Andvari - 01.01.2013, Page 14
12
JÓN SIGURÐSSON
ANDVARI
skeyti sín yfir Bretland. Barist var á Ítalíuskaga og franskar hersveitir
tóku eyjuna Elbu. Bardagar stóðu á Kyrrahafi og við Filippseyjar. Rauði
herinn sótti fram í Austur-Finnlandi og þennan dag brustu varnir Finna
við Viborg á Kirjálaeiði. Rússar undirbjuggu stórsókn sem brátt hófst í
áttina til Minsk í Hvít-Rússlandi og inn í Rúmeníu.
Þennan dag varaði gagnnjósnaþjónusta Reichswehr á austurvíg-
stöðvunum herstjórnina við væntanlegri stórárás Rauða hersins nærri
Smolensk við Dnépurfljót í Vestur-Rússlandi. Skæruliðaforinginn Josif
Tító og Pétur II konungur Júgóslavíu náðu samningum sín í millum
um bandalag. í Moskvu sendi Stalín marskálkur þennan sama dag
Pólverjum yfirlýsingu um samhug og stuðning. Oslóargengið svonefnda
sprengdi skrifstofu Þjóðverja þar í heimaborginni þar sem stjórnað var
útköllum til þegnskylduvinnu fyrir hernámsliðið. í Kaupmannahöfn
var mikil spenna, skemmdarverk á næstu dögum leiddu til fjöldaaftöku
andspyrnuhreyfingarmanna og allsherjarverkfall hófst síðan í borginni í
lok mánaðarins, en Þjóðverjar svöruðu með hörðum hermdaraðgerðum.
Bandaríkjamenn höfðu orðið fyrstir til að viðurkenna ísland sem
sjálfstætt ríki. Þeir höfðu gert varnarsamning við íslendinga 1. júlí 1941
og íslenskt sendiráð var opnað vestanhafs 19. nóvember það ár, en Thor
Thors fyrrverandi alþingismaður veitti því forstöðu. Vilhjálmur Þór
hefur sagt frá því að sér hafi orðið það minnisstæðast úr starfi sínu sem
utanríkisráðherra að sendifulltrúi Bandaríkjanna kom til hans 17. maí,
réttum mánuði fyrir boðaða lýðveldisstofnun, með formlega viðurkenn-
ingu frá Roosevelt forseta, en viðurkenningar annarra ríkja hafi svo
fylgt næstu dagana á eftir. Fram til þessa höfðu Bandaríkjamenn
beitt sér gegn því að íslendingar tækju sér einhliða sjálfstæði meðan
heimsófriður stæði. Á íslandi voru sumarið 1944 meira en tíu þúsundir
bandarískra hermanna og hafði þeim fækkað verulega frá því sem
flestir urðu. Landsmenn voru alls um 122 þúsundir. Meðal erlendra
hermanna voru hér nokkrar liðssveitir Norðmanna. Islensk stjórnvöld
voru auðvitað í tengslum við fleiri ríkisstjórnir bandamanna, svo sem
fram kom á Þingvöllum við lýðveldisstofnunina.
Á Þingvöllum fór formleg athöfn fram að Lögbergi upp úr hádeginu í
hryssingslegu slagviðri og rigningu. Er talið að um 25 þúsundir manna
hafi verið á völlunum, líklega um fimmtungur þjóðarinnar. Á Lögbergi
var pallur reistur fyrir Alþingi og ríkisstjórn. Dr. Björn Þórðarson for-
sætisráðherra setti athöfnina, en síðan var guðsþjónusta sem biskup
íslands annaðist. Að henni lokinni hófst fundur í Alþingi. Gísli Sveins-