Úrval - 01.09.1953, Blaðsíða 2
Hoifieiiskenningin.
TJrval birtir í þessu hefti grein
um nýstárlega kenningu í stjörnu-
fræði. Grein þessi er þýdd úr
þýzka tímaritinu „Die Auslese",
en upphaflega kom hún í „Natur
und Kultur“, sem er annað þýzkt
tímarit. „Die Auslese" bárust all-
mörg bréf frá lesendum út af
greininni. Nokkrir þeirra tóku
kenninguna alvarlega og báru
fram ýmis rök til frekari stuðn-
ings henni. Til dæmis segir í
einu bréfinu:
„Holheimskenningin er áratuga
gömul tilgáta. Það eru til vísinda-
menn, sem fullyrða, að vér séum
í iðrum mikils líkama (hnattar)
sem einskonar óþarfa lífverur, en
fljótin séu æðar þessa líkama.
Það eru til vísindamenn, sem full-
yrða, að þessi líkami, sem vér
erum í, sé á fæðingarstigi; jarð-
skjálftamir séu fæðingarhríðir; að
sjálfsögðu muni ármilljónir liða
áður en fæðingarstundin rennur
upp. Þessar skoðanir settu for-
mælendur holheimskenningarinnar
fram þegar fyrir 50 árum.
En hvað er utan um þessa hol-
kúlu (líkama), sem umlykur
oss ? Þessari spurningu hafa
nokkrir boðendur holheimskenn-
ingarinnar fyrir löngu svarað á
þá leið að „utan um þessa kúlu
(þennan líkama) sé önnur kúla,
sem fæða muni af sér jarðkúlu
vora, og þessi kúla sé einmitt
<juö.“ Vér lifum sem sé í iðrum
guðs. Á sama hátt og í líkama
vorum lifa óteljandi bakteríur,
lifi mennirnir, dýrin og jurtirnar
einungis sem einskonar bakteríur
í líkama þessara vem, sem vér
köllum guð."
Flestir bréfritaranna neita þó
að taka kenninguna góða og
gilda. Sumir eru með bollalegg-
ingar um það hvemig svona fár-
ánlegar kenningar geti orðið til
og koma með félagslegar og sál-
fræðilegar skýringar á því. Aðrir
koma með gagnrök, svo sem þau,
að úr eldflaugum, sem sendar
hafa verið upp í 300 km hæð hafi
verið teknar Ijósmyndir, sem sýni
greinilega, að jörðin sé bungu-
vaxin.
Frá einum bréfritaranum, Wern-
er Reinhard í Lima, höfuðborg
Perú, kom stutt en gagnort bréf,
Framhald á 3. kápusíðu.
Þýðendur (auk ritstjórans): Öskar Bergsson (Ö.B.), Guðmundur
Arnlaugsson (G.A.) og Ólafur Sveinsson (Ö.Sv.).
tUVAL —■ tímarit. — Kemur út 8 sinnum á ári.
Ritstjóri: Gísli Ólafsson, Leifsgötu 16, Reykjavík. Sími 4954.
Afgreiðsla Tjarnargötu 4. Áskriftarverð 70 krónur.
Otgefandi: Steindórsprent h.f.