Úrval - 01.09.1953, Blaðsíða 80
78
ÚRVAL
og tungl og reikistjörnur um-
hverfis himinkúluna í iðrum
jarðkúlunnar. Af því leiða öll
hin kunnu fyrirbrigði svo sem
nótt og dagur, árstíðir og öll
önnur stjarnfræðileg fyrir-
brigði, sem einnig eru skýran-
leg út frá heimsmynd Kópernik-
usar.
Einhverjum kann að finnast
það ógeðfelld tilhugsun, frá
trúarlegu eða vísindalegu sjón-
armiði, að lifa í holkúlu — og
er ekkert við því að segja. En
svo framarlega sem fylgjendur
þessarar kenningar geta borið
fram rökstuddar mótbárur, ættu
vísindamenn ekki að treysta
kreddum sínum, heldur kref jast
þess að málefnaleg rannsókn
fari fram.
Þeir sem kunnugir eru hinum
stjarnfræðilegu fyrirbrigðum —
látum ósagt hvort þau gerast
utan við eða innan í jörðinni —
vita, að við sem nú lifum stönd-
um enn einu sinni á þröskuldi
nýrrar aldar. í náttúrufræði
mun mega vænta nýjunga á
mörgum sviðum. Þannig má
telja holheimskenninguna til
stundarfyrirbrigða, sem við
verðum að taka afstöðu til. Við
megum ekki gleyma því, að hin
öra tækniþróun mun í náinni
framtíð láta sín getið á þessu
sviði. Ef til vill mun hún fyrr
en okkur varir skera úr um á-
greiningsatriði rnilli stjörnu-
fræðinganna og holheimskenn-
ingarinnar. Þegar fyrsta geim-
farið hefur sig til flugs mun það
annaðhvort bruna út í víðáttu
þess geims, sem stjörnufræðin
kennir okkur að taki við þegar
jörðinni sleppir, eða það mun
(samkvæmt holheimskenning-
unni) rekast eftir skamma
stund á himinkúluna í iðrum
jarðar.
Stjörnufræðin byggir kenn-
ingar sínar á athugunum, sem
gerðar eru með augum, stjörnu-
kíkjum, ljósmyndum, litrófs-
rannsóknum og öðrum ljós-
fræðilegum rannsóknum. For-
mælendur holheimskenningar-
innar fullyrða, að þetta séu eng-
anveginn áreiðanleg tæki til að
afla sér óyggjandi þekkingar.
Margar tilraunir sýna Ijóslega
hve mjög augun geta blekkt
okkur. Formælendur holheims-
kenningarinnar hafa einnig rétt
fyrir sér í því, að heimsmynd
nútímastjörnufræðinnar er x
rauninni hreint stærðfræðilegt
fyrirbrigði. Þessir stærðfræði-
legu útreikningar kunna í sjálfu
sér að vera réttir, en þar með er
ekki sagt, að þeir séu í samræmi
við veruleika alheimsins. Stærð-
fræðilögmál eru ekki undir öll-
um kringumstæðum sama og
náttúrulögmál.
Stjörnufræðin styðst í stærð-
fræðireikningum sínum við hug-
myndir, sem aðeins eru til í
heila okkar. Við verðum að játa,
að þær þurfa ekki endilega að
vera í samræmi við veruleikann.
Hinar tilkomumiklu stærðfræði-
formúlur stjörnufræðinnar
vekja enga hugmynd um veru-