Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.04.2022, Qupperneq 44

Fréttablaðið - 09.04.2022, Qupperneq 44
Lögð er áhersla á að jafna kynjahlut- fallið þegar ráðið er inn í Origo og í fyrra voru ráðnir um 80 starfsmenn og voru 43% þeirra konur, markmiðið er að komast í 50%. Halla Árnadóttir Origo er upplýsingatækni- fyrirtæki sem sinnir bæði fyrirtækja- og einstaklings- markaði og býður breitt úrval vöru og þjónustu. Origo þróar eigin hugbúnað auk þess sem fyrirtækið býður vörur frá mörgum af fremstu framleiðendum heims og er endursöluaðili á viðskiptahugbúnaði. Origo hefur lagt gríðarlega mikla áherslu á þróun á eigin hugbúnaði síðastliðin ár og má þar nefna lausnir fyrir ferðaþjónustuna, heil- brigðisgeirann og mannauðs- og launalausnir. Markmið Origo er að auka fjölbreytileika meðal starfs- fólks, fjölga konum í upplýsinga- tækni og fjölga ráðningum ungra og upprennandi einstaklinga. Konur eru um 30% starfsmanna fyrirtækisins en Origo hefur unnið markvisst að því síðustu árin að auka það hlutfall og þannig fjölga konum í upplýsingatækni. Halla Árnadóttir starfar sem forstöðumaður mannauðs- og launalausna Origo. „Í mannauðs- og launalausnum þróum við og þjónustum leiðandi mannauðs- og launalausnir, til að einfalda störf þeirra sem starfa á sviði mann- auðs- og launamála og auka upplýsingagjöf til stjórnenda og starfsfólks. Með því aukum við virði tíma þeirra og sjálfstæði. Við erum bæði með SAP mannauðs- og launalausnina og Kjarna, sem er heildstæð mannauðs- og launa- lausn, hönnuð og þróuð af Origo. Kjarni samanstendur af mis- munandi kerfishlutum sem eru samtvinnaðir í eina heild. Kerfis- hlutarnir í Kjarna eru mannauður, laun, launaáætlun, ráðningar, fræðsla, frammistöðumat, við- vera, mötuneyti og dagpeningar. Lausninni fylgir líka vefviðmót og app þar sem stjórnendur og starfsfólk geta nálgast helstu mannauðs- og launaupplýsingar. Viðskiptavinir geta valið hvaða kerfishluta þeir vilja nýta, auk þess sem Kjarni býður upp á tengingar við ýmsar aðrar lausnir, svo sem Business Central, Moodup, Power BI og Active Directory auk helstu ráðninga- og viðverukerfanna á íslenska markaðnum. Mikill kostur er að hafa þessar upplýsing- ar allar í einu og sama kerfinu, eða með tengingum við önnur kerfi, til að koma í veg fyrir tvískráningu upplýsinga.“ Starfið hefur þróast Halla er viðskiptafræðingur og segir að við útskrift frá Háskól- anum í Reykjavík árið 2001 hafi hún séð fyrir sér að vinna að mannauðsmálum. „Fyrsta starfið mitt eftir útskrift var í mannauðs- deild Skeljungs og þar hófum við innleiðingu á SAP mannauðs- og launakerfi frá Nýherja, forvera Origo. Mér fannst það vera mjög skemmtilegt og spennandi ferli. Þegar mér bauðst að færa mig yfir til Nýherja árið 2004 til að vinna við ráðgjöf í SAP mannauðs- og launalausninni, ákvað ég að slá til og sé alls ekki eftir því. Starfið mitt hefur þróast mikið á þessum árum sem ég hef starfað hjá Origo. Árið 2013 var ákveðið að fara út í þróun á nýrri mannauðs- og launalausn fyrir íslenskan markað og í kjölfar- ið varð Kjarni til. Ég hef verið með vörustjórn í Kjarna frá þeim tíma og tók svo að mér forstöðumanns- hlutverk í teyminu árið 2018. Þetta er lifandi og spennandi umhverfi með frábærum samstarfsfélögum og eftir öll þessi ár hjá Origo finnst mér ég samt alltaf vera að læra eitt- hvað nýtt og skemmtilegt. Viðskiptafræðin hefur nýst mér vel, en eftir á að hyggja hefði nýst mér enn betur að taka tölvunar- fræði sem aukagrein, þar sem það stóð til boða á sínum tíma í Háskólanum í Reykjavík. Það hvarflaði aftur á móti ekki að mér á sínum tíma, líklega vegna þess að þá var svo lítið um konur í þessum geira, en ég hefði klárlega farið þá leið ef ég stæði frammi fyrir þess- ari ákvörðun í dag.