Úrval - 01.09.1953, Síða 27

Úrval - 01.09.1953, Síða 27
MÓÐIR JONES 25 'Róm með áhorfendunum, og neðst stóðu tveir rómverskir keisarar og bentu niður með þumalfingrunum. Fyrir framan keisarana stóðu tóm dýrabúrin. Ég lét börnin mín fara inn í búrin, og þau héldu sér í járn- stengurnar meðan ég var að tala. Ég sagði áheyrendunum, að ]>etta væri einkennandi fyrir verksmiðjueigendurna, þegar börnin í verksmiðjunum ættu í hlut, bentu þeir niður með þum- alfingrinum, en fólk horfði bara á og léti það afskiptulaust. — Roosevelt forseti skal f á að heyra harmakvein þessara barna — barna, sem aldrei fá að ganga í skóla, en verða að vinna ellefu til tólf stundir á dag í vefn- aðarverksmiðjum Pennsylvaníu — vefnaðarverksmiðjunum, sem vefa ábreiðurnar, sem þér gang- ið á, gluggatjöldin fyrir glugg- unum yðar og fötin, sem þér klæðist. Fyrir fimmtíu árum snerist almenningsálitið gegn þrælahaldinu, og menn lögðu líf sitt í sölurnar til þess að stöðva uppboðin á svertingjabörnun- um. I dag selja menn verksmiðju- eigendunum hvít börn fyrir tvo dollara á viku. Fyrir fimm- tíu árum seldu menn svertingja- börn gegn staðgreiðslu. í dag selja menn hvít börn gegn af- borgunum. I Georgiu, þar sem börn vinna dag og nótt í spunastofunum, hafa einmitt verið samþykkt lög um friðun söngfugla. En hvað um litlu bömin, sem hafa alveg gleymt hvað söngur er ? Ég ætla að biðja forsetann að leysa þessi börn úr ánauð- inni. Ég ætla að segja honum, að velmegunin sem hann gort- ar af, sé velmegun hinna ríku og byggist á fátækt og eymd annarra. Gallinn er sá, að valdamenn- irnir í Washington gera ekki neitt. Ég hef horft á löggjafa okkar samþykkja þrenn lög á einum klukkutíma til stuðnings járnbrautunum, en þegar verka- mennirnir hrópa á hjálp handa börnunum, láta þeir sem þeir heyri ekki. Ég spurði einu sinni mann, sem sat í fangelsi, hvars vegna hann væri þangað kominn, og hann sagðist hafa stolið einum skóm. Ég sagði við hann, að ef hann hefði stolið járnbraut, þá væri hann orðinn einn af öld- ungadeildarþingmönnum Banda- ríkjanna. Okkur var sagt, að sérhver amerískur drengur hefði mögu- leika til þess að verða forseti Bandaríkjanna. Ég get fullviss- að yður um það, að þessir litlu snáðar hérna í búrunum, myndu hvenær sem væri selja þennan möguleika fyrir almennilega máltíð og leyfi til að fá að leika sér. Þessir útþrælkuðu drengir, sem ég hef komið með úr verk- smiðjunum — beygðir og bækl- aðir á líkama og sál og sem sjá ekki annað framundan en þræl- dóm og strit — þeir hafa aldrei
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.