Úrval - 01.09.1953, Blaðsíða 112

Úrval - 01.09.1953, Blaðsíða 112
110 TJRVAL hafði ekki komið auga á hann enn. Stúlkan hætti að dansa og andlit hennar fékk á sig svip sem líktist skelfingu. Jói tók eftir því og sneri sér við, og í sömu andránni var McEachern kominn fast að þeim. McEach- ern hafði ekki séð frammistöðu- stúlkuna nema einu sinni áður, en hann gekk rakleitt til hennar án þess að skipta sér af Jóa í svipinn. — Burt, Jessabel! hrópaði hann. Rödd hans glumdi í ótta- blandinni kyrrðinni, á óttaslegn- um andlitunum, inn í hljóðn- andi músíkina, inn í friðsæla, tunglskinsbjarta vornóttina. Burt, skækja! Sjálfum var honum kannski ekki Ijóst að hann ruddist inn og hrópaði hárri röddu. Að lík- indum hefur honum fundizt hann vera að gera rétt. Ef til vill vissi hann ekki að það voru hans eigin hendur sem reyndu að slá í andlit þess sem hann hafði tekið að sér og fóstrað frá barnæsku, og þegar andlitið hafði vikið sér undan högginu og birtist aftur, þá var það ef til vill ekki andlit fósturbarns hans lengur, það var ásjóna Satans sem hann þekkti jafn vel. Og þegar hann starði á þetta andlit, gekk á móti því með reidda hnefa, fann hann sennilega til sömu ofsalegu og draumkenndu hrifningar og píslavottur, sem þegar hefur verið endurleystur, gekk rak- leitt undir stólinn sem Jói reiddi til höggs að höfði hans og inn í óminnið. Ef til vill hefur hann orðið dálítið undrandi á tóminu, en ekki mikið; og ekki lengi. * Jóa fannst allt þjóta burt og framhjá, öskrandi, deyjandi, og skilja hann eftir á miðju gólfinu með brotinn stólinn í hendinni. Hann horfði á fósturföður sinn. McEachern lá á bakinu. Nú var hann ekki æstur lengur. Það var eins og hann svæfi: ennþá ósigrandi í svefninum, fullur friðar. Meira að segja blóðið á enni hans var friðsælt og kyrrt. Jói dró andann ótt. Hann heyrði það sjálfur, og líka dá- lítið annað, eitthvað skrækt og gjallandi í fjarska, kvenmanns- rödd. Hann leit þangað og sá að tveir karlmenn héldu henni, en hún braust um. — Hann kallaði mig skækju! hrópaði hún og reyndi að rífa sig lausa af þeim sem héldu henni. Karl bjálfinn, svínið! Sleppið mér! Sleppið mér! Jói gekk til hennar og hélt enn á stólbrotinu. Með fram veggjunum stóð hvítt fólkið í þyrpingu og starði á hann. Allt í einu tók hann undir sig stökk og sveiflaði stólnum yfir höfði sér. — Sleppið henni! sagði hann. Jafnskjótt hætti hún að brjótast um og sparka og sneri öskrandi heipt sinni gegn honum, eins og hún tæki nú fyrst eftir honum. — Og þú! Þú fórst með mig hingað! Bölvaður asninn þinn,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.