Úrval - 01.08.1947, Qupperneq 8
6
ÚRVAL
sókn til hans, voru hjónin að
dansa í stofunni. Sagan hefir
verið sögð þannig, að þau hafi
verið að dansa af tómri kæti, en
í raun og veru voru þau að
krókna í kulda, og dönsuðu til
að reyna að fá hita í kroppinn.
Gesturinn brá við og útvegaði
þeim eldivið.
En sá af vinum Mozarts, sem
heimurinn stendur í mestri
þakkarskuld við, var verzlun-
armaður að nafni Puchberg,
sem hvað eftir annað hjálpaði
honum um smáfjárupphæðir,
þegar hann var í kröggum. Þeg-
ar maður les bréf Mozarts, þar
sem hann sárbænir vin sinn um
hjálp, svellur manni reiði í
brjósti við tilhugsunina um, að
þessi mikli snillingur skyldi
þurfa að betla.
En í Prag mætti Mozart skiln-
ingi og aðdáun í lifanda lífi.
Þegar honum var boðið að
koma þangað til að stjórna hinni
gáskafullu óperu sinni „Erúð-
kaup Fígarós“, sem fengið
hafði heldur kuldalegar móttök-
ur í Vín, uppgötvaði hann, að
ekki var flautað annað á göt-
unum í Prag en lög úr Fígaró.
Meðan hann dvaldi þar, samdi
hann hina undurfögru Prag-
sýmfóníu, og skömmu seinna
kom hann aftur til að semja sér-
staka óperu handa þessari söng-
elsku borg.
Dvöl Konstanze og Wolfgangs
í hinni glaðlyndu höfuðborg
Bæheims var þeim til mikillar
gleði. Þar samdi Mozart óper-
una „Don Giovanni", sem oft
hefir verið kölluð „hin fuil-
komna ópera“. DaPonte, sem
samdi textann, var léttlyndur
náungi; hann bjó andspænis
Mozart, í húsinu hinum megin
við götuna, og stundum köiluðu
þeir hvor til annars, að koma og
heyra nokkrar síður, sem annar
hvor þeirra hafði nýlokið við.
Eða þeir gengu syngjandi eftir
götunni, borgarbúum til mikillar
skemmtunar, á leið sinni inn í
einhverja krána, þar sem þeir
settust við glas af víni.
Aðdáendur Mozarts voru sí-
fellt að bjóða honum til sín og
tíminn leið eins og örskot. Dag-
inn fyrir frumsýninguna var
hann ekki enn búinn að ljúka
við forleikinn að óperunni. Það
var búið að kveikja ljósin í leik-
húsinu, þegar nótunum var í
mesta flýti útbýtt meðal hljóð-
færaleikaranna. Hljómsveitin
varð að spila foiieikinn óæfðan.
Aldrei hefir innsta eðli gam-
anleiksins verið túlkað í jafn-