Úrval - 01.08.1947, Síða 104
TÍKIN HANS SAMS SMALL
að leiðir af sjálfu sér, að
þessir ótrúíegu viðburðir
hefou aldrei gerzt, ef Sam
Small hefði ekki verið skilinn
eftir einn heima. En Mully var
harðákveðin í að fara aðra ferð
til Ameríku.
„Heyrou mig, Samyweil
Small,“ hreytti hún úr sér.
„Ég hlusta ekki á aukatekið orð
um þetta framar. Þegar svona
stendur á, ber okkur að vera
hjá henni Vinnie okkar. Við
förum til Ameríku.“
„Ekld ég — ég fer ekki fet,“
svaraði Sam ósmeykur. „Sjáðu
nú til, Mully. Við vorum einu
sinni saman í Ameríku, og ég
hefi ekki gleymt því, sem gerð-
ist þá. Af hverju getur Vinnie
ekki komið og átt barnið hjá
okkur?“
„Af því að eiginmaður henn-
ar er Ameríkani," sagði Mully.
„En það er einmitt það, sem
ég á við,“ hrópaði Sam æstur.
„Þið Vinnie skiljið það ekki, að
verði hún áfram í Ameríku,
verður barnið útlendingur. —
Hugsaou um það.“
Mully andvarpaði, eins og
og hún væri að því komin að
gefast upp.
„Hefir þú alarei komið því
inn í kollinn á þér, Sam Small,“
sagði hún, „að útlendingum
gcsti líkað það vel að vera út-
lendingar — og að þeim gæti
einnig líkað það vel, að börn-
in þeirra yrðu útlendingar ?“
„Talaðu ekki svona bjána-
lega,“ sagði Sam.
„Jæja — af hverju fæðast þá
svona mörg útlend börn?“
„Af því að þau hafa enga
möguleika til þess að fæðast í
Yorkshire. Þetta er einfalt mál.
Ef Vinnie kæmi í heimsókn til
okkar, yrði barnið hennar
Yorkshirebúi, og ef ...“
„Já, og ef drottningin af Saba
hefði gengið í buxum, þá hefði
hún verið kóngur,“ sagði Mully.
„Hún var í buxum, eftir því
sem ég hefi heyrt. Og Vinnie ..“
„Sam Small,“ sagði Mully, og
tók fram í fyrir bónöa sínum.
„Láttu þér skiljast þetta í eitt
skipti fyrir öll: Lavinia okkar
verður í Kaliforníu við hhð
manns síns, eins og góðri stúlku
sæmir — og ég ætla að fara til