Úrval - 01.09.1953, Page 91

Úrval - 01.09.1953, Page 91
Á KROSSGÖTUM Úr bókinni „Ljós í ágúst“, eftir William Faulkner. HANN mundi vel eftir þeim, göngunum í stóru, kulda- legu, sótugu rauðsteinsbygging- unni, sem var umkringd rjúk- andi verksmiðjuhverfum og girt fþriggja metra hárri vír- netsgirðingu eins og betrunar- stofnun eða dýragarður. Hann mundi eftir munaðarlausu börnunum í grófgerða, bláa baðmullarbúningnum, óhreinu veggjunum, óhreinu gluggun- um, þar sem sótiði úr síbræl- andi reykháfunum streymdi niður rúðurnar í regni eins og svört tár. Hann stóð þögull eins og skuggi í auðum ganginum. Hann var óvenjulega smávax- inn af fimm ára dreng, alvöru- gefinn og hljóður eins og skuggi. Þetta var tveim vikum fyrir jól. Tvær stúlkur fóru með hann inn í baðherbergið og böðuðu hann, greiddu vott hár hans, færðu hann í nýjan sam- festing og fóru síðan með hann inn í skrifstofu forstöðu- konunnar. f skrifstofunni sat maður, ókunnur maður. Og hann horfði á manninn og skildi hvað um var að vera áð- ur en forstöðukonan hafði sagt orð. — Jósep, sagði forstöðukon- an, hvernig litist þér á að fá að fara héðan og eiga heima hjá góðu fólki uppi í sveit? Þarna stóð hann rauður í framan og á eyrunum eftir grófu sápuna og grófu þurrk- una, og hlustaði á það sem ókunni maðurinn sagði. Hann hafði litið sem snöggvast á manninn og séð að hann var þrekvaxinn náungi með stutt, jarpt skegg og snoðklippt en ekki nýklippt jarpt hár; litur- inn á hárinu og skegginu var sterkur og hreinn, án þess að vera neitt farinn að grána, og það gerði manninn unglegri þó að andlitið bæri vott um að hann væri kominn yfir fertugt. Augun voru grá og köld. Föt hans guðræknislega svört. Hann fann að maðurinn horfði á hann eins og hann væri að skoða hest eða notaðan plóg, fyrirfram sannfærður um að hann uppgötvaði galla, en líka sannfærður um að hann myndi
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.