Úrval - 01.06.1955, Blaðsíða 23
SPURNINGAR OG SVÖR UM OFFITU
21
Það gæti verið brjóstsykursmoli
eða kökubiti eða mjólkurglas;
flestar fæðutegundir auka blóð-
sykurinn. Við ráðleggjum mönn-
um að „fá sér bita“ — narta
í eitthvað að morgninum, sem
þeir að jafnaði borða um há-
degið, og um eftirmiðdaginn
það sem þeir eru vanir að borða
til kvöldverðar. Fá sér til dæmis
glas af mjólk um ellefu leytið í
stað þess að drekka það með
hádegismatnum. Með því móti
er blóðsykurmaginu haldið uppi
og matarlystinni niðri.
En hvaö um megrunarlyf?
Það eru til nokkur gagnleg
megrunarlyf, en þau fást aðeins
gegn lyfseðlum og skyldi eng-
inn nota þau nema í samráði
við lækni. Við vitum ekki fylli-
lega hvernig þau verka, en þau
draga úr matarlystinni.
Er offita aö einhverju leyti
arfgeng?
Fátt bendir til að svo sé. Or-
sakir offitu eru margar og
margvíslegar, en gangurinn er
venjulega sá sami — maður
fitnar af því að maður neytir
meiri fæðu en líkaminn brennir.
Maður þarf ekki endilega að
vera feitur af því að flestir
eða allir í fjölskyldunni eru
feitir. En ef allir á heimilinu
borða eins og soltnir úlfar, er
líklegt að maður venjist á það
líka. Þetta á einkum við um
börn, sem taka upp siði og hætti
hinna fullorðnu.
Munduö þér vilja telja of-
fitu til sjukdóma?
Já, hún er vissulega sjúk-
dómur. Offita og ofdrykkja
eiga margt sameiginlegt. Fólk,
sem á við geðræn vandamál að
stríða, finnur fró í því að borða
mikið á sama hátt og drykkju-
manninum er fró í því að drekka
áfengi.
Er þaö rétt, aö hœgt sé aö
losa sig viö óþarfa fitu meö
áreynslu eöa Ukamsœfingum?
Ekki alltaf. En hæfileg á-
reynsla hefur góð áhrif. 1 til-
raunastöð okkar höfum við
komizt að raun um, að dýr geta
reynt á sig upp að vissu marki
án þess að matarlyst þeirra auk-
ist. En fari áreynslan fram yf-
ir það mark, verða þau svöng.
Sá sem iðkar erfiða leiki eða
íþróttir um helgar borðar drjúg-
um meira á eftir og fær þannig
aftur þær hitaeiningar, sem
hann hefur hlaupið af sér. Um
hóflega, reglulega áreynslu
gegnir öðru máli. Með því til
dæmis að ganga tvo til þrjá
km á hverjum degi — fara t.d.
til vinnunnar á faratækjum
postulanna í stað þess að aka í
bíl — eyðast hitaeiningar án
þess að matarlystin aukist.
Draga reykingar úr matar-
lystinni ?
Fyrir því er ekki til nein ör-
ugg vissa. En menn sem hætta
að reykja þyngjast oft fyrst á
eftir. Verið getur, að maturinn