Læknablaðið : fylgirit - 05.01.2015, Page 28

Læknablaðið : fylgirit - 05.01.2015, Page 28
28 LÆKNAblaðið/Fylgirit 82 2015/101 X V I V Í S I N D A R Á Ð S T E F N A H Í F Y L G I R I T 7 3 sjúklingar greinast með mörg meinvörp í einu eða fleiri líffærum. Lifun þessara sjúklinga er marktækt verri en sjúklinga með eitt meinvarp í einu líffæri, sem hafa bestu horfurnar. E 63 MicroRNA451 bælir æxlisvöxt með því að minnka tjáningu IL6R gens Dong Liu1, Cong Liu2, Xiyin Wang2, Sigurður Ingvarsson3, Huiping Chen2 1Department of Radiology, Tongji Hospital, Tongji Medical College, Huazhong University of Science and Technology, Wuhan, 2Department of Medical Genetics, Tongji Medical College, Huazhong University of Science and Technology, 3Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum siguring@hi.is Inngangur: MicroRNA (miR) eru stuttar RNA-sameindir sem taka þátt í að stjórna genatjáningu. Þær geta þáttaparast við mRNA og hindrað próteinmyndun. Í nokkrum æxlisgerðum á sér stað minnkuð tjáning á miR451 og því má ætla að um sé að ræða orsakasamband við framvindu æxlisvaxtar. Í þessari rannsókn var unnið að því að skilgreina starfsemi miR451 í æxlisbæliferlinu. Efniviður og aðferðir: Tölvuforrit sem greina samsvörun í kirnisröðum voru notuð til að áætla markgen miR451. Eftirlíking miR451 var sett í tvær æxlisfrumulínur, RKO og HeLa og innþekjufrumur. Greining á frumuskiptingu og frumuhring fór fram með því að mæla útfellingu tetrasolium-salta og með flæðifrumusjá. Hæfileiki til ífarandi vaxtar var greindur með in vitro prófi á filter sem samsettur er af utanfrumuefni. Hæfileiki innþekjufruma til æðamyndunar var metinn eftir að miR451 hafði verið sett inn í þær. Áætluð markgen miR451 voru rannsökuð með rauntíma PCR, Western þrykki og siRNA tækni. Niðurstöður: RKO- og HeLa-frumur hafa nokkuð háa tjáningu IL6R gens. Þegar miR451 var sett inn í þessar frumur minnkaði bæði mRNA- og próteintjáning IL6R gens. Einnig kom fram bæling á frumuskiptingum í þeim. Ífarandi vöxtur RKO fruma var bældur með miR451. Innþekjufrumur með innlimað miR451 sýndu minni hæfileika til æðamyndunar en samanburðarfrumur. Allar helstu niðurstöður voru sannreyndar með IL6R siRNA tilraunum. Ályktanir: Draga má þá ályktun að IL6R sé markgen miR451. MiR451 virðist taka þátt í bælingu á æxlisvexti og hefur sennilega sértæk áhrif á þau líffræðilegu ferli sem IL6R tekur þátt í, með því að bæla tjáningu IL6R. Þannig bælir miR451 frumuskiptingu, ífarandi vöxt og æðamynd- un í gegnum IL6R. E 64 Upplifun ráðþega í krabbameinserfðaráðgjöf þar sem notuð eru rafræn ættartré og áhættumat Vigdís Stefánsdóttir1,2, Óskar Þór Jóhannsson3, Heather Skirton4, Jón Jóhannes Jónsson1, 2, 5 1Erfða- og sameindalæknisfræðideild Landspítala, 2lífefna- og sameindalíffræðistofu læknadeildar Háskóla Íslands, 3lyflækningasviði Landspítala, 4Faculty of Health, Education and Society, Plymouth University, 5erfðafræðinefnd Háskóla Íslands vigdisst@landspitali.is Inngangur: Einstaklingar og fjölskyldur sem leita eftir erfðaráðgjöf vegna krabbameina, hafa flestir sterka fjölskyldusögu um krabbamein. Á erfðaráðgjöf Landspítalans er gert nákvæmt rafrænt áhættumat með gögnum Krabbameinsskrár og ættartré frá erfðafræðinefnd HÍ. Efniviður og aðferðir: Til rannsóknarinnar var boðið einstaklingum sem komið höfðu í erfðaráðgjöf árin 2007-2012, höfðu farið í erfðarannsókn og tilheyrðu fjölskyldum þar sem fundist hafði breyting í BRCA1 eða BRCA2 geni (n=225). Valið var í fókushópa með því að nota tilviljunar- skipun í Excel. Við þessa eigindlegu rannsókn var notuð óhefðbundin aðferð sem okkur er ekki kunnugt um að hafi verið notuð áður hér á landi. Sett var upp phpBB@spjallborð á lokuðu vefsvæði. Þátttakendur völdu eigið heiti og lykilorð og þess var gætt að ekki væri unnt að rekja IP-tölur. Niðurstöður: Enginn hafði á móti því að rafrænt ættré/áhættumat væri notað. Helmingur þátttakenda vissi fyrir erfðaráðgjöf að hægt væri að gera rafræn ættartré. Flestir treysta ættfræðiupplýsingum og upplýs- ingum frá Krabbameinsskrá og því að persónuverndar sé gætt. Enginn hafði sérstakar áhyggjur af viðhorfi annarra í fjölskyldunni. Minnihluti fann til björgunarsektar. Biðtími var hjá flestum svipaður og búist var við og fáir fundu fyrir kvíða. Ályktanir: Ráðþegar treysta upplýsingum í rafrænum ættartrjám og notkun þeirra ásamt rafrænu áhættumati hefur reynist vel. E 65 Fækkun á komum á BSH vegna lungnabólgu og eyrnabólgu í kjölfar bólusetninga gegn S. Pneumoniae Samúel Sigurðsson1, Karl G. Kristinsson1,3, Helga Erlendsdóttir1,3, Birgir Hrafnkelsson4, Ásgeir Haraldsson1,2 1Læknadeild Háskóla Íslands, 2Barnaspítala Hringsins, 3sýklafræðideild Landspítala, 4raunvísindadeild Háskóla Íslands sas35@hi.is Inngangur: Bólusetningar með próteintengdu bóluefni (PCV-10) gegn Streptococcus pneumoniae (pneumókokkum) hófust sem hluti af ungbarnabólusetningum á Íslandi árið 2011. Markmið rannsóknar- innar var að meta hvort í kjölfarið hefði orðið fækkun á komum barna á Barnaspítala Hringsins vegna lungnabólgu og eyrnabólgu. Efniviður og aðferðir: Rannsakaðar voru komur barna <2 ára, greind með lungnabólgu eða eyrnabólgu og komu á Barnaspítala Hringsins á tímabilinu 1. janúar 2008 til og með 31. desember 2013. Reiknað var ár- legt nýgengi/1000 börn <2 ára. Börn fædd árið 2011 (bólusett) voru borin saman við börn fædd 2008-2010 (óbólusett). Börn með berkjungabólgu voru metin til samanburðar. Notað var Odds ratio og öryggismörk. Niðurstöður: Alls voru 4374 komur skoðaðar, eyrnabólgur 2636, lungnabólgur 924 og berkjungabólgur 814. Árlegt nýgengi fyrir eyrna- bólgur lækkaði úr 108/1000 börn <2 ára (óbólusett) í 87/1000 börn <2 ára (bólusett) (OR: 0,76;(0,67-0,85), p<0,001). Fyrir lungnabólgur var lækk- unin úr 39/1000 börn <2 ára (óbólusett) í 29/1000 börn <2 ára (bólusett) (OR: 0,74;(0,61-0,88), p<0,001). Hækkun var á nýgengi fyrir berkjunga- bólgu úr 30 í 39/1000 börn <2 ára (OR: 0,74;(0,61-0,88), p<0,001). Ályktun: Niðurstöðurnar sýna að umtalsverð fækkun varð á komum vegna lungnabólgu og eyrnabólgu hjá yngstu börnunum eftir að bólusetning gegn pneumókokkum hófst. Á sama tíma varð fjölgun á berkjungabólgu, en það er sýking sem oft leiðir til lungnabólgu og eyrnabólgu. Því hefði frekar mátt búast við aukningu þessara sýkinga. Niðurstöðurnar benda því til verulegs árangurs bólusetninganna. Mikilvægt er að fylgja niðurstöðunum eftir í lengri tíma til að meta af meiri nákvæmni áhrif bólusetninga gegn pneumókokkum. E 66 Áhrif súrefnisgjafar á súrefnismettun í sjónhimnu sjúklinga með langvinna lungnateppu Þórunn Scheving Elíasdóttir1,2,3, Davíð Þór Bragason2, Sveinn Hákon Harðarson2,4, Guðrún Kristjánsdóttir1,5, Einar Stefánsson2,4 1Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands, 2augndeild Landspítala, 3svæfingadeild Landspítala, 4læknadeild Háskóla Íslands, 5Barnaspítala Hringsins tse@hi.is
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.