Læknablaðið : fylgirit - 05.01.2015, Qupperneq 9

Læknablaðið : fylgirit - 05.01.2015, Qupperneq 9
X V I I V Í S I N D A R Á Ð S T E F N A H Í F Y L G I R I T 8 2 LÆKNAblaðið/Fylgirit 82 2015/101 9 E 1 Þriðja tannsettið og lífsgæði íbúa á dvalar- og hjúkrunarheimili Aðalheiður Svana Sigurðardóttir, Inga B. Árnadóttir Tannlæknadeild Háskóla Íslands ass34@hi.is Inngangur: Rekja má tann- og munnsjúkdóma til ýmissa þátta á borð við lélega munn- og tannhirðu, neysluvenja og lyfjagjöf. Bágborin tannheilsa getur aukið hættu á meltingartruflunum, vannæringu, sveppasjúkdómum, munnþurrki og tannholdssjúkdómum. Markmið rannsóknar var að skoða tengsl tannheilsu og lífsgæða meðal aldraðra. Efniviður og aðferðir: Þversniðsrannsókn árið 2013 á dvalar- og hjúkr- unarheimili á höfuðborgarsvæðinu (VSN 12-207). Aðilar í hvíldardvöl og hjúkrunarrýmum voru útilokaðir frá þátttöku. Þátttakendur (n=45) mættu í klíníska skoðun og svöruðu lífsgæðakvarða „Oral health impact profile“ (OHIP-49). Skýribreyta er klínísk tannheilsa. Útkomubreytur mældar á sjö undirsviðum OHIP-49: 1) færniskerðing, 2) líkamleg óþæg- indi, 3) sálræn óþægindi, 4) líkamlegar hömlur, 5) andlegar hömlur, 6) félagsleg skerðing og 7) höft/fötlun vegna tannheilsu. Tölfræðiúrvinnsla: IBM SPSS 20, leiðrétt fyrir bakgrunnsbreytum. Niðurstöður: Alls luku 38 rannsókninni, meðalaldur 85,5 ár (±5,6), í klínískri skoðun var tannátustuðull karla (n=13) M=24,29 (±5,02) og kvenna (n=25) M=26,04 (±2,42). Með slæma tannheilsu voru 57,9% (n=22) og góða 42,1% (n=16). Marktækur munur er milli tenntra og tannlausra varðandi færniskerðingu F(1,35) = 5,03, p<,05, og líkamlegar hömlur F(1,35) = 5,00, p<,05. Íbúar með þriðja tannsettið (heilgóma) búa við verri meltingu, breytt lyktar- og bragðskyn, takmarkandi mataræði, erfiðleika í tali og tjáningu og verri heilsu en þeir sem hafa eigin tennur. Ályktanir: Nauðsynlegt er að efla tannheilbrigðisþjónustu aldraðra, huga þarf að forvörnum, draga úr tannátu, tannmissi og beita meðferðar úrræðum í samræmi við lög og reglugerðir. E 2 Tilvísun aldraðra í sérhæfð hjúkrunarúrræði við útskrift af bráðamóttöku Ingibjörg Sigurþórsdóttir1, Elísabet Guðmundsdóttir1, Hlíf Guðmundsdóttir1, Helga Rósa Másdóttir1, Lovísa Jónsdóttir1, Sigrún Sunna Skúladóttir1, Þórdís Katrín Þorsteinsdóttir2 1Bráðadeild Landspítala, 2Háskóla Íslands ingis@landspitali.is Inngangur: Aldraðir eru stækkandi hópur sjúklinga á bráðamóttökum. Kemur þar bæði til fjölgun aldraðra og að hækkandi aldur leiðir til versnandi heilsu og aukinnar þarfar fyrir heilbrigðisþjónustu. Tíðar komur aldraðra á bráðamóttökur hafa verið tengdar við verri afdrif og hærri dánartíðni. Á síðustu árum hafa verið stofnaðar hjúkrunar- stýrðar göngudeildir fyrir aldraða, lungna- og hjartabilaða sjúklinga á Landspítala með því mögulega markmiði að fækka endurkomum á bráðamóttökur. Efniviður og aðferðir: Gerð var aftursýn gagnaöflun úr rafrænni sjúkraskrá um endurkomur allra sjúklinga 67 ára og eldri sem komu á bráðamóttökur Landspítalans árin 2008 til 2012. Gögnin voru greind með lýsandi tölfræði og könnuð tengsl milli breyta með kí-kvaðrati og reiknað líkindahlutfall (OR) forspárþátta fyrir tilvísun í sérhæfð hjúkrunarúrræði með fjölþátta aðhvarfsgreiningu. Niðurstöður: Endurkomur voru 18.154 á rannsóknartímabilinu eða rúmlega 27% af öllum komum 67 ára og eldri. Forspárþættir fyrir til- vísunum í sérhæfð hjúkrunarúrræði voru: búseta