinni.15 Þar gat Hans Jónatan notað
sístækkandi bókasafn verslunarstjórans til þess að mennta sig áfram og
virðist hafa unað hag sínum vel. Á Djúpavogi dvaldi hann til æviloka en
hann dó tiltölulega ungur úr hjartaáfalli árið 1827.
Jón verslunarstjóri gerði Hans að aðstoðarmanni sínum. Hans virðist
fljótt hafa náð tökum á íslensku og varð vinsæll meðal bændanna umhverfis
Djúpavog, þótti áreiðanlegur og heiðarlegur.16 Hans er getið í bók um Ísland
eftir biblíugjafarann Henderson, árið 1814, í dagbókum landmælingamanns-
ins Hans Frisaks, árið 1812 og æviminningum Gyðu Thorlacius allt frá 1803
til 1808.17
en gat Hans Jónatan verið öruggur um sig hér á Íslandi eftir dóminn í
kaupmannahöfn 1802? við skulum muna að þrælahald var ekki afnumið í
Danaveldi fyrr en 1848. Það hlýtur að hafa verið góð frétt þegar hann heyrði
að ekkjufrúin Henríetta Schimmelmann hefði andast 1816 en henni einni
hafði verið dæmt eignarhald á Hans Jónatan. einnig var það honum til gleði
að einkasonur hennar og aðalerfingi (og fyrrum leikfélagi hans) var útlægur
frá Danmörku af siðsemisástæðum eins og fyrr var getið. (Alex Frank
kemur fremur óljóst fram með sömu skýringu: andlát ekkjufrúarinnar og
útlegð sonar hennar hafi styrkt stöðu Hans Jónatans).18
Fleira gerðist merkilegt í lífi Hans Jónatans á þessum tíma. Árið 1818 dó
besti vinur hans, Jón Stefánsson verslunarstjóri. Hann skildi eftir eftir sig
stórt þrotabú en Hans Jónatan var eigi að síður settur verslunarstjóri á
Djúpavogi eftir hann.
Jens Larsen Busch andaðist 1822 og keypti þá fyrirtækið Ørum og Wulff
Djúpavogsverslunina og átti hana til ársins 1918, þegar félag í eigu bænda í
nálægum sveitum keypti verslunina og allar eigur hennar og gerði að kaup-
félagi.19
sagan um svartan þræl 153
15 Gísli Pálsson, Hans Jónatan, bls.137–139.
16 Hér er byggt á munnlegum heimildum sem bæði greinarhöfundur og afkom-
endur Hans Jónatans hafa heyrt.
17 Gísli Pálsson, Hans Jónatan, bls. 145–159. Ástæða er til þess að hrósa Gísla fyrir
að finna heimildir um samskipti Hans Jónatans og Hans Frisaks landmælinga-
manns sem ekki voru þekktar áður. Frásögn Hendersons af Hans Jónatan
hefur víða verið rakin áður. Það er vel til fundið hjá Gísla að geta samskipta
Gyðu og Hans Jónatans sem hafa legið í þagnargildi, eftir því sem ég veit best,
þótt þau komi fram í margútgefinni ævisögu Gyðu Thorlacius. Síðastnefnda
heimildin sýnir að Hans Jónatan var búinn að koma sér vel fyrir á Íslandi 1803.
18 Alex Frank Larsen, Slavernes Slægt, bls. 78.
19 Sigfús Haukur Andrésson, Verzlunarsaga Íslands 1774–1807 (Reykjavík: verzl -
unarráð Íslands og Fjölsýn 1988), bls 601. Hér leiðréttir Sigfús sígilda villu. Í
bók Þorkels Jóhannessonar, Lýðir og landshagir I (Reykjavík: Almenna bóka-
félagið 1965) er söluárið sagt hafa verið 1818. Sigfús vitnar í frum heim ildir máli
sínu til stuðnings.
Saga haust 2015 umbrot.qxp_Saga haust 2004 - NOTA 26.11.2015 11:00 Page 153