Læknablaðið : fylgirit - 05.01.2015, Page 60

Læknablaðið : fylgirit - 05.01.2015, Page 60
X V I I V Í S I N D A R Á Ð S T E F N A H Í F Y L G I R I T 8 2 60 LÆKNAblaðið/Fylgirit 82 2015/101 rannsóknarinnar var að kanna áhrif togkrafts frá æfingateygju þvert á hreyfiplan tveggja algengra æfinga, á vöðvavirkni mjaðmavöðva. Efniviður og aðferðir: Tuttugu og fjórir heilbrigðir einstaklingar á aldr- inum 21-35 ára. Vöðvarafritsmælingar með yfirborðselektróðum. Mælt við framkvæmd mjaðmaréttu á öðrum fæti, með og án æfingateygju sem togaði þvert á hreyfiplan æfingarinnar. Þrír vöðvar mældir á ríkjandi fæti (lærfellsspennir, miðþjóvöðvi og mikli þjóvöðvi). Merkið var síað og reiknað var bæði heildi fyrir heildarstærð merkis og hámarksmerki, yfir þrjár endurtekningar af æfingunni. Notast var við fjölþátta dreifi- greiningu (ANOVA) við tölfræðiúrvinnslu gagnanna. Niðurstöður: Vöðvavirkni lærfellsspennis og miðþjóvöðva við fram- kvæmd mjaðmaréttu á öðrum fæti með teygju var marktækt minni en þegar æfingin var gerð án teygjunnar (p<0,05), bæði hvað varðar heildar- og hámarksstærð merkisins. Ekki var marktækur munur á vöðvavirkni mikla þjóvöðva við framkvæmd mjaðmaréttu á öðrum fæti. Ályktanir: Niðurstöður benda til marktækt minni vöðvavirkni í lærfells- spenni og miðþjóvöðva þegar mjaðmarétta á öðrum fæti er framkvæmd með teygju sem togar þvert á hreyfiplan æfingarinnar, samanborið við án teygju. Draga má í efa gagnsemi þess að notast við slíka aðferð með það fyrir augum að auka vöðvavirkni miðþjóvöðva. V 8 Rannsóknir á lífsferlum smásærra sníkjudýra af fylkingu Myxozoa í íslensku ferskvatni Hólmfríður Hartmannsdóttir, Guðbjörg Guttormsdóttir, Fjóla Rut Svavarsdóttir, Árni Kristmundsson Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum arnik@hi.is Inngangur: Myxozoa er fylking smásærra en fjölfruma sníkjudýra sem lengi vel var flokkuð til frumdýra (Protozoa). Lífsferill þeirra krefst tveggja hýsiltegunda, fiska og hryggleysingja, sem í flestum tilfellum eru ánar, en fram til ársins 1984 var talið að beint smit væri milli fiska. Lífsstig í fiskum (myxospore) og í ánum (actinospore) eru mjög ólík að gerð og ekki unnt að greina hvaða myxospore og actinospore tilheyra sömu tegund án DNA-greiningar. Markmið verkefnisins er að greina mismundi lífsstig í ánum og fiskum í íslensku ferskvatni og para saman bæði lífsstigin og sýna fram á lífsferill tegundanna. Efniviður og aðferðir: Ánum af ættkvíslum Lumbriculus (blóð- ánar) og Tubifex (röránar) var safnað úr botnseti nokkurra vatna á Reykjavíkursvæðinu. Þeir voru settir í vatn í 24 holu bakka og skoðaðir daglega undir víðsjá og kannað hvort þeir hefðu seytt actinospore-lífs- stigum. Sæist eitthvað sem líktist seytingu, var það skoðað undir smásjá til staðfestingar. Gróin voru mæld, myndir teknar af þeim og sýni tekin til DNA-greiningar. Niðurstöður: Alls seyttu 15 ánar actinospore-gróum. Byggt á mæl- ingum og útliti gróanna greindust að minnsta kosti 7 ólíkar tegundir. Greiningar á erfðaefni mismunandi tegunda eru í gangi. Þær rannsóknir hafa þó nú þegar sýnt fram tilvist tegunda í ánum sem ekki hefur áður verið lýst erlendis. Ályktanir: Alls hefur um 12 tegundir Myxozoa fundist í ferskvatns- fiskum á Íslandi. Engar sambærilegar rannsóknir liggja hins vegar fyrir á ánum. Verkefnið er skammt á veg komið en raðgreining á erfðaefni lífs- forma úr fiskum og ánum mun leiða ljós hvaða formgerðir í hýslunum tveimur tilheyra sömu tegund. V 9 Activation of the classical and alternative complement pathways following