á höfuðborgarsvæðinu (OR 3,19; 95% confidence intervaI:1,17-8,66), hækkandi aldur (OR 1,03 95% CI:1,01-1,06), lungnasjúkdómur (OR 4,17 95% CI:2,53-6,88), hjarta- og æðasjúkdómur (OR 1,80 95% CI:1,07-3.03), stoðkerfissjúkdómar eða beinbrot (OR 1,56 95% CI:1,01-2,41) eða ICD-10 einkennagreining (OR 2,04 95% CI:1,36-3,06). Kyn og hjúskapur reyndust hafa samvirkni: giftum konum (OR 2,10 95% CI) var frekar vísað og einbúum (konur OR 1,16; karlar OR 2,44; 95% CI) var frekar vísað samanborið við gifta. Ályktanir: Auknar líkur eru á tilvísunum í sérhæfð hjúkrunarúrræði fyrir þá hópa þar sem slík úrræði eru í boði. Huga mætti að öðrum hópum aldraðra sem koma endurtekið á bráðamóttöku og taka tillit til hjúskaparstöðu þeirra. E 3 Mjaðmabrot 67 ára og eldri sem leituðu á Landspítala 2008- 2012 Sigrún Sunna Skúladóttir1, Elísabet Guðmundsdóttir2, Helga Rósa Másdóttir1, Hlíf Guðmundsdóttir3, Ingibjörg Sigurþórsdóttir1, Lovísa Jónsdóttir1, Þórdís K. Þorsteinsdóttir1,4 1Bráðamóttöku, 2hagdeild, 3öldrunarlækningadeild Landspítala, 4hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands sigrskul@landspitali.is Inngangur: Mjaðmabrot er alvarlegur áverki. Yfir 90% af brotum verða hjá fólki eldra en 50 ára og eru tvisvar til þrisvar sinnum algengari hjá konum en körlum. Skjóta og góða þjónustu þarf til að stilla verki og draga úr líkum á fylgikvillum og er skurðaðgerð þá árangursríkust. Landspítali sinnir meirihluta sjúklinga með mjaðmabrot á Íslandi. Tilgangur rannsóknarinnar var að auka þekkingu á faraldsfræði mjaðm- abrota meðal aldraðra með það markmið að greina þætti sem eflt gætu bráðaþjónustu og forvarnir. Efniviður og aðferðir: Gagna var aflað afturvirkt úr Vöruhúsi gagna á Landspítala um alla eldri en 67 ára sem leituðu á bráðamóttöku 2008- 2012 vegna brots á lærleggshálsi, lærhnútubrots og brots fyrir neðan lær- hnútu. Notuð var lýsandi tölfræði og gerð einbreytu aðhvarfsgreining til að kanna forspárþætti tegunda brots, komutíma, lengdar biðar á bráða- móttöku og eftir aðgerð (alpha <0,05). Úrtakið taldi 1053 einstaklinga. Karlar voru 295 (28%) og konur 757 (72%), elsti einstaklingurinn var 107 ára. Niðurstöður: Brot voru algengari meðal ekkjufólks en annarra hjú- skaparstaða (p<0,05). Marktækt færri komur voru yfir sumarmánuði. Dánartíðni kvenna innan þriggja mánaða var 11% en karla 22% (p<0,05). Karlar biðu lengur eftir skurðaðgerð en konur (21,5 miðað við 18,9 klst, p<0,05). Biðtími fólks úr dreifbýli var lengri en biðtími þéttbýlisbúa (p<0,05). Ályktanir: Faraldsfræði mjaðmabrota á Íslandi virðist svipuð því sem gerist í heiminum. Afdrif aldraðra með mjaðmabrot geta verið alvarleg og aldraðir karlar virðast sérstaklega viðkvæmur hópur. Þörf gæti verið á að efla þjónustu og fræðslu sjúklinga og aðstandenda um horfur og afdrif eftir mjaðmabrot þegar á bráðamóttöku. ÁGRIP ERINDA
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140
Qupperneq 141
Qupperneq 142
Qupperneq 143
Qupperneq 144
Qupperneq 145
Qupperneq 146
Qupperneq 147
Qupperneq 148
Qupperneq 149
Qupperneq 150
Qupperneq 151
Qupperneq 152
Qupperneq 153
Qupperneq 154
Qupperneq 155
Qupperneq 156
Qupperneq 157
Qupperneq 158
Qupperneq 159
Qupperneq 160
Qupperneq 161
Qupperneq 162
Qupperneq 163
Qupperneq 164
Qupperneq 165
Qupperneq 166
Qupperneq 167
Qupperneq 168
Qupperneq 169
Qupperneq 170
Qupperneq 171
Qupperneq 172
Qupperneq 173

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.