Úrval - 01.08.1947, Side 82
80
ÚRVAL
leitaði upp á yfirborðið, og síð-
an hefir það verið á flakki og
ekki átt neitt heirnkynni.
Og ef spurt er, hvers vegna
„skrímslið“ hafi sést áttatíu og
tvisvar sinnum árið 1934, en að-
eins einu sinni á stríðsárunum,
þá er því til að svara, að árið
1934 kom geysimikill fjöldi
fólks til vatnsins í þeim tilgangi
einum, að reyna að koma auga
á þessa kynjaskepnu. En á
stríðsárunum var umferð þarna
sama og engin.
Nýlega hefir A. G. Peters,
safnvörður í Dores, komið fyrir
sjónauka og myndavélum á þaki
húss síns, en það er skammt frá
vatninu. Stöðugt eftirlit er haft
með vatninu, frá morgni til
kvölds.
Hinn 7. maí síðastliðinn var
skógarvörður á leið til vinnu
sinnar við hinn enda vatnsins.
Hann sá eitthvert flykki fljóta á
yfirborðinu.
„Það var eins og bátur á
hvolfi . . . .“
CN3 ★ co
Allt skal jafnt!
Bandarískur þingmaður var að halda ræðu á fundi hermála-
nefndar þingsins. Var hann þungorður í garð kvenþjóðarinnar
heima fyrir, sagði, að meðan mennimir berðustu upp á líf og
dauða á fjarlægum vígstöðvum, lifðu eiginkonur þeirra þúsund-
um saman i synd og svívirðu. Það ætti að lækka fjárstyrk þess-
ara hórkvenna um helming, sagði þingmaðurinn.
Þingkonan Clara Luce reis þá á fætur, og sagðist vera sam-
mála ræðumanni, en lagði jafnframt til, að í hvert skipti sem
hermaður á fjarlægum vígstöðum væri staðinn að því að lifa
í synd, skyldi styrkur eiginkonu hans hækkaður um helming.
Málið var látið niður falla án frekari umræðna.
•— David L. Cohn í „This Is the Story.“
~k 'k
Svar við gestaþraut á bls. 75.
Taktu glas nr. 2, helltu úr því í glas nr. 5, og láttu það síðan
á sinn stað aftur.