Saga


Saga - 2015, Page 183

Saga - 2015, Page 183
ernisstefnu — og þau áhrif sem þessi tengsl höfðu á boðun þjóðkirkjunnar. Í ritum fyrstu kynslóðar íslenskra nýguðfræðinga var Lúter kynntur sem frels- ishetja, enda sóttu þeir innblástur í skrif lúterskra kennismiða í Þýskalandi, um leið og þeir lögðu sig fram um að aðlaga lúterskar kenn ingar að íslenskri þjóðernisstefnu. „Í framsetningu hans“, segir Sigurjón Árni um skrif Jóns Helgasonar biskups, „mætti líkja þjóðkirkjunni við sál þjóðarinnar eða alla vega anda hennar. Þjóðkirkjan á sem slík að vera farvegur menningar hennar, en ríkisvaldsins er að axla byrðar veraldlegrar velferðar hennar“ (bls. 337). Þannig reyndi Jón að skrifa tveggjaríkjakenningu Lúters inn í íslenska þjóð - ernisorðræðu. Áherslan á Lúter rímaði þó illa við þjóðernissinnaða sögu - skoðun á Íslandi, því að þar var gjarnan litið á siðaskiptin á 16. öld sem upp- haf verstu hörmunga íslensku þjóðarinnar. Lúterskunni var þvingað upp á Íslendinga af erlendu konungsvaldi, að því að sagt var, og við siðaskiptin varð kirkjan trúr þjónn Danakonungs frekar en sjálfstæð stofnun gagnvart ríkisvaldinu. Í skrifum Jóns Aðils birtast þessi tímamót því sem táknrænt syndafall þjóðarinnar og upphaf aldalangs niður lægingartímabils hennar — um leið og síðasta íslenska kaþólska biskupnum á þessum tíma, Jóni Ara - syni, er lýst sem píslarvotti í baráttu þjóðarinnar gegn konungsvaldinu (bls. 294–295). Þetta stef varð ríkjandi í íslenskri þjóðernisorðræðu á 20. öld, um leið og farið var að líta á tíma lúterska rétttrúnaðarins, 17. og 18. öldina, sem helsta táradal Íslandssögunnar. Þá varð menningarlífið gegnsýrt af „dansk- lútersku andrúmslofti Siðbótarinnar“, skrifaði Halldór Laxness, og „okkur steypt í eymd og barberí meiren áður hafði viðgeingist í sögu landsins og riðu þar húsum málpípur lútersku heresíunnar“ (bls. 365). Annar íslenskur menningarpáfi, Sigurður Nordal, var sama sinnis, en hann taldi „að þegar upp [væri] staðið hafi siðbótinni á Íslandi fylgt meira illt en gott“ (bls. 470). Nýguðfræðin varð fyrir sterkum áhrifum frá þessari afstöðu til lútersk- unnar, segir Sigurjón Árni: „Okið sem þjóðernisstefnan íslenska tengdi við dönsk yfirráð á 17. og 18. öld var heimfært af frjálslyndu guðfræðinni á synda- og friðþægingarkenningu lúthersks rétttrúnaðar sama tímabils“ (bls. 448). Um leið verða nýguðfræðingar feimnir við að halda kenningum Lúters um ríkin tvö á loft, og nálgast lýsingar þeirra á þjóðríkinu Ísland þúsundára ríkinu í kristinni orðræðu. Fylgdu þeir þar sömu tilhneigingu og má sjá í flestum þjóðernishreyfingum, skrifar Sigurjón Árni: „ef sett er inn nafn viðkomandi þjóðríkis má rekast á fullyrðinguna „Ísland — Guðsríki“ þ.e.a.s. „X — Guðsríki“ í orðræðu flestra þjóðernisstefna“ (bls. 434). Tekur Sigurjón Árni einkum málflutning Ásmundar Guðmundssonar prófessors og bisk - ups og sr. Benjamíns kristjánssonar frá því um miðja síðustu öld sem dæmi um þetta, en hinn fyrrnefndi setti „þjóð og kristni í eitt“ (bls. 433). „vegna þess að „Guð hefir gefið okkur þetta fagra land fyrirheitanna til þess, að það verði ríki hans““, skrifaði Ásmundur eitt sinn, og var guðsríki þar með stað - sett á Íslandi. „Þessi útópíska sýn hefur á sér yfirbragð einríkiskenningar- innar“, segir Sigurjón Árni, „en athyglisvert er að Ásmundur staðsetur hana ritdómar 181 Saga haust 2015 umbrot.qxp_Saga haust 2004 - NOTA 26.11.2015 11:00 Page 181
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202

x

Saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Saga
https://timarit.is/publication/775

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.