Úrval - 01.06.1955, Page 88

Úrval - 01.06.1955, Page 88
S6 ORVAL lækka líkamshitann. Æðakerfi sjúklingsins er tengt við kæli- pípur og blóðið látið fara í gegnum þær. Hjartaskurðlækn- irinn Sir Russell Brock hefur notað þessa aðferð við sjúkl- inga, sem að öðrum kosti hefði ekki verið hægt að skera upp. Frönsku læknarnir kölluðu þessa aðferð sína ,,gervidvala“, en það nafn er villandi og hef- ur nú í staðinn verið tekið upp orðið ,,hypothermia“ myndað úr gríska forskeytinu ,,hypo“, sem þýðir undir og „therme“, sem þýðir hiti. Nýjustu tilraunir á dýrum hafa ótvírætt leitt í Ijós, að dvali (hybernation) er alveg óskylt fyrirbrigði. Þó að rottur þoli mikla kælingu, eins og að framan greinir, eru vís- indamenn sannfærðir um, að það sé djúpstæður munur á efnaskipti þeirra dýra, sem geta lagzt í dvala og hinna, sem ekki geta það. Þannig kom í ljós, að taugar rottu hættu að leiða straum þegar hitinn komst niður fyrir 10°, en taugar í hömstrum hætta ekki að leiða fyrr en hit- inn er kominn niður í 3°. 1 dýri, sem leggst í dvala, halda öll hin sjálfvirku kerfi líffærastarf- seminnar áfram að starfa, en þó miklu hægar. Hjartsláttur og öndun halda áfram, þótt hitinn sé kominn niður í 5°. Þó að broddgölturinn liggi í djúp- um dvala, eru taugar hans vak- andi, sem sjá má af því, að hann reisir broddana, ef hann er snertur. En í dýri, sem ekkx leggst í dvala, hætta lungu og hjarta að starfa þegar hitinn er kominn niður í 20°. Annar meginmunurinn er sá, að upphitunin er sjálfvirk í dýr- um, sem leggjast í dvala. Þeg- ar múrmeldýrið, sem er ame- rískt nagdýr á stærð við héra, vaknar úr vetrardvalanum, rýk- ur hjartsláttur þess upp í 200 slög á mínútu og fitan, sem er varaforði í líkamanum, brennur svo ört, að á tveim tímum hækkar líkamshitinn úr 3° upp í eðlilegan líkamshita, 37°. At- hyglisvert er einnig, að fitan í dýrum, sem leggjast í dvala, breytist þegar þau verða fyr- ir kulda, þannig að hún verð- ur fljótandi við lágan hita og þessvegna tiltæk til brennslu fyrir líkamann. Dvalinn hefur verið talinn aðlögun að vetrarkuldunum, en líklegra er, að hann sé aðlögun að fæðuskorti. Broddgeltir og leðurblökur, sem einkum lifa á, skordýrum, myndu eiga torvelt með að afla sér fæðu á vet- urna. í stað þess að flytja sig til hlýrri landssvæða þar sem gnægð er skordýra, leysa þau vandann með því að draga úr orkuþörf sinni. Þessa skoðun styðja rann- sóknir, sem nýlega voru gerðar í Ameríku á kólibrífuglum. Þær leiddu í ljóst, að þessi pínu- litlu, athafnasömu dýr leggj- ast í dvala á nóttunni, og er greinilegt, að það er aðlögun
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.