“ Halla segir að konur séu um 30% starfsmanna Origo en að hlutfallið í teyminu hennar sé reyndar ólíkt þar sem þar eru konur um 70%. „Það er mjög góður andi í teyminu okkar, sem spannar breiðan ald- urshóp og ólíka einstaklinga með mismunandi bakgrunn og reynslu. Allir í teyminu eru metnaðarfullir og leggjast á eitt við að þróa gæða- vörur, með áherslu á öryggi og gott notendaviðmót.“ Lögð er áhersla á að jafna kynja- hlutfallið þegar ráðið er inn í Origo og í fyrra voru ráðnir um 80 starfs- menn og voru 43% þeirra konur, markmiðið er að komast í 50%. Konur voru hins vegar einungis 33% umsækjenda í fyrra svo það eru færri konur sem sækja um þessi störf. Öryggi, aðgengismál og gæði Unnur Sól Ingimarsdóttir vinnur sem listrænn framendaforritari í stafrænum lausnum Origo. „Þar erum við að smíða og þróa vef- lausnir fyrir alls konar fyrirtæki, allt frá fallegum og einföldum ytri vefjum yfir í f lókin innri kerfi. Við tökum þátt í stafrænum umbylt- ingarverkefnum fyrir fyrirtæki þar sem við komum að greiningu, hönnun, útfærslu og viðhaldi verkefnanna. Við leggjum mikla áherslu á öryggi, aðgengismál og gæði í okkar hugbúnaðargerð og erum öll mjög metnaðarfull þegar kemur að þessu. Ég er mjög þakklát fyrir teymið mitt í Staf- rænum lausnum. Í hópnum er mikil hvatning, góður mórall og einstakir hæfileikar. Hópurinn er einnig mjög fjölbreyttur og samanstendur af 19 körlum og 12 konum.“ Unnur Sól segist vera með ástríðu fyrir því að búa til sjarmer- andi og notendavænar veflausnir. Hún er með BSc í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík og hefur starfað sem vefforritari hjá Origo frá því hún útskrifaðist 2018. „Ég vann sem teiknari samhliða menntaskóla- og háskólanámi og sú reynsla hefur bæði nýst mér vel við þróun á góðu notendaviðmóti og í samskiptum við viðskipta- vini. Ég var í sumarstörfum sem forritari þegar ég var í tölvunar- fræðináminu og hef einnig tekið þátt í ýmsum sprotaverkefnum, en þau hafa verið innspýting fyrir for- ritunar- og skipulagshæfni mína.“ Hvers vegna heillaði upplýsinga- tæknin upphaf lega? „Ég er mikill tölvuleikjaunn- andi og raungreinanörd og upphaflega fannst mér mjög heillandi að geta unnið við að þróa tölvuleiki. Þegar leið á námið og ég fékk að kynnast mögu- leikum tölvunarfræðinnar þá minnkaði spenningurinn fyrir því að vinna við tölvuleikjagerð en ég varð gagntekin af vinnslu og framsetningu gagna á vefnum. Mig langaði að taka þátt í að gera vefheiminn sem nytsamlegastan fyrir notendur og sá svo ótal mörg tækifæri í því. Svo finnst mér bara svo ótrúlega skemmtilegt að geta blandað saman listrænu og raun- greinaeiginleikunum mínum sem framendaforritari.“ Margar kvenkyns fyrirmyndir Hvað varðar konur í upplýsinga- tækni segir Unnur Sól að alltaf séu að bætast við nýjar kvenkyns fyrirmyndir í þessum geira. „Ég sé fyrir mér að það hafi mjög jákvæð áhrif á fjölda kvenna sem sækir nám og störf í upplýsingatækni. Ég hef fengið að heyra frá konum að þær hefðu verið efins um að námið væri fyrir þær, þar sem staðal- ímynd tölvunarfræðingsins er fremur karllæg. Eitt af verkefnum Origo næstu árin er að leggja enn meira af mörkum til að hvetja ungar konur til náms í tækni- greinum, en einnig að sækjast eftir tækifærum í tæknigeiranum. Ég hef unnið með ótrúlega mörgum flottum konum í upplýs- ingatækni og mér finnst kvenlegir eiginleikar eiga alveg einstaklega vel við verkefnin. Það er svo frábært að vinna verkefni með fjölbreyttum hópi af einstaklingum og afurð- irnar verða þeim mun betri.“ ■ Áhersla lögð á að fjölga konum í upplýsingatækni Halla Árnadóttir, forstöðumaður mannauðs- og launalausna hjá Origo, og Unnur Sól Ingimarsdóttir, listrænn framendaforritari í stafrænum lausnum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK 6 kynningarblað 9. apríl 2022 LAUGARDAGURkonur í upplýsingatækni
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.