Saga - 2015, Page 195
í hópi örfárra rita sem rata í hæsta flokk íslenskra vísindatímarita,
samkvæmt mati Háskóla Íslands.
Útgáfa. Hinn 8. ágúst 2015 varð Helgi Þorláksson, prófessor emer -
itus í sagnfræði, sjötugur. Honum til heiðurs stóðu Hið íslenska bók-
menntafélag og Sögufélag að útgáfu bókar með úrvali greina hans
um sagnfræði, söguskoðanir og skyld efni. Leiðarminni heitir ritið,
520 blaðsíðna langt og kjörgripur mikill. Frá síðasta aðalfundi hafa
komið út tvær aðrar bækur hjá Sögufélagi, báðar hnausþykkar. Fyrst
birtist Saga Pelópseyjarstríðsins. Skrásetjarinn Þúkýdídes lýsir í ritinu
hinum hörðu bardögum Aþeninga, Spartverja og annarra sem
komu við sögu þegar stríðið geisaði á fimmtu öld fyrir krists burð.
Sjálfur var Þúkýdídes frá Aþenu og tók þátt í átökunum fyrstu árin.
Sigurjón Björnsson, sálfræðingur og prófessor emeritus, þýddi verkið
og hlaut fyrir það mikið lof og verðskuldað. Saga Pelópseyjarstríðsins
er 636 blaðsíður, prýdd korti af Grikklandi til forna.
Hinn 1. október 2015 var öld liðin síðan lög um bann við hval-
veiðum tóku gildi hér á landi. Þann dag kom út hjá Sögufélagi ritið
Stórhvalaveiðar við Ísland til 1915 eftir Smára Geirsson. Í þessu mikla
verki birtist í fyrsta sinn ítarleg rannsókn á hvalveiðum við Ísland
allt frá landnámi og þar til þær voru bannaðar fyrir hundrað árum.
Gerð er grein fyrir veiðum Íslendinga en meginumfjöllunin er um
hvalveiðar erlendra manna. Bókina prýða um 470 myndir og kort
sem gæða umfjöllunina lífi og hefur drjúgur hluti myndefnisins ekki
komið fyrir sjónir Íslendinga fyrr.
Gaman er að geta þess að útgáfu ritsins var fagnað í Ráðherra -
bústaðnum við Tjarnargötu í Reykjavík. Það hús reisti á sínum tíma
Hans ellefsen, hvalveiðiforstjóri á Sólbakka við Önundarfjörð, en
síðar var það tekið í sundur, flutt suður og endurreist, að vísu með
nýju lagi.
Síðar á þessu ári koma út fimm rit til viðbótar ef að líkum lætur,
en best er að hafa ekki um þau mörg orð hér því í þessum efnum
getur alltaf brugðið til beggja vona. Þó má heita víst að fyrir áramót
birtist önnur þýðing Sigurjóns Björnssonar, nú á Helleníku eftir sagna -
ritarann Xenófón. einnig kemur út verk Borgþórs S. kjærnested,
þýðing hans á dagbókum kristjáns tíunda Danakonungs, síðasta
konungs Íslands. konungur hélt sérstaka dagbók um íslensk mál -
efni og kennir þar margra grasa. Raunar má kveða mun fastar að
orði því þarna munu birtast einstakar heimildir um stjórnmálasögu
Íslands og samband ríkjanna tveggja í veldi Danakonungs. Með
af aðalfundi sögufélags 2015 193
Saga haust 2015 umbrot.qxp_Saga haust 2004 - NOTA 26.11.2015 11:00 Page 193