Úrval - 01.08.1947, Side 76
74
ÚRVAL
málmi, má spinna úr því þráð,
sem er vatnsheldur og eldtraust-
ur. Einnig má vinna úr því eins-
konar pappír. Ef það er soðið
(vulcaniserað) má breyta því í
plastefni. —
Allar þessar tilraunir og
rannsóknir hafa ekki einungis
lagt grundvöllinn að nýjum iðn-
greinum, heldur lítur út fyrir að
þær rnuni breyta einhverjum
eyðilegasta og hræðilegasta stað
úthafsins í hina auðugustu hrá-
efnalind. Sargassohafið, sem
nær yfir 6.250.000 ferkílómetra
Atlantshafsins, framleiðir meira
þang en allar hveitiekrur heims
hveiti. Þar sem þang er orðið
svo mikilsvert hráefni fyrir iðn-
aðinn, eru líkur til að þetta
gleymda þanghaf fái nýja þýð-
ingu.
Talið er, að á Sargassosvæðinu
séu að minnsta kosti 10 milj.
smálesta af þangi, sem auðvelt
er að afla.
Agar-agar er dýrmætt efni, og
mjög nauðsynlegt fyrir lækna-
vísindin. Á friðartímum hafði
Japan eins konar einokun á
þessu bragð- og litlausa hlaup-
efni, því að meira en 4/s af heild-
arfarmleiðslunni kom frá Japan.
Japanskir bændur tíndu rauðan
þara og suðu hann, og sköpuðu
þannig þessa þýðingarmiklu út-
flutningsvöru. En þegar stríðið
skall á, tók fyrir útflutningin,
og olli það vandræðum meðal
vísindamanna um alian heim.
Brezka stjórnin lét rannsaka
sjávargróður umhverfis Bret-
landseyjar, til þess að reyna að
bæta úr þessari miklu þörf. Til-
raunirnar báru árangur, og nú
geta Bretar framleitt eins mik-
ið af agar og þeir þarfnast til
eigin nota.
Á ströndum Bretlands er að
rísa upp nýr iðnaður. Menn,
sem áður söfnuðu þangi og
brenndu það í gryf jum, til þess
að vinna úr því joð, hafa kom-
izt að raun um, að iðnaðurinn
greiðir nú hærra verð fyrir ýms-
ar þangtegundir. Agar er dýr-
mætast; fyrir stríð kostaði það
3—4 shillinga pundið, en þegar
Japanir hættu að flytja það út,
hækkaði það í 30 shillinga pund-
ið. Japanir höfðu ekki látið það
uppi, hvernig þeir framleiddu
agar, en vísindamenn minntust
þess, að Japanir höfðu flutt
þangið upp í svalt fjallaloft.
Þegar farið var að nota kælingu
við framleiðsluna, gekk hún að
óskum.
Heilar fjölskyldur hafa nú
arðbæra atvinnu af þangtekju.