Úrval - 01.08.1947, Page 91
ÞRÓUN 1 FORTÍÐ OG FRAMTTÐ
89'
hinn svonefndi Pekingmaður,
hafi verið uppi fyrir um það bil
hálfri miljón ára, áreiðanlega
fyrir meira en 200.000 árum og
minna en miljón árum. Hann
hafði undarlegt höfuðlag, mjög
breitt fyrir ofan eyru, fram-
standandi augnabrúnir og enga
höku. Það hefur mikil breyting
orðið á þessari hálfu ármiljón,
engu minni heldur en átt hefur
sér stað hjá skyldum dýrateg-
undum, svo sem úlfinum og
hundinum annars vegar og
ýmsum refategundum hinsveg-
ar.
Þetta bendir til þess, að ef við
reynum ekki á neinn hátt að
hafa áhrif á þróunina, muni af-
komendur okkar eftir hálfa ár-
miljón vera álíka frábrugðnir
okkur og Pekingmaðurinn. Ekki
svo að skilja, að ég telji
okkur þess umkomna að
stjórna þróuninni eins og þekk-
ingu okkar er nú háttað, jafn-
vel þó að við vildum það, eða
þó að líffræðingunum væri
gefið jafnmikið vald og Hitler
hafði fyrir tólf árum. En ger-
um ráð fyrir, að eftir þúsund
ár höfum við öðlazt þekkingu
til að stjórna þróun okkar og
og við yrðum sammála um að
nota hana, hvernig færi það?
Svarið er býsna skrítið. Mað-
urinn getur gengið 30 km á
dag með meðalbyrði og haldið
þannig áfram dag eftir dag.
En hann getur einnig með hægu
móti flogið 3000 km á dag.
Tæknivísindin hafa með öðrum
orðum hundraðfaldað hraða
mannsins. Það er engin fjar-
stæða að vona, að við getum
einnig hundraðfaldað hraða þró-
unarinnar. Þá gætum við náð
eins miklum breytingum og áð-
ur getur á 5000 árum, eða 200
kynslóðum. Þetta er langur
tími. Fyrsta ártal mannkyns-
sögunnar er 2283 f. K., eða
fyrir rúmum 4000 árum. Þá
var algjör myrkvi á sólu, og
rétt á eftir hertóku og eyddu
Elamítar Úr. Fyrir 5000 árurn
stóð vagga menningarinnar í
Egyptalandi og írak og ef til
vill víðar, en flestir menn voru
þá villimenn.
Er ekki tilgangslaust að tala
um breytingu, sem við vitum
ekki enn, hvernig hægt er að
framkvæma, og sem taka mun
5000 ár, ef við lærum einhvern
tíma að framkvæma hana? Nei,
það er ekki tiigangslaust, og
ástæournar til þess eru þrjár.
í fyrsta Iagi er hyggilegt að
ræða um rétta og ranga notkun