Úrval - 01.09.1953, Blaðsíða 32
30
ÚRVAL
hægt að framleiða í honum
orku, sem er samkeppnisfær við
aðra orku.
Úraníum er málmur, sem
er gæddur sérstökum eiginleik-
um. Hann hefur m. a. tilhneig-
ingu til að verpast eða vinda sig,
ef ekki er farið varlega með
hann, og af ýmsum tæknilegum
ástæðum er ótækt, að úraníum-
stengurnar í reaktor taki
skyndilega upp á að verpast og
vinda sig. Ennfremur er nauð-
sjmlegt að setja sérstakt málm-
hylki utan um hverja einstaka
úraníumstöng, sem sett er 1
reaktorinn. Þessi hylki mega
ekki vera njútrónuheld og mega
því ekki vera úr grafít eða cad-
mínum — en þau eiga að koma
í veg fyrir að hin geislavirka
aska geti sáldrast burtu. Á
vissan hátt svarar þetta til þess
að hver einstakur kola- eða
koksmoli, sem látinn er í ofn-
inn, sé látinn í hylki. Þessi
hylki eru venjulega gerð úr alu-
minium, magníum eða zirkon;
hið síðastnefnda er bezt, en
jafnframt dýrast.
Til þess að komast að raun
um hvernig fara eigi með úran-
íum svo að það verpist ekki, og
til þess að fá úr því skorið hvaða
málma sé bezt að nota í hylki,
höfum við hér í Harwell orðið
að ráða til okkar marga dugandi
málmfræðinga, og hafa þeir orð-
ið að gera ótal tilraunir áður en
þeir gátu uppfyllt óskir okkar.
Slíkt kostar bæði tíma og fé.
Við höfum einnig orðið að ráða
til okkar verkfræðinga, sem
fengu það hlutverk að byggja
reaktorana og ekki hvað sízt
þann útbúnað, sem þarf til að
flytja hitann frá reaktornum í
vatnið, sem á að hita upp og
breyta í gufu. I því sambandi
verður að hafa hugfast, að hér
er um geysiháan hita að ræða.
Þegar vatnið er komið í suðu-
mark eða upp fyrir það, breyt-
ist það í gufu, og gufa er rúm-
frekari en vatn. Gufa veldur
þrýstingi, því meiri sem hita-
stig gufunnar er hærra. Það er
vandalítið að byggja geymi und-
ir vatn — þ. e. gufu — sem
er hituð upp í aðeins 200° á C.,
en þegar hún er hituð upp í
2000°, þá er enginn barnaleikur
að byggja utan um hana geymi,
leiðslur o. fl. sem þolir þrýst-
inginn frá henni. Annað hvort
verður að finna alveg sérstak-
lega sterkar málmblöndur, eða
nota verður eitthvað annað efni
en vatn— efni, sem getur tekið
í sig miklu meiri hita en vatn
áður en það breytist í gufu (og
veldur þrýstingi), en að því vík
ég seinna.
Fjárhagsvandamálin eru
mörg, en þeirra stærst og mikil-
vægast er spurningin: Hve dýr
verður hver orkueining, hver
eining rafmagns, sem við kom-
um til með að framleiða ? Kemur
þá fyrst til hvað kosta muni að
byggja þau tæki og vélar sem
þarf til að ,,breyta“ kjamork-
unni í nothæfa orku, sérfræð-
ingar segja okkur, að það sé