Úrval - 01.08.1947, Síða 5
MOZART — TÖFRAMAÐUR I TÓNHEIMUM
3
Hin þreytandi ferðalög með
skröltandi póstvögnum á forug-
um vegum og gisting í lélegum
gistihúsum fengu ekki bugað
glaðlyndi hans og lífsgleði. Oft
kom fyrir að áheyrendurnir
neituðu að fara, og Wolfgang,
sem gjarnan vildi gleðja þá, hélt
áfram að leika. Hann samdi ný
lög án afláts, leikandi tóna, sem
rigndi yfir áheyrendurna eins
og vorregn yfir blóm. Og hann
hætti ekki fyrr en faðir hans
stöðvaði hann; hinir tignu gest-
ir, karlar og konur, hylltu hann,
klöppuðu honum og kysstu
hann, en ekkert af þessu hafði
spillandi áhrif á hinn náttúrlega
yndisþokka hans.
Samt var alltaf tap á þessum
hljómleikaferðum. Hinir tignu
áheyrendur höfðu fyrir sið að
borga í dýrindis tóbaksdósum,
skóspennum og minjagripum.
Mozart gamli tók við öllu þessu
með bugti og beygingum, og
lagði svo af stað að nýju til að
vinna fyrir kvöldmatnum ann-
arsstaðar.
Flann var eini kennari sonar
síns. Wolfgang gekk aldrei í
skóla, en hann gaf sig óskiptur
og af ákafa að hvers konar
námi. Einkum hafði hann yndi
af stærðfræði, og hann krotaði
tölur á borð og veggi, fullur að-
dáunar á þessari göfugu vís-
indagrein, þar sem aðeins var
eitt rétt og tæmandi svar við
sérhverri spurningu. Það er vís-
bending um, hvers vegna tónlist
hans er svo skýr og rökrétt. En
hún er einnig lífsglöð, blíð og
unaðsrík — jafn fróandi og hún
er auðskilin.
Sumum samtíðarmönnum
Mozarts fannst tónlist hans of
„nýtízkuleg.“ En í eyrum okk-
ar hljómar verk eftir Mozart —
jafnvel í fyrsta skipti — eins og
við höfum þekkt það og elskað
alla okkar æfi. Það er af því að
Mozart hefir haft geysileg áhrif
á þau tónskáld, sem komu á eft-
ir honum. Beethoven gerði sér
mikið far um að kynnast verk-
um hans náið, og Haydn sýndi
hinum unga vini sínum þann
heiður að líkja eftir honum.
Chopin var gegnsýrður af anda
Mozarts, og á banasænginni
sagði hann: „Leikið Mozart
til minningar um mig.“ Jafnvel
hinn stolti Wagner beygði sig í
auðmýkt fyrir honum. Og margt
í hinum glaðværu völsum
Strauss og heillandi sönglögurn
Schuberts má rekja til hinnar
heiðtæru tónlistar Mozarts.
Lögin spruttu fram undan