Úrval - 01.08.1947, Page 63
FÁEIN ORÐ 1 FULLRI MEININGU
61
við frarntíðartakrnark bylting-
arinnar.
Bevin: Fjandinn hirði Marx
og Lenin! Þetta er augijóst mál,
eins og allir verkalýðssinnar
vita. Hversu mikiu betri utan-
ríkisráðherra væruð þér ekki,
Molotov, ef þér létuð yður
nægja að kalla skóflu „skóflu“
en ekki „tæki til samyrkjubú-
skapar“. Þér vitið, að löndin í
Austur-Evrópu hafa matvæli
aflögu, sem sum þeirra seldu
okkur áður fyrr fyrir iðnaðar-
vörur. Þér viljið að þau verzli
eingöngu við ykkur, þó að þið
hafið engar vörur til að selja
þeim.
Ef Evrópu verður skipt,
munu lífskjör almennings þar
sniám saman verða jafnléleg og
í Sovétríkjunum. Gegn því
myndu þjóðir þeirra rísa upp, og
með lítilsháttar uppörvun, sem
ég mun vissulega veita þeim,
myndu þær verða hernaðarlega
hættulegar. Ástandið hjá ykkur
sjálfum er ekki betra. Hermenn
ykkar, sem eru aldir upp í þeirri
trú, að vaxandi eymd sé fylgi-
fiskur kapítalismans, sáu með
eigin augum á stríðsárunum, að
jafnvel hin herjuðu lönd Evrópu
voru paradís í samanburði við
Sovétríkin. Til þess að viðhalda
einræði ykkar, verðið þið að láta
þá fá meiri neyzluvörur. Þær
eigið þið ekki, en við Vestur-
Evrópumenn eigum þær. Ef
þessi ráðstefna fer út um þúf-
ur, þá eigið þið mest á hættu;
þið verðið umkringdir óvinum,
og heima fyrir mun mæta ykk-
ur vaxandi óánægja þrælbund-
ins almennings.
Molotov: Hætta, góði Bevin,
er afstætt hugtak, háð tíma. 1
stjórnmálum ber sá sigur úr
býtum, sem lengst getur þrauk-
að. Við marxistar höfum alltaf
hafnað lýðræðinu af því að það
setur stjórnarfarinu tímatak-
mörk. Fólkið kvartar: stefn-
unni er breytt til að friða það
— og stríðið er tapað. Rússland
getur tekið á sig næstum því
ótakmarkaðar þjáningar, og það
getur haft undraverð áhrif að
ráða yfir innanríkisráðherra-
embættunum í Austur-Evrópu.
Athugið ástandið í hinum vest-
rænu lýðræðisríkjum. Frakk-
land og ítalía eru á barmi borg-
arastyrjaldar. í Vestur-Þýzka-
landi ríkir sultur, þrátt fyrir
þær miljónir, sem þið ausið í
það. Sjálfir verðið þið orðnir
dollaralausir áður en árið er lið-
ið. Þið eruð allir háðir Ameríku,
þar sem ríkir pólitískur órói og