Læknablaðið : fylgirit - 05.01.2015, Page 21

Læknablaðið : fylgirit - 05.01.2015, Page 21
X V I I V Í S I N D A R Á Ð S T E F N A H Í F Y L G I R I T 8 2 LÆKNAblaðið/Fylgirit 82 2015/101 21 68,4% (p<0,000). Vöggudauði lækkaði um 70,0% á tímabilinu (p<0,004). Ályktanir: Tíðni burðarmáls-, nýbura- og ungbarnadauða hefur lækkað umtalsvert síðastliðin 30 ár, aðallega vegna lækkunar á nýburadauða á tímabilinu. Líklegt er að frekari framfarir í mæðraeftirliti, fæðingarhjálp og heilbrgðisþjónustu við nýbura og ungbörn geti lækkað þessa tíðni enn frekar. E 40 Þýðing og forprófun á verkjamatskvarðanum COMFORTneo á vökudeild Landspítalans Björg Eyþórsdóttir1, Harpa Iðunn Sigmundsdóttir1, Rakel B. Jónsdóttir2, Guðrún Kristjánsdóttir1,2 1Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands, 2barna- og kvennasviði Landspítala gkrist@hi.is Inngangur: Tilgangur rannsóknarinnar var að þýða og forprófa COMFORTneo mælitækið sem metur viðvarandi verki hjá nýburum. Efniviður og aðferðir: Notast var við þægindaúrtak 24 inniliggjandi nýbura á vökudeild Landspítalans, 13 drengir og 11 stúlkur. Skilyrði fyrir þátttöku var að nýburinn þyrfti, vegna meðferðar sinnar, að gang- ast undir sársaukafullt áreiti af einhverju tagi. COMFORTneo er einnar víddar mælitæki, sem mælir einungis sex atferlislega þætti verkja: vökuástand, óróleikastig, öndunarviðbrögð, grát, líkamshreyfingu, andlitsspennu, vöðvaspennu. Stigaspönn er 6-25. Tveir rannsakenda framkvæmdu verkjamatið samtímis. Börnin voru metin í þremur mis- munandi aðstæðum; í ró (hlutlausar aðstæður), þegar umönnun átti sér stað (raskaðar aðstæður) og þegar áreiti sem talið var sársaukafullt átti sér stað (sársaukafullar aðstæður). Hvorki voru inngrip framkvæmd af hálfu rannsakenda né fyrir tilstilli rannsóknarinnar. Við úrvinnslu gagna var notast við lýsandi tölfræði, t-próf, Kappa og Chronbach‘s α. Niðurstöður: Marktækur munur á verkjamati kom fram milli hlut- lausra og raskaðra aðstæðna sem og á milli hlutlausra og sársauka- fullra aðstæðna. Hins vegar reyndist munurinn á milli raskaðra og sársaukafullra aðstæðna ekki marktækur. Samanburður á heildarstigum þeirra barna sem ekki hlutu verkjastillingu fyrir sársaukafullt inngrip sýndi ekki heldur marktækan mun á milli raskaðra og sársaukafullra aðstæðna. Samkvæmt niðurstöðum t-prófs á heildarstigum barnanna var ekki marktækur munur á milli stigagjafa rannsakenda, sem gefur vísbendingu um áreiðanleika mælitækisins. Þegar samræmi milli rann- sakenda innan hvers þáttar mælitækisins var skoðað með Kappa, kom í ljós takmarkað samræmi í öllum matsþáttum mælitækisins. Ályktanir: Við forprófunina tókst ekki að sýna fram á réttmæti mælitæk- isins í íslenskri þýðingu en fyrirvari er settur á þær niðurstöður vegna áhrifa af verkjastillingu sem notuð var í sumum tilfellum. Vísbendingar fengust um áreiðanleika mælitækisins en þó virðast vera þættir innan þess sem draga úr áreiðanleikanum. Frekari rannsókna með stærra úrtak er þörf til að sýna fram á réttmæti og áreiðanleika mælitækisins. E 41 Þróunarfræðileg greining á CSA og CSB genunum Arnar Pálsson, Jóhannes Guðbrandsson Líffræðistofu Háskóla Íslands apalsson@hi.is Inngangur: Frumur hafa nokkur kerfi til að gera við galla í DNA. Eitt þessara kerfa er umritunarháð viðgerð, sem byggir á að nokkur lykil- prótín getið skynjað galla í erfðaefninu. Cockayne Syndrome A (CSA) og Cockayne Syndrome B (CSB) genin eru nauðsynleg fyrir þessi skref, og tilteknar stökkbreytingar í þeim valda öldrunareinkennum