Andvari - 01.01.2013, Side 47
andvari
VILHJÁLMUR ÞÓR
45
Kunnur athafnamaður í viðskiptalífinu, alls óháður og ótengdur
samvinnuhreyfingunni, lét svo um mælt að hann vildi frekar fá óljósan
ádrátt hjá Vilhjálmi Þór heldur en skriflegan samning hjá öðrum. Urðu
þessi ummæli fleyg.
Orð Vilhjálms sjálfs eru fyrir því að móðir hans hafði sterkustu
mótunaráhrifin frá bernsku og orða hennar minntist hann jafnan.
Reynsla kynslóðanna í Eyjafirði og á ættarslóðum norðanlands voru
veganesti Vilhjálms. Hann ólst upp á merkilegum endurreisnartíma upp
úr aldamótunum. A barnsárum hans urðu margir draumar kynslóðanna
að veruleika í návígi við kröpp kjör og bjargarskort, og til dæmis greinir
Akureyrarblaðið Norðri frá því að árið 1907 eru í Eyjafirði einum
40 bújarðir í sölu til sjálfseignar. Vilhjálmur var sjálfur gagntekinn
aldamótamaður, ungmennafélagi, ættjarðarvinur og dugnaðarforkur
fyrir það unga Island sem var að rísa úr öskustónni. Og sérstaklega
vildi hann duga eyfirskum samvinnumönnum, bændum, búaliði og
alþýðunni, sem höfðu trúað honum fyrir leiðsögn og ábyrgð á sameign
þeirra og fjöreggi, Kaupfélagi Eyfirðinga.
Vilhjálmur Þór flutti snemma árs 1971 erindi um lífsviðhorf sitt í
Ríkisútvarpið. Var erindið ásamt fleirum slíkum gefið út á bók. Hér á
eftir fara kaflar úr því:
„Oft áður hefur virst sem myrkrið og mannvonskan væri komin að
því að kæfa allt ljós og heilbrigt líf. Hingað til hefur verið séð fyrir því
að svo varð ekki. Alltaf hefur farið svo að sortinn hefur orðið að víkja
fyrir bjarma þess ljóss sem streymir út frá því almætti sem ég trúi að
sé á bak við allt líf og allar góðar athafnir mannanna. ... Nú má vera
að menn spyrji hvers vegna þetta almætti sem ég áður nefndi leyfir að
allar þessar skelfingar gerist. Sá einn sem er alvitur getur gefið svar við
þeirri spurningu, en mættum við ekki hafa í huga gamla máltækið að
„á misjöfnu þrífast börnin best“.
Gæti ekki verið að þessi ósköp séu nauðsynleg til þess að opna augu
okkar fyrir því að ofurkapp eftir því að eignast öll heimsins gæði getur
leitt af sér að maðurinn týni sál sinni? ... Hvernig má hafa áhrif til þess
að illvirkjum fækki svo að sambúð manna verði betri, áhrif til þess að
ýta burt öfund sem er undirrót þess illa, en skapa í hennar stað vináttu
manna á milli svo að mennirnir læri að umgangast sem bræður og í
einlægu samstarfi og samvinnu keppi að því að hjálpa hverjir öðrum til
betra lífs, vinna saman í frjálsu samfélagi til þess að skapa betri heim?