Helga Law Journal - 01.01.2021, Page 39

Helga Law Journal - 01.01.2021, Page 39
Helga Law Journal Vol. 1, 2021 Pétur Dam Leifsson 4140 Greina má þó viss blæbrigði í röðum vildarréttarmanna 19. aldar á sviði þjóðaréttar eftir áherslum. Margir lögðu áherslu á þýðingu empirískrar greiningar á framkvæmd og afstöðu ríkja sem grunn að reglum, þ.e. á myndun þjóðréttarvenja. Aðrir lögðu áherslu á sameiginlegan vilja ríkja í formi samkomulags þeirra en þjóðréttarsamningar urðu æ fleiri og viðameiri á 19. öld. En nokkrir lögðu áherslu á að slíkar bindandi reglur yrðu til ef ríki undirgengjust þær og þá jafnvel einhliða. Út frá þessum ólíku áherslum risu mismunandi skólar um þýðingu ýmissa álitaefna, svo sem um muninn á þjóðréttarvenju og annars konar vana í samskiptum ríkja, um mun á réttarskapandi og réttarskipandi þjóðréttarsamningum og áherslur í sambandi við tvíeðli þjóðaréttar og landsréttar. Áherslan á ríkin og fullveldi þeirra og rétt þeirra til að viðhalda sér og á tvíeðli þjóðaréttar og landsréttar eru raunar þættir sem aðgreina sýn vildarréttar á þjóðarétt borið saman við eðlisrétt, auk þess sem samþykki ríkisins verður grundvöllur allra gildra réttarheimilda sem það telst bundið af. Afneitun á eðlisrétti eins og varð áberandi á síðari hluta 19. aldar var þó alls ekki það sem þeir Suárez, Grótíus og Vattel, er lögðu grunninn að þýðingu mannasetninga fyrir þjóðarétt, höfðu í huga. Hvað varðar aldarfarið þá er líka rétt að hafa það hugfast að á 19. öld sjást einnig fyrstu merki þess að þjóðaréttur sé að losna úr viðjum þess að teljast því sem næst alfarið evrópskur þar sem fræðimenn frá Suður- Ameríku voru þá byrjaðir að gera sig gildandi en enn var þess að bíða fram á 20. öld að ríki í öðrum heimsálfum gerðu sig almennt mjög gildandi á vettvangi þjóðaréttarins. En 19. öldin með öllum sínum framförum var einnig öldin þar sem nýlendustefna ríkja Vesturlanda náði hámarki og fræðimennmenn gerðu þá gjarnan enn blygðunarlaust greinarmun á svokölluðum siðuðum ríkjum og villiþjóðum.119 Ekki er hér ráðrúm til þess að fjalla um marga merka fræðimenn sem voru merkisberar vildarréttar í þjóðarétti á 19. öld. Verður hér látið við það eitt sitja að minnast á tvo fræðimenn sem áttu ríkan þátt í að móta nýtt réttarsvið á þeim tíma, þ.e. nútímarétt varðandi lög í stríði á sviði þjóðaréttarins. Þetta eru annars vegar þýski Bandaríkjamaðurinn Francis Lieber en hins vegar rússneski heimsborgarinn F.F. Martens. 8 Tveir frumkvöðlar þjóðaréttar um stríð og frið á 19. öld — Francis Lieber og F.F. Martens Á 19. öld voru sjónarmið vildarréttar orðin nær allsráðandi í fræðilegri umræðu um þjóðarétt og fyrri tíðar hugmyndir í anda eðlisréttar um réttlátt stríð áttu undir högg að sækja, en lausn deilumála og vopnuð átök til að leysa milliríkjadeilur voru eftir sem áður óleyst vandamál. Áður en sérstakt framtak Svisslendingsins Henry Dunant kom til skjalanna og leiddi til gerðar fyrstu Genfarsamningana um lög í stríði 1863 og tilurðar Alþjóða Rauða krossins 1864 hafði Bandaríkjamaður af þýskum ættum, Farncis Lieber (1798–1872), áður orðið frumkvöðull þess á síðari tímum að setja fram á skipulegan hátt reglur um lög í stríði (jus in bello). Nokkru 119 Anghie (n 4) bls. 35. síðar á 19. öldinni var það síðan framlag rússnesks diplómats og fræðimanns, sem ættaður var ofan af Eystrasalti, Fyodor Fyodorovich Martens (1845–1909), sem lagði enn frekari grunn að slíkum reglum á þessu sviði þjóðaréttar, sem og varðandi það hvernig sporna mætti við vopnuðum átökum ríkja með regluverki (jus ad bellum). F.F. Martens var að segja má leiðandi í því að skipulagðar voru og haldnar miklar friðarráðstefnur ríkja í Haag árin 1899 og 1907. Francis Lieber fæddist í Berlín og gekk ungur til liðs við prússneska herinn í Napóleonsstríðunum og barðist meðal annars í orrustunni við Waterloo þar sem hann hlaut alvarleg sár. Upp frá þessari reynslu fékk hann mikinn áhuga á sameiningu þýsku ríkjanna og því hvernig gera mætti vopnuð átök mannúðlegri. Lenti Lieber upp á kannt við stjórnvöld í Prússlandi vegna aktífisma og var ítrekað fangelsaður og 1826 flúði hann til Bretlands og fluttist svo þaðan til Boston í Bandaríkjunum árið 1827. Akademískur ferill Lieber nær loks flugi þar í landi árið 1835 þegar hann hlaut stöðu við Háskólann í Suður-Karólínu en árið 1860 verður hann svo prófessor í stjórnmálafræði við Columbia-háskólann í New York og átti síðan þátt í að setja lagadeild þess kunna skóla á laggirnar. Í þrælastríðinu 1861–1865 gegndi Lieber jafnframt ráðgjafarstörfum fyrir alríkisstjórnina í Washington sem sérfræðingur um álitaefni sem lutu að lögum í stríði.120 Á þeirri vegferð varð svo til þekktasta framlag hans til þjóðaréttar eða Viðmiðunarreglur Liebers um lög í stríði (Lieber Code) frá 1863, en þar var um að ræða samsafn af reglum um lög í stríði byggt á greiningu hans á því sem var þá talið gildandi venjuréttur eða voru nýmæli sem herir Bandaríkjanna (norðurríkjanna) töldu sig bundna af í átökunum við uppreisnarheri suðurríkjanna í borgarastríðinu.121 Framangreindar viðmiðunarreglur Liebers um lög í stríði þóttu hafa slíka þýðingu að Lincoln forseti Bandaríkjanna gaf þær út sem tilskipun nr. 100, 24. apríl 1863. Reglurnar fólu meðal annars í sér reglur um herlög, meðferð opinberra og einkaeigna óvinarins, liðhlaupa, stríðsfanga, gísla, uppreisnarmenn og vopnahlé. Voru þetta fyrstu reglur af því tagi sem her setti sér með svo skipulegum hætti og var gjarnan litið til upp frá því af öðrum ríkjum. Þar koma fram reglur sem enn hafa grundvallarþýðingu í gildandi þjóðarétti um lög í stríði, svo sem sú grundvallarregla að tækum aðferðum til þess að skaða óvininn í stríði séu þó viss takmörk sett og þá einkum út frá gildum hernaðarhagsmunum og mannúð. Þá setti Lieber fram viðmið um stríðsglæpi ef helstu lögum í stríði væri ekki fylgt og um það hvernig bæri þá að meðhöndla slík mál. Einnig reglur er bönnuðu pyndingar á stríðsföngum, til að afla upplýsinga og um skyldu til verndar menningarverðmæta í stríði, svo nokkuð sé nefnt.122 En viðlíka viðmið unnu sér síðan sess í fyrsta Genfarsáttmálanum sama ár og í Haagsamningunum 1899 og 1907. 120 Silja Vöneky, „Francis Lieber (1798–1872)“ í Bardo Fassbender og Anne Peters (ritstj.), The Oxford Handbook of The History of International Law (Oxford University Press) bls. 1137–1138. 121 Sama heimild bls. 1139. 122 Sama heimild bls. 1139–1140.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212
Page 213
Page 214
Page 215
Page 216
Page 217
Page 218
Page 219
Page 220
Page 221
Page 222
Page 223
Page 224

x

Helga Law Journal

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helga Law Journal
https://timarit.is/publication/1677

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.