í börnum. Þróun þessara kerfa er hins vegar frekar lítið rannsökuð. Efniviður og aðferðir: Við rannsökuðum þróun gena í umritunarháðri viðgerð í fjölfruma dýrum, með lífupplýsingafræði og þróunarfræði. Raðir voru einangraðar úr erfðamengjum, samröðun mynduð og systur- gen skilgreind. Þróunartré voru reiknuð fyrir hvert gen um sig. Niðurstöður: Niðurstöðurnar eru þær að flest genin eru vel varðveitt í þróunarsögu fjölfruma dýra. Undantekningarnar eru CSA, CSB og DDB2 sem hafa tapast úr þróunartré skordýra og CSB og DDB2 sem vantar í erfðamengi orma (þ.e. Caenorhabditis elegans og skyldra teg- unda). Þessi mikilvægu prótín tengjast öll skynjun á göllum í DNA. Eins og áður sagði skerða stökkbreytingar í þeim getu DNA viðgerðarkerfa spendýra og sveppa. Þessi gen eru ekki nauðsynleg skordýrum og ormum. Ályktanir: Mögulegt er að flugur og ormar noti önnur prótín til að skynja DNA skemmdir. Einnig er mögulegt að lífstíll þessara dýra bjóði upp á hraðan og háskalegan lifnað, þar viss viðgerðarkerfi séu óþarfi. Niðurstöðurnar minna okkur á að tilraunalífverur eru hver með sína sérstöku þróunarsögu, sem gera þær misheppilegar fyrir rannsóknir á kerfum sem tengjast líffræði mannsins. E 42 Northern Lights Assay of cell-free DNA (cfDNA) damage in body fluids Bjarki Guðmundsson1,2,3, Hans G. Þormar1,2, Olof Hammarlund1, Joakim Lindblad1, Salvör Rafnsdóttir1, Albert Sigurðsson1, Davíð Ólafsson1,4, Anna M. Halldórsdóttir4, Jón J. Jónsson1,3 1Department of Biochemistry and Molecular Biology, University of Iceland, 2Lífeind/BioCule Inc., 3Department of Genetics and Molecular Medicine, Landspítali University Hospital, 4Blood Bank, Landspítali University Hospital bjarkigu@hi.is Introduction: Structural damage in cfDNA molecules in body fluids has been little studied. Such damage may reflect normal and abnormal cell turnover, genome instability or exposure to genotoxic agents. Methods and data: We analyzed cfDNA damage in plasma, urine and saliva. Standard methods of isolation of cfDNA in plasma and urine are based on inducing ssDNA with a chaotropic agent and selective coordination binding of lone pair electrons on guanine to silica. These methods were not usable. In contrast, we found that selective ion exchange chromatography allowed gentle isolation of DNA without inducing damage. Results: Damage in isolated DNA was assessed with the Northern Lights Assay. This assay is based on Two-Dimensional Strandness-Dependent Electrophoresis (2D-SDE) in premade microgels. Each sample was run in duplicate i.e. uncut and cut with Mbo I, an enzyme which cuts both single- and double-stranded DNA. Single-stranded breaks, either nicks or gaps, were detected as horizontal streaks from uncut DNA molecules. Double-stranded breaks generated an arc in the gel. DNA molecules with interstrand crosslinks migrated as an arc behind normal dsDNA molecules. DNA with intrastrand crosslinks and bulky adducts were bent and migrated in front of that arc. Single-stranded DNA molecules, too damaged for complementary strand binding, formed a diagonal line. Conclusions: Patterns of cfDNA in plasma of normal subjects showed an apoptosis pattern with single- and double-stranded breaks of nuc- leosomal-sized fragments. cfDNA in urine showed composite patterns of apoptosis and non-specific degradation. The most extensive damage and variable patterns were seen in saliva including prominent single- stranded breaks.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.