Úrval - 01.08.1947, Page 57
NÝ LlFGUNARAÐFERÐ
55
Þetta er álíka mikið og við
venjulega öndun. Aðferðin er
nothæf, vegna þess að þindin
starfar, enda þótt maðurinn sé
hálfmeðvitundarlaus.
En dr. Eve var ekki ánægður
með þetta. Hann vildi vita,
hvaða áhrif aðferðin hefði á
drukknaðan mann. Hann gerði
tilraunir á manni, sem var ný
skilinn við, og því ekki stirn-
aður. Niðurstaðan var ákaflega
eftirtektarverð — með Schaef-
eraðferðinni var ekki hægt að
dæla nema 30 rúmsentimetrum
af lofti í lungu dána mannsins.
Það er ekki V15 af því loft-
magni, sem hægt er að dæla
með sömu aðferð í lungu manns,
sem hefir meðvitund.
Tilraunirnar sýndu ljóslega,
hversvegna það reyndist svo
erfitt, að lífga drukknaða
menn með Schaeferaðferðinni;
aðferðin var ónothæf nema í
vægustu tilfellum. Með svo litlu
loftmagni var ómögulegt að
lífga nokkurn mann. í meira en
35 ár hafði læknavísindunum
sézt yfir þá staðreynd, að að-
ferðin við lífgun drukknaðra
var byggð á þeirri röngu for-
sendu, að þindin starfaði á sama
hátt eftir dauða eða drukknun
og hún gerði í lifandi lífi.
Það er rétt að geta þess hér,
að Schaeferaðferðin getur gefið
góðan árangur, þegar lífga þarf
menn, sem orðið hafa fyrir gas-
eitrun eða fengið hjartabilun;
í slíkum tilfellum lamast þind-
in ekki eins mikið. Tilraunir dr.
Eves leiddu í Ijós, að Silvester
öndunaraðferðin gefur betri
árangur en Schaeferaðferðin.
Silvesteraðferðin er fólgin í
því, að armarnir eru teygðir út
og þrýst að brjóstinu á víxl og
veldur þetta breytingu á stærð
brjóstholsins. En sjúklingurinn
liggur upp í loft og er því hætta
á, að tungan sigi ofan í kokið
og stífli það, og þarf þá annan
björgunarmann til þess að ná
henni upp.
Ruggaðferð Eves er laus við
þessa ágalla, og kemur að not-
um, hvort sem þindin er lömuð
eða ekki. Aðferðin er í fáum
orðum þessi:
Hinn hálfdrukknaði maðirn
er lagður á grúfu á sjúkrabör-
ur og öklarnir og úlnliðirnir
bundnir við handföngin —
handleggirnir teygðir út frá
líkamanum, fram fyrir höfuðið.
Börurnar eru settar á ,,búkka“
um 85 cm háan. Einnig má
hengja þær í vírlykkju og tíð-