Fréttablaðið - 09.04.2022, Page 35
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
LAUGARDAGUR 9. apríl 2022
Anton segir að níu af hverjum tíu sem tóku þátt í prófunum á vörunni hafi tekið eftir breytingu á hárinu eftir Nourkrin meðferðina. Fréttablaðið/Valli
Endurheimtir eðlilegan hárvöxt
„Nourkrin Woman er vinsælasta bætiefnið fyrir hár í Bretlandi og inniheldur hið byltingar-
kennda innihaldsefni Marilex sem er unnið úr sjávarríkinu,“ segir Anton Gylfi Pálsson, sölu-
stjóri sérvöru hjá ÓJK-ÍSAM sem hefur selt Nourkrin hárbætiefnið hér á landi í fjögur ár. 2
ALOE VERA
MELTING & BÓLGUR
85%VIRKTCURCUMIN
www.celsus.is
Hugmyndin er í anda Krakkaveldis.
Fréttablaðið/ErNir
sandragudrun@frettabladid.is
Barnabarinn tekur yfir Norræna
húsið helgina 9. og 10. apríl á Unga
Barnamenningarhátíð. Barna-
barinn er upplifunarverk þar sem
börn ráða öllu og stökkva í öll störf,
blanda óáfenga kokteila og leggja
fullorðnum lífsreglurnar á trúnó.
Fullorðnir geta til dæmis fengið
klippingu frá barni með skæri, látið
blanda fyrir sig hugmyndaríkan
drykk og fengið frá barninu ráð um
hvernig fullorðið fólk ætti að haga
lífi sínu, svo eitthvað sé nefnt.
Verkið er þátttökuverk þar sem
fullorðnir mæta og gefa sig á vald
yngri kynslóðarinnar í ögrandi en
öruggu umhverfi Barnabarsins.
Draumar sem rætast
Hugmyndirnar að þessum þátt-
töku-gjörningum eru þróaðar
í algjörri samvinnu við börnin
í anda Krakkaveldis og hafa að
markmiði að láta drauma þeirra
rætast. Hvað hefur þau alltaf
langað að prófa? Hvað vilja þau
gera við foreldra sína, hvernig vilja
þau „breyta“ þeim?
Aðgangur er ókeypis en nauð-
synlegt fyrir fullorðna að taka
frá miða á tix.is. Viðburðurinn
fer fram klukkan 17.00 í dag og
klukkan 15.00 á morgun og stendur
yfir í um klukkustund í hvort
skipti. Barnabarinn er framhald
lýðræðislega sviðslistaverkefnisins
Krakkaveldis, þar sem krakkar
héldu pólitíska fundi, gerðu gjörn-
inga og skrifuðu ráðamönnum bréf
í viðleitni til að breyta heiminum
til hins betra. n
Barnabar um
helgina