Úrval - 01.09.1953, Side 73
HIN FURÐULEGU AUGU FAKlRSINS
71
Ég hafði loks öðlast þennan
töframátt! Ég bætti þessu at-
riði þegar í stað inn í hinar
venjulegu töfrabragðasýningar
mínar. Það vakti geysimikla
athygli í Kalkútta. Brátt fóru
læknarnir þar að rannsaka mig,
eins og þeir hafa jafnan gert,
hvar sem ég hef komið. Og eng-
inn þeirra hefur getað skýrt
þetta.
Þú spyrð, hvort ég geti séð
gegnum járnþynnu?
Nei, ég sé ekki gegnum neitt,
ég get jafnvel ekki séð gegn-
um bindið, sem ég er með fyr-
ir augunum. Ég nota alls ekki
augun. Mér finnst líklegast að
ég sjái með svitaholum hör-
undsins, enda þótt ég sé ekki
viss um það. Ég get séð, ef
bert hörund mitt er andspænis
hlutnum. Ef málmþynna er sett
fyrir framan mig, þá get ég
ekki lesið bók sem er hinum
megin, nema ef ég má teygja
höndina bak við málmþynnuna.
Þá get ég lesið bókina. Lang-
ar yður til að reyna það?“
,,Já,“ svaraði ég, „en þar
sem við höfum enga málm-
þynnu, þá verðum við að nota
hurðina.“
Ég stóð upp, gekk að bóka-
skápnum og tók fyrstu bókina
sem ég rakst á. Það var annað
bindið af ævisögu Johnsons eft-
ir Boswell. Ég opnaði dyrnar
og sagði Kuda Bux að standa
bak við hurðina. Ég opnaði
bókina af handahófi, lagði hana
á stól hinum megin hurðarinnar
og tók mér stöðu þar sem ég
gat séð bæði Kuda Bux og bók-
ina.
Hann teygði höndina fram
fyrir hurðina unz hún var
gengt bókinni, sem var í
tveggja feta fjarlægð. Það var
sem höndin titraði ofurlítið,
líkt og fálmari á skordýri.
Handarbakið vissi að bókinni.
„Lestu vinstri blaðsíðuna,“
sagði ég, „og byrjaðu efst.“
Það var þögn í á að gizka
tíu sekúndur, þvínæst hóf hann
lesturinn: „Kenndu Veroniku
að láta sér þykja vænt um mig.
Biddu hana að taka ekki mark
á mömmu. Frú Thrale hefur
kvefast og hefur verið mjög
vesæl . . .“ ó. B. þýddi.
Tilbreyting1.
Leikkona í Hollywood, sem farin var að láta á sjá, fór til
læknis og' .kvartaði undan þreytu.
Þegar læknirinn hafði skoðað hana, sagði hann: ,,Ég held
þetta sé ekki neitt alvarlegt. Þér þarfnist bara tilbreytingar."
„Tilbreytingar!" hrópaði leikkonan. „Á undanfömum tveim
árum hef ég átt þrjá menn og fjóra bila, haft ellefu mat-
reiðslumenn og fimm herbergisþernur, og loks hefur þrisvar
sinnum verið stolið frá mér gimsteinum. Hverskonar tilbreyt-
ingu eigið þér við?“ — Verden Idag.