Úrval - 01.08.1947, Blaðsíða 44
42
■Ctrval
um 27° á Celsíus, þegar hann
brýzt út úr Flóridasundinu, og
á sumrin kemst hann norður á
breiddarstig Nova Scotia, án
þess að tapa teljandi hita-
magni. En á veturna fellur hit-
inn niður í rúmar 15° á Celsíus.
En þar með er ekki öll sagan
sögð. Golfstraumurinn mætir
ísköldum Labradorstraumnum
snemma sumars og veldur það
frekari hitalækkun; er þá Goif-
straumurinn orðin lítið heitari
en sjórinn í kring. Ennfremur
yrði Golfstraumurinn að stefna
í norðaustur, ef gagn ætti að
verða að, en hann sveigir raun-
verulega til austurs. Það lítur
því heizt út fyrir, að áhrif Goif-
straumsins á loftslagið í Vest-
ur-Evrópu séu mjög orðum auk-
in.
Hið mesta, sem hann
getur afrekað, er að flytja
100 km breiðan og 180 metra
djúpan straum norður í höf.
Þessi straumur fer um 30 km
á dag og er lítið eitt heitari en
sjórinn umhverfis.
Ef við eigum að trúa Golf-
straumskenningunni, verðum
við að trúa því, að einn þús-
undasti hluti hafsins, nokkrum
stigum heitari en sjórinn í
kring, geti haft slík áhrif á
loftslag og veðurfar, að lagís
sé við Labrador en íslausar
hafnir á sömu breiddagráðu í
Noregi.
Önnur kenning urn orsök
hlýja loftslagsins í Vestur-
Evrópu byggir á því, að efri
helming Norður Atlantshafs-
ins rekur tii norðausturs. Hitinn
í neðri helming þessa hafs er
við frostmark eða jafnvel minni,
en efri helmingurinn 5° á Cels-
ius.. Þannig flæðir heimskauts-
sjórinn stöðugt til miðjarðar-
baugs og hitabeltissjórinn norð-
austur frá miðjarðarbaug.
Heiti sjórinn stefnir til norð-
austurs vegna þess, að hann
hefir meiri hraða í austurátt
þegar í upphafi heldur en sjáv-
arbotninn, sem hann færist yf-
ir. Og á hinn bóginn stefnir
heimsskautssjórinn til svæða,
sem hafa meiri hraða í austur-
átt en hann, og verður stefna
hans því vestlægari. Það styður
þessa kenningu, að kaldur sjór
frá suður- og norðurheimskauta-
svæðunum finnst á tiltölulega
litlu dýpi við miðjarðarbaug.
Sumir hafa enn þá slcoðun,
að jörðin sé flöt.
Við erum gjarna dálítið
hreyknir yfir vitneskju okkar
um lögun jarðarinnar, og þó er