Helga Law Journal - 01.01.2021, Page 12

Helga Law Journal - 01.01.2021, Page 12
Helga Law Journal Vol. 1, 2021 Pétur Dam Leifsson 1312 að.2 Ekki hefur áður verið fjallað um viðlíka efni á íslensku.3 Við þessa söguskoðun verður jafnframt að hafa í huga að á síðari tímum hafa komið fram gagnrýnni nálganir á söguna.4 Þessari gagnrýni verður leitast við að halda einnig til haga í greininni en ekki er þó meðvituð ætlun mín að rekja þessa sögu undir tilteknu kenningarsjónarhorni. Ber ég sem kennari ekki síst þá von í brjósti að lesendur kunni í gegnum slíkt greinarkorn að öðlast frekari innsýn í sögu þjóðaréttarins og sumir fái jafnvel áhuga á því að kafa dýpra í efnið en áður. En þar sem því sleppir að fólk muni í öllu falli hafa af lestrinum nokkra skemmtun. En um allt slíkt verður víst hver að dæma um fyrir sig og við höldum þá nú af stað til móts við söguna. 2 Hugmyndir um einhvers konar alþjóðalög fyrir tíma þjóðaréttar Ekki er unnt að staðhæfa hvenær fyrst sér stað í siðmenningu mannkyns vísi að því sem við getum á einhvern hátt samsamað því sem við nú þekkjum sem þjóðarétt. Þó er vitað að leiðtogar fornþjóða, til dæmis Súmerar sem uppi voru um 4000 fyrir Krist, leituðust við að gera samninga sín á milli um ýmis efni. Elsti heillegi samningur af þessu tagi er talinn hafa verið gerður á milli Forn-Egypta og Hittíta á 13. öld fyrir Kristsburð.5 Á dögum Forn-Grikkja á 4. öld fyrir Krist er svo lagður hornsteinn að vestrænni menningu og til verða kunnuglegar hugmyndir um réttlæti og sammannlegt siðferði. Þar fór fremstur í flokki Aristóteles (385–323 fyrir Krist) sem skilgreindi manninn sem samfélagsveru í eðli sínu.6 Af því leiddu síðan frekari hugmyndir um tiltekinn óbreytanlegan eðlisrétt varðandi helstu gildi í samskiptum manna sem voru síðan þróaðar frekar áfram af Stóumönnum á 3. öld fyrir Krist og bárust svo þaðan til hugsuða Rómverja á dögum Cicero sem var uppi á öldinni fyrir Kristsburð.7 2 Alltaf má deila um hvaða einstaklinga á að leggja áherslu á í slíkri sögu. Segja má að flestir helstu fræðimenn í sögu þjóðaréttar hafi þar valið sig nokkuð sjálfir en aðra ber á góma með hliðsjón af áherslum höfundar. Ljóst er að sögusviðið hér er einkum Evrópa og nágrenni þaðan sem þjóðaréttur á ótvírætt rætur sínar að rekja en merkileg saga átti sér þó einnig stað í Asíu, síðar Suður-Ameríku og loks Afríku, sem hér verður ekki gerð skil. 3 Sjá þó grein mína og Helga Áss Grétarssonar „Húgó Grótíus — lærifaðir þjóðaréttar — æviágrip og helstu hugmyndir”, í Björg Thorarensen o.fl. (ritstj.), Páll Sigurðsson sjötugur 16. ágúst 2014 (Codex 2014) bls. 295–307. 4 Þá til dæmis með áherslu á þróun þjóðaréttar sem afleiðingu af stigvaxandi uppgangi hugmynda af meiði frjálslyndis og einstaklingshyggju í hinum vestræna heimi eða þá sem afurð sem orðið hefur til í órofa tengslum við nýlendustefnu Evrópumanna á fyrri öldum. Sjá til dæmis Martti Koskenniemi, From Apology to Utopia (Cambridge University Press 2005) einkum bls. 71–155 og Antony Anghie, Imperialism, Sovereignty and the Making of International Law (Cambridge University Press 2004) einkum bls. 13–48. 5 Sjá ágætt yfirlit um þetta o.fl. í Stephen C. Neff, Justice Among Nations: A History of Internaional Law (Harvard University Press 2014) bls. 13–14 og 36. 6 Bryan Magee, Saga heimspekinnar (Mál og menning 1998) bls. 39. 