Úrval - 01.09.1953, Blaðsíða 4

Úrval - 01.09.1953, Blaðsíða 4
2 tJRVAL. jöðrum eða við mýrarfláka. Og það var langt á milli þeirra. Víð- áttumikil landsvæði voru ó- byggð. Það varð naumast séð á húsunum hvort íbúarnir voru fátækir eða ríkir. En lífið hélt áfram; samfélagið óx og dafn- aði og tók á sig fast form; lög og reglugerðir voru samin fyrir verzlun og ræktun, sambandið við guði og anda og líf ættflokks- ins. íbúar landsins voru ekki ein þjóð; þeir skiptust í tvo þjóð- flokka, og má enn í dag greina landamærin milli þeirra. Bændur og búalið lifði í nán- um tengslum við árstíðirnar — sáningu, uppskeru og slátrun — en þeir voru þó ekki alveg án sambands við umheiminn. Stöku kaupmenn komu til þorpanna og fáeinir útflytjendur hurfu heim aftur og komu með ýmsa furðu- lega hluti með sér. Við vitum, að sumir ætflokkarnir notuðu í véum sínum fórnarker úr silfri, sem voru á stærð við baðker, og smíðuð höfðu verið í Suður- Rússlandi. En suður í heimi gerðust mikl- ir atburðir. Rómverska keisara- dæmið hafði verið stofnað og þandist nú í æskuþrótti sínum út til allra hliða. Gallía varð róm- versk, Cæsar fór yfir Rín, og í Róm skrifaði Tacítus bók um Tevtóna, hinn hávaxna, ljós- hærða þjóðflokk, sem byggði hina víðáttumiklu skóga Þýzka- lands og löndin við Norðursjó, sem fáir siðmenntaðir menn höfðu heimsótt og þar sem ís- bimir vom gráhærðir eins og’ menn og sjórinn var frosinn í hellu þó að sólin settist þar aldrei. En Tacítus og aðrir rómversk- ir rithöfundar skrifuðu mest um löndin við Rín. Um Skandínavíu vissu þeir sama og ekkert, og' sennilega voru Skandínavar jafnfáfróðir um Rómverja. Við vitum, að Ágústus sendi skip norður í höf og að þau tóku land í Danmörku, og að íbúarnir „beiddust vináttu Rómverja“. Það er eins og við könnumst við orðalagið úr samtíð okkar, og við getum næstum getið okkur til hvemig landgöngunni var háttað. En við vitum aðeins um þessa einu landgöngu. Með þessuerekkisagt, að allt- af hafi ríkt friður. Fornminja- fræðingar segja, að oft hafi verið róstusamt. Bæði Þjóðverj- ar og Skandínavar höfðu þann. sið að fórna herfangi þeim goð- um, sem fært höfðu þeim sigur. Öllu var fórnað — sverðum, spjótum, skjöldum, öllum eigum hins sigraða óvinar — og þess- ir munir eru nú að koma fram í dagsljósið úr mómýrum Dan- merkur. Og þeir em ekki aðeins sigurtákn frá skærum milli ætt- flokka, heldur herfang herja á hreyfingu, heilla þjóða í flutn- ingum til nýrri og betri lands- svæða. Hinir miklu þjóðflutn- ingar náðu einnig til Danmerk- ur. Við vitum lítið um hvað gerðist, en nokkur verksum- merki sjáum við. Vopn, hjálm-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.