Úrval - 01.08.1947, Page 61
FÁEIN ORÐ 1 FULLRI MEININGU
59
Molotov: Eins og valdajafn-
vægið í Evrópu skipti máli!
Völdin eru gengin úr greipum
ykkar kæru Evrópu, veslings
Bidault minn, og þessi öld mun
verða vitni að ægilegri baráttu
tveggja meginlanda um heims-
yfirráð. Og í þeim átökum eigið
þið ekki um neitt að velja. Þið
og ykkar líkar eru orðnir þol-
endur en ekki gjörendur sög-
unnar.
Og hvað yður viðvíkur, Bevin,
þá er framtíðarhlutverk ykkar,
eins og þér sjáið það, að vera
Grikkir amerísks heimsveldis. Á
þeim grundvelli vonið þið að
geta fengið ameríska kapítal-
ista til að bjarga hinni sökkv-
andi þjóðarskútu ykkar og
leggja fé í viðhald gjaldþrota
heimsvaldastefnu ykkar. Það er
vonlaust fyrirtæki, því að yfir
amerískum kapítalisma vofir
innbyrðis sundurþykkja og
efnahagslegt hrun. En með hlið-
sjón af þeim hagsmunum, sem
þér eruð fulltrúi fyrir, er rétt af
yður að gera þessa aumkunar-
verðu tilraun. Auðvitað deili ég
á yður og hrósa gagnrýnendum
yðar. En þér munuð fyrstur
manna viðurkenna, að það sé í
raun og veru merki um viður-
kenningu á stefnu yðar. Ég tel
ykkur miklu hættulegri en Ame-
ríkumenn. Þeir hafa að vísu
kjarnorkusprengjuna, en þið
hafið til að bera hina gamal-
kunnu kænsku þjóðar, sem allt-
af hefir skilið gildi valdsins. Án
ykkar hjálpar er ósigur hins
ameríska kapítalisma ekki að-
eins óumflýjanlegur, heldur
mun hann einnig koma fljótt.
Þið getið ef til vill tafið hann
æðilengi. En að lokum mun
hrunið koma, og upp af rúst-
um stríðs og borgarastyrjaldar
mun heimur kommúnismans
rísa.
Bevin: Mig furðar á því, að
marxisti skuli láta blekkjast af
sjálfs sín áróðri. Eins og ég
sagði í neðri deild brezka þings-
ins um daginn, hefi ég lesið all-
ar bækur ykkar, og ég veit, að
þið hafið fyrir löngu dæmt
hugmyndina um heimsbyltingu
sem Trotskyisma, og hina sósí-
alistisku jafnréttiskenningu sem
barnalega draumóra. Takmark
ykkar nú er sjálfsvernd — inn
á við vernd hinnar ráðandi klíku
og út á við vernd hins rauða
heimsveldis ykkar — annað eða
háleitara er takmark ykkar
ekki. Bylting verður að vera
borin uppi af trúnni á almenn-
ing og von um bjarta framtíð.