7 Gunnar Skirbekk og Nils Gilje, Heimspekisaga (Háskólaútgáfan 2008) bls. 139. Segja má að í réttarskipan Rómarréttar hafi orðið til fyrsti vísir að þeim samleik hugmyndanna sem æ síðan hefur einkennt þróun þjóðaréttar. Annars vegar gerðu hinir praktísku Rómverjar í réttarkerfi sínu ráð fyrir hinum óbreytanlega eðlisrétti (ius naturale) sem leiddi af lögmálum náttúrunnar og hafði verið litið til sem hinna æðstu laga allt frá dögum Forn-Grikkja og Stóumanna.8 Hins vegar gerðu Rómverjar sér grein fyrir því að þær grundvallarreglur fjölluðu þó ekki um öll þau hagnýtu álitaefni sem máli skiptu í sífellt margbrotnara samfélagi og þess vegna varð einnig að viðurkenna aðrar reglur sem leiddu af sérstöku eðli mannsins í náttúrunni og stóðu skör lægra en eðlisréttur. Þessar „manngerðu“ reglur til fyllingar hinum óumbreytanlega eðlisrétti skiptust síðan upp í ýmsa flokka í regluverki Rómverja. En þær reglur sem töldust hafa almennt gildi að lágmarki, þar á meðal í lögskiptum Rómverja við annarra þjóða fólk, nefndust ius gentium.9 Rómverjar höfðu því engar hugmyndir um þjóðarétt í nútímaskilningi en í samskiptum við annarra þjóða menn gilti eðlisréttur og þar sem honum sleppti reglur af meiði ius gentium. Má segja að þessar tvær af helstu réttarheimildum í Rómarrétti, eðlisréttur og ius gentium, hafi síðar í breyttri mynd lagt grunninn að því sem urðu hugmyndir um eðlisrétt og vildarrétt í þjóðarétti. Það sem þó setti strik í reikninginn er að Rómarréttur féll í gleymskunnar dá á hinum myrku ármiðöldum í Evrópu en varð svo að segja enduruppgötvaður sem fyrirmynd frá og með 11. öld.10 Í Evrópu hámiðalda var það annars öðru fremur þrennt sem hafði mest vægi í samfélagi álfunnar, a.m.k. í því samhengi sem hér skiptir máli: Í fyrsta lagi var það Páfavaldið í Vatíkaninu í Róm. Í öðru lagi var það Hið heilaga rómverska ríki keisarans sem hafði sérstaka stöðu á meðal konunga í álfunni. Í þriðja lagi var það síðan hinn óbreytanlegi eðlisréttur sem allir töldust vera bundnir af, konungar og geistlegir menn sem og aðrir, en aftur á móti var enn ekkert réttarkerfi til sem fjallaði að öðru leyti um samskipti ríkja sem slíkra.11 Fylgdi því mikið vald á þessum tímum að kunna góð skil á eðlisrétti og sú þekking lá einkum fyrir hjá reglum kirkjunnar á 13. öld með Dóminíkanann Tómas frá Akvínó (1225–1274) fremstan í flokki. Sem trúmaður, en jafnframt lærður í fræðum Aristótelesar um manninn, byggði Tómas á því að það grundvallarlögmál eðlisréttar að göfga dyggðir en forðast hið illa væri mönnum eðlislægt. En til að draga réttar ályktanir í því samhengi þyrfti þó að virkja mannlega skynsemi til að greina lögmálin sem hvorki lytu guðlegum vilja né væru skráð í hjörtu manna. 8 Hugmyndin um tvískiptingu laganna á milli eðlisréttar og mannasetninga sem stæðu skör lægra var þó einnig til svo snemma sem hjá Forn-Grikkjum og Stóumönnum, sbr. Neff (n 5) bls. 42. 9 Slíkar reglur sem giltu aðeins í innbyrðis lögskiptum Rómverja nefndust ius civile, en ius gentium reglur höfðu almennara gildi og þar á meðal í lögskiptum við útlendinga, sbr. Paul du Plessis, Roman Law (Oxford University Press 2010) bls. 88. 10 O.F. Robinson, T.D. Fergus og W.M. Gordon, European Legal History: Sources and Institutions (Butterworths 2000) bls. 23–25. 11 Neff (n 5) bls. 52. Erfitt er að útskýra stöðu keisarans og páfaveldisins á þessum tíma en líking felst e.t.v. í því að keisarinn hafi þá sumpartinn verið líkt og Evrópusambandið og páfaveldið sem Sameinuðu þjóðirnar í nútíma.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212
Page 213
Page 214
Page 215
Page 216
Page 217
Page 218
Page 219
Page 220
Page 221
Page 222
Page 223
Page 224

x

Helga Law Journal

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helga Law Journal
https://timarit.is/publication/1677

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.