total hip replacement Sóley Þórðardóttir1, Þóra Víkingsdóttir1, Halldór Jónsson2,4, Björn Guðbjörnsson3,4 1 Department of Immunology, Landspítali University Hospital, 2Department of Orthopaedics, Landspítali University Hospital, 3Centre for Rheumatology Research, Landspítali University Hospital, 4Faculty of Medicine, University of Iceland bjorngu@landspitali.is Introduction: The aim of this study was to investigate in a human model the activation of the classical and alternative complement pathways following a cemented total hip replacement surgery (THR) due to os- teoarthritis. Methods and data: Blood samples were collected systematically from 12 patients; six male/six female; 74 ± 9 years of age, preoperatively, six hours postoperatively and on the first, second and third postoperative day. Total function of classical (CH50) and alternative pathways (AH50) was evaluated, along with determination of serum concentrations of C3, C4, C3d, CIC-κ and CIC-λ, as well as CRP and albumin. Measurements of CRP and albumin elucidated marked inflammatory response follow- ing the operation. Results: CH50, AH50 and the concentration of C3 and C4 were signi- ficantly lower six hours after the surgery compared to the preoperative levels, but elevated above the preoperative concentrations during the following three days (P<0,001). The complement activation product C3d increased continually during the whole observation period, from 14 ± 4 AU/mL preoperative to 21 ± 7 AU/mL on the third postoperative day (P<0.001). Conclusions: These results demonstrate a significant activation of the classical and alternative complement pathways following cemented THR and indicate that the complement system is still activated on the third postoperative day. We conclude that activation of the complement pathways following cemented THR might play an important role in early aseptic loosening. All efforts should be implemented to find screening methods that could detect individuals at risk and prepare them especially preoperatively to minimise this threatening of decrea- sed life expectancy after their otherwise expensive treatment. V 10 Blönduð Bláa lóns- og ljósameðferð bælir T-frumur í skellum sórasjúklinga Eva Ösp Björnsdóttir1, 2, Guðmundur Bergsson1, Jenna Huld Eysteinsdóttir1,3, Helga Kristín Einarsdóttir1, Bjarni A. Agnarsson2,4, Jón Hjaltalín Ólafsson2,5,6, Bárður Sigurgeirsson6, Ása Brynjólfsdóttir3, Steingrímur Davíðsson3,5, Björn Rúnar Lúðvíkssson1,6 1Ónæmisfræðideild Landspítala, 2læknadeild Háskóla Íslands, 3Lækningalind Bláa Lónsins, 4meinafræðideild Landspítala, 5húð- og kynsjúkdómadeild Landspítala, 6Húðlæknastöðinni bjornlud@lsh.is Inngangur: Sóri er algengur bólgusjúkdómur með slæma fylgikvilla sem hafa neikvæð áhrif á lífsgæði einstaklinga. Meingerð sóra hefur aðallega verið tengd við ofvirkni Th1 og Th17 CD4+ virkjaðra T-frumna. Meðferð í Bláa lóninu ásamt NB-UVB ljósameðferð getur bælt T-frumur, minnkað bólgur í húð og aukið lífsgæði einstaklinga. Efniviður og aðferðir: Húðsýnum var safnað úr skellum sórasjúklinga með húðsýnapenna fyrir og eftir 6 vikna meðferð. Fimm einstaklingar gengust undir ljósameðferð og fimm einstaklingar undir ljósa- og Bláa lóns meðferð. Psoriasis Area Severity Index (PASI) var reiknaður fyrir og eftir meðferð og sýnin fryst í vaxi, skorin í örþunnar sneiðar og sneiðarnar litaðar með mótefnum fyrir CD3, CD4 og CD8 jákvæðum T-frumum. Fjöldi frumna var talinn á tveimur mismunandi svæðum
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.