Úrval - 01.08.1947, Blaðsíða 21
FALLEG BRJÓST
19
brjóstanna, en mikið magn
stöðvi vöxtinn.
Þessi kenning má vera flat-
brjósta konum mikii huggun,
því að þeim hefir alltaf gramizt,
að þær voru taldar kyndaufar,
vegna hormónaskorts.
Hið gagnstæða er oft nær
sanni, eins og Dupraz tekur
fram í skýrslu sinn til akadem-
ísins: „Það má oft sjá stór
brjóst á stúlku, sem þó er að
öðru leyti Iítt þroskuð líkam-
Iega; og á hinn bóginn má sjá
fullvaxna konu, kynferðilega
þroskaða, sem er með lítil og
slapandi brjóst.“
Orsök þess, að kona er flat-
brjósta er talin vera sú, að
kynþroski hennar hafi verið of
ör og að eggjakerfishormóna-
framleiðsla hennar hafi stöðvað
vöxt brjóstanna.
En úr því að kjmhormónarnir
voru ekki orsök hinna stóru
brjósta, hver var hún þá?
Eftir rniklar rannsóknir og
tilraunir komst Dupraz að þeirri
niðurstöðu, að hér var um sér-
stakt efni að ræða, sem heila-
dingulíinn gefur frá sér. Það er
þessi hormón (en ekki kynhor-
mónarnir), sem orsakar vöxt og
þróun brjóstanna.
Dupraz sannaði, að fram-
leiðsla heiladingulshormónsins
stóð í öfugu hlutfalli við fram-
leiðslu kynhormónanna, þ. e. Iítið
magn kynhormóna örvaði heila-
dingulinn, en mikið magn dró úr
getu hans.
Þetta var síðan sannreynt
með tilraunum. Þrem flatbrjósta
konum var gefinn stór skammt-
ur af kynhormónum, en árang-
urinn varð enginn.
Nokkrum rnánuðum síðar var
þessum sömu konum gefinn
minni skammtur. Brjóst einnar
konunnar urðu fullkroskuð á
tæpum þrem vikum. Á aðra kon-
una höfðu hormónarnir engin
áhrif, en vinstra brjóst þriðju
konunnar varð fullvaxta á hálf-
um mánuði. Hægra brjóstið var
tvo mánuði að þroskast.
Eftir þessar tilraunir tókst
Dupraz að ákveða hæfilegan
skammt, sem örvaði heiladingul-
inn. Síðar uppgötvaði Iiann, að
sérstök f jörefni gátu haft mjög
góð og varanleg áhrif. Hann tók
eftir því, að sum fjörefni örva
starfsemi eggjakerfisins. Þetta
eru f jörefnin A og C, en E f jcr-
efnið hafði aftur á móti örvandi
áhrif á heiladingulinn og starf-
semi hans. —
I Frakklandi er nú hafin
framleiðsla þessara efna; þeim
3*