Úrval - 01.09.1953, Qupperneq 78
76
ÚRVAL
brýn nauðsyn að skynja þessa
hægu framvindu meðan hún er
að gerast. Er ekki hugsanlegt,
að það sem við köllum „tauga-
áreynslu nútímans“ stafi að
nokkru leyti af misræminu milli
þess hve ört oss berast áhrif og
hve miklu hægar vér erum fær
um að tileinka oss reynslu? Er
hugur vor knúinn áfram með
hraða sem sljófgar veruleika-
skyn vort? Erum vér að týna
útsýninu — glata einhverju,
sem er nauðsynlegt lífsgleði
vorri og ef til vill mannlegum
virðuleik vorum?
Ég get ekki losað mig við þá
hugmynd, að hin gamla tegund
bókmennta, sú tegundin sem
kannar lífið eins og sá sem skynt
ber á, og gefur sér góðan tíma,
geti enn orðið að liði við að brúa
þetta djúp. Könnun á lífi ann-
arra, stunduð af þolinmæði eins
og þesskonar bókmenntir gera,
kynni að geta skírskotað til
einhvers í oss sjálfum, sem vér
höfum ekki gert oss grein fyrir.
En þetta er bara mín hug-
mynd. Verið getur að vér séum
loksins vaxin upp úr þesskonar
bókmenntum. Og ef til vill er
sú djúpa fullsæla sem þær tjáðu,
hinn kyrrláti skáldskapur, sem
streymir fram eins og lygn
móða, eitt af því sem vér erum
einnig vaxin upp úr.
★ ★ ★
Þurrkur.
„Hér er bréf frá umboðsmanni okkar í Sahara,“ sagði sölu-
stjórinn. „Þeir segjast enn vera orðnir vatnslausir."
„Það er ekki nýtt, þeir eru alltaf vatnslausir þar,“ sagði for-
stjórinn.
„Það veit ég," sagði sölustjórinn, „en í þetta skipti virðist
vatnsskorturinn vera alvarlegur —• þeir hafa fest frímerkið með
títuprjóni á bréfið."
— Cape Argus.
★
Úrræði.
Norrlandsýsla í Norður-Svíþjóð hafði um alllangt skeið haft
þingmann, sem ekki var atkvæðamikill á þingi: hann hafði
aldrei tekið til máls og aldrei flutt neina tillögu eða frumvarp.
Var þetta farið að valda nokkrum kurr meðal kjósenda.
Vinur þingmannsins vakti athygli hans á þessu og eftir mikil
heilabrot og þungar hugarþrautir bar þingmaðurinn loks fram
svohljóðandi tillögu:
„Vegna þess að fóðurskortur hjá bændum í Norrland er jafn-
an tilfinnanlegastur milli páska og hvítasunnu legg ég til að
þessum tveim hátíðum verði slegið saman í eina hátíð.“
Ekki fylgir sögunni hver afdrif tillögunnar urðu.
— Allt.